Fólk sem óttast sprautunálar getur nú farið að anda léttar.
Vísindamenn, m.a. hjá Emory-háskóla, hafa nefnilega þróað eins konar plástur sem t.d. má nota til bólusetningar, nánast án þess að fyrir því finnist, vegna þess að nálarnar innan á plástrinum eru ámóta mjóar og mannshár.
Enn eiga vísindamennirnir þó eftir að finna aðferð til að geyma plásturinn við stofuhita án þess að það bitni á styrk lyfsins.