Okkur finnst einkar sárt að reka olnbogann í sökum þess að ölnartaugin er rétt undir húðinni en um er að ræða eina af aðaltaugunum þremur í handleggnum og hendinni.
Ölnartaugin nær alla leið frá hnakkanum niður í höndina og hún gerir það að verkum að við getum stjórnað vöðvunum í framhandleggnum og hendinni, ásamt því að okkur berast skynhrif frá litla fingri og hluta baugfingurs.
Næst olnboganum er svo ölnartaugin, rétt undir húðinni og þar er mjög þunnt lag yfir henni og sáralítið sem dregið getur úr höggum.
Fyrir bragðið hafa flestir lent í því að reka taugina í eitthvað þannig að það fer ekki á milli mála.
Tilfinningin minnir einna helst á rafstraum og sársaukanum fylgir gjarnan stungutilfinning í baugfingri og litla putta.
Verkurinn hverfur yfirleitt af sjálfu sér en ef um er að ræða margendurtekin högg á olnbogaliðinn eða langvarandi álag á olnbogann, t.d. í tengslum við erfiðisvinnu, getur það haft í för með sér langvinnan skaða á ölnartauginni.
Í alvarlegum tilfellum getur skurðlæknir fjarlægt vef sem þrýstir á taugina eða reynt að færa sjálfa taugina til í olnbogaliðnum, þangað sem hún er ekki eins berskjölduð.
Olnbogataugina er að finna rétt undir húðinni
Ölnartaugina er að finna meðfram öllum handleggnum. Næst olnboganum er hún rétt undir húðinni og fyrir vikið mjög viðkvæm fyrir höggum.
1. Hnakki tengist hönd
Ölnartaugin á upptök sín í hnakkanum og hún nær niður allan handlegginn og niður í höndina. Þar sér hún m.a. litla fingri og baugfingri fyrir skynhrifum.
2. Taugin er afar berskjölduð
Taugina er að finna rétt undir húðinni við olnbogann. Sökum þess hvað hún er nálægt yfirborðinu er hún einkar viðkvæm fyrir þrýstingi og höggum.
3. Högg leiðir niður í fingurna
Sökum þess að taugin endar í fingurgómunum leiðir höggin alla leið niður í höndina þar sem þau geta haft í för með sér stingandi óþægindi í litla fingri og baugfingri.