„Sykurskert gos er hollara“ – Nei „Aspartam er krabbameinsvaldandi“ – Nei – „Sykurskertir gosdrykkir seljast í síauknum mæli“ – Já
„SYKURSKERTIR GOSDRYKKIR ERU HOLLARI“ - NEI
Árið 2015 var unnin viðamikil evrópsk rannsókn þar sem eldri niðurstöður úr rannsóknum á sykurskertum gosdrykkjum voru sameinaðar. Vísindamönnunum tókst m.a. að sanna að ólíkt fólk drekkur mismunandi gosdrykki.
Þeir þátttakendur sem drukku gosdrykki sem innihéldu hitaeiningasnautt sætuefni neyttu minni orku og léttust miðað við þá sem drukku gosdrykki með sykri í.
Þar með er ekki sagt að sykursnauðir gosdrykkir séu heilnæmari en hinir þegar til lengdar lætur. Árið 2019 birtu 50 vísindamenn rannsókn sem fól í sér eftirlit með rösklega 450.000 manns frá tíu Evrópulöndum yfir 16 ára tímabil.
Sykur
Sykur getur valdið of mikilli orkuneyslu, með þar af leiðandi auknu mittismáli og meiri þyngd. Þess vegna hafa verið þróuð mýmörg gervisætuefni á undanförnum mörgum árum.Stærð hrúganna samsvarar því magni sem þarf fyrir sætuefni að ná sama sætleikanum og í þessari sykurhrúgu.
Aspartam
180 sinnum sætara en sykur
Fundið upp: 196
Uppruni: Gervisætuefni
Þekktar afurðir: Notað í Coca-Cola Light
Acesúlfam K
200 sinnum sætara en sykur
- Fundið upp: 1967
- Uppruni: Gervisætuefni
- Þekktar afurðir: Notað með sykri í Pepsi Max
Stevía
250 sinnum sætara en sykur
- Fundið upp: 1931
- Uppruni: Náttúrulegt sætuefni
- Þekktar afurðir: Notað með sykri í Coca-Cola Life
Súkralósi
660 sinnum sætara en sykur
- Fundið upp: 1976
- Uppruni: Gervisætuefni
- Þekktar afurðir: Notað í Diet Mountain Dew, ásamt aspartami og acesúlfam K
Sykur
Sykur getur valdið of mikilli orkuneyslu, með þar af leiðandi auknu mittismáli og meiri þyngd. Þess vegna hafa verið þróuð mýmörg gervisætuefni á undanförnum mörgum árum. Stærð hrúganna samsvarar því magni sem þarf fyrir sætuefni að ná sama sætleikanum og í þessari sykurhrúgu.
Aspartam
180 sinnum sætara en sykur
- Fundið upp: 1965
- Uppruni: Gervisætuefni
- Þekktar afurðir: Notað í Coca-Cola Light
Acesúlfam K
200 sinnum sætara en sykur
- Fundið upp: 1967
- Uppruni: Gervisætuefni
- Þekktar afurðir: Notað með sykri í Pepsi Max
Stevía
250 sinnum sætara en sykur
- Fundið upp: 1931
- Uppruni: Náttúrulegt sætuefni
- Þekktar afurðir: Notað með sykri í Coca-Cola Life
Súkralósi
660 sinnum sætara en sykur
- Fundið upp: 1976
- Uppruni: Gervisætuefni
- Þekktar afurðir: Notað í Diet Mountain Dew, ásamt aspartami og acesúlfam K
Niðurstöðurnar leiddu í ljós að gosdrykkjaneytendur létust í 17 prósent meira mæli en þeir sem ekki neyttu gosdrykkja, óháð því hvort um var að ræða sykurskerta útgáfu drykkjanna eður ei.
Sykraðir gosdrykkir juku hættuna á að maga- og þarmasjúkdómar drægju neytendurna til dauða á meðan þeim sem kusu sykurskerta drykki var hættara við að látast af völdum hjarta- og æðasjúkdóma.
Vísindamönnum hefur þó enn ekki tekist að sanna hvort gosdrykkjum er um að kenna eða hvort gosdrykkir eru til marks um óheilnæmari lífsvenjur almennt.
,,ASPARTAM ER KRABBAMEINSVALDANDI" - NEI
Aspartam er tilbúið efni sem brotnar niður í náttúruleg efni í líkamanum en sömu efni er m.a. að finna í próteinum í m.a. kjöti og grænmeti.
Tvenn helstu matvælaeftirlitssamtökin á Vesturlöndum, EFSA í Evrópu og FDA í Bandaríkjunum, telja aspartam í takmörkuðu magni vera meinlaust en niðurstöður sínar byggja þeir á ógrynni rannsókna sem unnar hafa verið.
Viðmiðunarmörkin eru einnig þekkt undir heitinu „ásættanleg dagleg inntaka“ (ADI) og eru það eiturefnafræðingar sem skilgreina mörkin. Í ESB er ADI skilgreint sem 40 mg á hvert kg af líkamsþyngd.
Þetta þýðir að maður sem vegur 70 kg má í mesta lagi innbyrða 2.800 mg af aspartami á dag.
Tilraunir gefa til kynna að sykurskertir gosdrykkir narri heilann og fái hann til að halda að nú séu hitaeiningar innan seilingar. Þó svo að sykurskertir gosdrykkir hljómi í fljótu bragði eins og góð lausn, þá hefur það neikvæðar afleiðingar að velja stöðugt sykurskerta gosdrykki. Hér á myndbandinu má sjá hvað veldur.
,,SYKURSKERTIR GOSDYKKIR SELJAST Í SÍAUKNU MÆLI" - JÁ
Meðalþyngd jarðarbúa hefur aukist gífurlega undanfarin 40 ár og sykurskertir gosdrykkir virðast í fljótu bragði vera afar ákjósanlegur valkostur fyrir fólk í ofþyngd.
Þetta endurspeglast enn fremur í sölumagninu sem eykst hratt. Hlutfall þeirra sem haldnir eru offitu þrefaldaðist á árunum milli 1975 til 2016, ef marka má upplýsingar frá Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni, WHO.
Heildarfjöldi fólks með líkamsþyngdarstuðul (BMI) yfir 30 (mörkin fyrir fitu) er nú rösklega 650 milljónir og forspár gefa til kynna að fjöldinn aukist stöðugt.
Hlutfall með BMI yfir 30
- Appelsínugult: Norður- og Suður Ameríka
- Gult: Evrópa
- Blátt: Afríka
- Grænt: Suðaustur-Asía