Á síðustu 30 árum hefur fjöldi sykursjúkra á heimsvísu nærri fjórfaldast og nú kostar sjúkdómurinn árlega a.m.k. 1,5 milljónir manna lífið.
Langflestir hafa sykursýki 2 sem nú er einkum haldið niðri með blöndu af lífstílsbreytingum, pillum og daglegum sprautum.
En nú gæti ný tilraun hóps vísindamanna rutt brautina að því marki að hægt verði að meðhöndla sjúkdóminn alveg án lyfja.
Sykursýki 2 lýsir sér í því að magn glúkósa (sykurs) í blóði er of mikið.
Þetta stafar annað hvort af því að frumur líkamans eru ekki lengur jafn næmar fyrir hinu lífsnauðsynlega hormóni insúlíni eða vegna þess að brisið framleiðir ekki lengur nægilega mikið af því.
Myndband: Skildu sykursýki 1 hér
Í tilrauninni tókst vísindamönnunum að koma í veg fyrir og lækka of hátt blóðsykurstig í sykursjúkum svínum, músum og rottum með því að skjóta þjöppuðum hátíðnihljóðbylgjum í átt að taugabúnti í lifrinni.
Hátíðnihljóðunum var beint að litlu svæði neðst í lifrinni, „porta hepatis“. Þarna er taugabúnt og frá svæðinu berast heilanum skilaboð um magn sykurs og annarra næringarefna í blóði til að heilinn geti komið á jafnvægi.
Þessar taugabrautir tókst að virkja með daglegum skammti hátíðnihljóða.
3 mínútur af meðferð á dag er nóg
Samkvæmt niðurstöðum rannsóknarinnar dugðu þrjár mínútur á dag til að koma blóðsykurmagni niður á eðlilegt stig í dýrunum.
Næsta skref felst í rannsókn á því hvort niðurstöðurnar gildi líka um menn og fyrsta stigs rannsókn á því er þegar hafin.
Aðeins þriggja mínútna hátíðnibylgjumeðhöndlun á dag dugði til að draga úr magni blóðsykurs í dýrum með sykursýki.