Hve djúpt niður geta plöntur skotið rótum?
Flestir sjá plöntur að líkindum fyrir sér sem þá grænu og brúnu plöntuhluta sem við sjáum standa upp úr jörð, en reyndar er meirihluti plöntunnar oft neðanjarðar í formi róta. Sumar plöntur hafa lagt miklu meira en helming lífmassa síns í rætur og rætur stórra trjáa teygja sig yfirleitt lengra til allra átta en trjákrónan. […]