Hvernig virkar seguleldavél?
Seguleldavél virkar allt öðruvísi en önnur hitunartæki. Á slíkri eldavél hitnar aðeins potturinn eða pannan að nokkru ráði. Hellan sjálf verður ekki mjög heit. Leyndardómurinn er fólginn í rafsegulspólu undir hellunni. Þegar straumi er hleypt á spóluna myndar hún hátíðnisegulsvið sem aftur veldur rafstraumi í pottbotninum og vegna mikillar mótstöðu hitnar málmurinn í pottinum og […]