Megalodon merkir risatönn og tröllvaxinn hákarl fyrri tíðar hafði kappnóg af þeim. Þessi ófreskja ríkti í heimshöfunum fyrir 2-18 milljónum ára og gat náð 20 metra lengd og vegið allt að 40 tonn. Hér má sjá eina slíka tönn og til samanburðar eru svo steingerðar tennur úr öðrum og minni hákarlategundum.