Í viðleitni sinni til að afla sjálfboðaliða í vélbyssuherdeildir, auglýsti breski herinn heimsreisur í fyrri heimsstyrjöldinni.
Eins og lofað var í auglýsingunni voru þessir hermenn sendir vítt og breitt um heiminn – til helstu átakasvæðanna, m.a. í Frakklandi, Egyptalandi, Palestínu og Austur-Afríku – en margir komust bara aðra leið.
Vélbyssusveitirnar fengu viðurnefnið „The Suicide Club“ eða „Sjálfsmorðsklúbburinn“.
Meira en 12.000 mannanna féllu og a.m.k. 62.000 særðust.