Límband sýgur sig fast eins og könguló
Tækni Hópur þýskra og bandarískra vísindamanna við Max-Planck-stofnunina í Stuttgart hefur þróað límlaust „límband“ sem festir sig við undirlagið með sama hætti og köngulær og skordýr, sem sé með smásæjum hárum. Eftir rannsóknir á fótum 600 liðdýra völdu vísindamennirnir aðferð köngulóa og skordýra sem nota smásæ hár á fótunum til að hlaupa um lóðrétta veggi. […]