Nýlega hefur lífeðlisfræðingurinn Guillaume J. Bastien við kaþólska háskólann í Leuven í Belgíu lokið við rannsókn sem sýnir að sherpar eru að líkindum hæfustu burðarmenn í veröldinni – og allavega hæfari en konur í vissum afrískum ættbálkum, sem fram að þessu hafa borið þennan titil. Við rannsókn sína lét Bastien sherpana ganga sjö sinnum eftir 51 metra langri braut með misþunga byrði á bakinu. Orkunotkun þeirra var um leið mæld með sérstakri grímu. Í ljós kom að sherparnir gátu borið allt að 20% af eigin líkamsþyngd án þess að efnaskipti ykjust í líkamanum. Þeir reyndust líka nýta orkuna ótrúlega vel þegar þeir báru þyngri byrðar. Sumir voru færir um að bera allt að tvöfalda líkamsþyngd sína. Nú gera vísindamennirnir ráð fyrir að í vöðvum sherpa sé að finna óvenju mikið af vöðvatrefjum af gerðinni I, sem ekki þreytast jafn fljótt. Fitusnautt fæði þeirra er líka talið geta bætt súrefnisnýtingu líkamans. Hugsanlegt er að þessi þróun sé þáttur í aðlögun sherpa að aðstæðum sínum, en þeir bera framleiðslu sína iðurlega meira in 100 km á markaði í stærri bæjum.
Eru sherpar bestu burðarmennirnir?
Lifandi vísindi | Lifandi saga
Nú verða skemmtilegar breytingar á tímaritinu okkar. Öðru megin verður Lifandi vísindi á sínum stað eins og undanfarin 23 ár en ef þú snýrð við tímaritinu er Lifandi saga þeim megin. Skemmtilegar og spennandi greinar um mannkynssöguna. Vonandi áttu eftir að líka vel við þessar breytingar á tímaritinu
Nýlegar færslur
Vinsælar greinar
Hvernig andar kjúklingur í eggi? nóvember 4, 2014
Svör við helstu spurningum efasemdaradda um bólusetningu febrúar 25, 2021
Falsfrétt: Nixon lýsir yfir sorg sinn eftir… febrúar 28, 2021
Sannleikurinn um hávaða febrúar 25, 2021
Hvað er fyrir utan alheiminn? mars 3, 2021
Félagsleg staða þín skapar öðrum öryggistilfinningu mars 1, 2021
Valmynd
Um okkur
- Klapparstígur 25
- 101 Reykjavík
- Sími: 570-8300
- Opnunartími: 9 – 12 alla virka daga
- lifandi@visindi.is
Áskrift
Hægt er að ganga frá áskrift með því að smella hér.
Ef erindið er að segja upp áskrift þarf að senda póst á lifandi@visindi.is
Hannað og sett upp af Markaðssýn | Alla skilmála er hægt að lesa hér.