Um þessar mundir eru jálfkeyrandi leigubílar að leggja af stað í jómfrúarferðir sínar í kínversku borginni Guangzhou.
Tæknifyrirtækið Pony.ai, með samvinnu við bílarisann Toyota, er það fyrsta í Kína til að fá leyfi til að senda 100 sjálfkeyrandi leigubíla út í bílaumferð.
Kapphlaupið um sjálfkeyrandi bíla er hörð og tæknirisar eins og Google taka þátt í því.
Ökumenn eru tilbúnir í fyrstu ferðirnar
Upphaflega verða sjálfkeyrandi leigubílar Pony.ai sendir út á 800 ferkílómetra svæði í Nansha hafnarhverfinu í Guangzhou. Hér geta viðskiptavinir pantað leigubílana í gegnum app.
Í fyrstu ferðunum sleppa farþegar hins vegar ekki alveg við mannleg samskipti því ökumaður af holdi og blóði verður tilbúinn í ökusætinu til að taka við stýrinu komi upp hættulegar aðstæður.
Pony.ai hefur tekið höndum saman við bílarisann Toyota og hefur nýverið fengið fyrsta fulla leigubílaleyfið fyrir sjálfkeyrandi bíla í Kína.
Pony.ai hefur verið að prófa leigubílana í nokkur ár, með eldri útgáfum af tækninni, og leyfið hefur verið veitt eftir tvö ár án slysa í Kína.
Að sögn fyrirtækisins verða öryggisbílstjórar fjarlægðir innan „skamms tíma“ án þess að tilgreint sé hvenær.
Þegar það gerist munu farþegar upplifa það að sitja einir í sjöttu kynslóð tvinnbílsins Toyota Sienna með hafsjó af tölvubúnaði undir vélarhlífinni.
Leysir sér blindu blettina
Leigubílarnir eru búnir hvorki meira né minna en 23 skynjurum, þar af sjö svokallaðir Lidar-skynjarar fyrir háþróað og nákvæmt leysifjarlægðarmat þegar leigubíllinn er í gangi.
Lidar skynjararnir virka svolítið eins og hljóðnæmur sónar, þar sem þeir gefa frá sér hátíðni leysipúlsa. Skynjararnir geta reiknað út fjarlægðina til hluta í umhverfinu með því að nota þann tíma sem það tekur fyrir leysimerkin að endurkastast frá yfirborði til dæmis húsa eða annarra bíla.
Fjórir skynjarar eru settir á þakið til að ná allan hringinn í kringum bílinn en aðrir þrír eru settir á hlið bílsins til að mæla stuttar vegalengdir og blinda bletti.
Að auki er leigubíllinn búinn ratsjám og myndavélum sem geta tekið upp í gleiðhornum og stillt fókus bæði nærri og fjarri eftir leiðsögukröfum.
LESTU EINNIG
Skynjargögnunum er safnað með öflugum grafíkörgjörva Nvidia Drive-Orin. Tölvan er smíðuð til að takast á við mikið magn umferðarupplýsinga skynjaranna og ræður við hvorki meira né minna en 254.000 milljarða útreikninga á sekúndu.
Tæknin hefur einnig innbyggt vélnám þannig að leigubíllinn hagræðir akstri sínum stöðugt og lærir af fyrri mistökum.
Kapphlaup gegn Google
Leigubílar Pony.ai eru keppinautar meðal annars Google, sem er einn af frumkvöðlum sjálfkeyrandi bíla.
Frá árinu 2010 hefur tæknirisinn unnið að sjálfkeyrandi bílum sínum sem fóru síðasta sumar 20 milljónir tilraunakílómetra á þjóðvegum.
Undir nafninu Waymo hefur Google hleypt af stokkunum eigin leigubílaþjónustu í nokkrum borgum í Bandaríkjunum með San Francisco sem nýjustu borgina sem upp á það býður, en er ekki enn komin með fullt leigubílaleyfi eins og Pony.ai.
Bandaríska lögfræðistofan Gerber, sem sérhæfir sig í bílatjónum, áætlar að sjálfkeyrandi bílar valdi að meðaltali 9,1 slysum á hverja milljón ekna kílómetra en sú tala sé 4,1 fyrir hefðbundna bíla.
Tjón á sjálfkeyrandi bílum er þó almennt vægara en venjuleg bílslys.