„Ég leið ólýsanlegar kvalir“
Þegar rithöfundurinn Frances Burney fór til læknis árið 1812 vegna æxlis, velktist læknirinn ekki í vafa: Hann yrði að fjarlægja brjóstið. Á þeim tíma tíðkaðist enn ekki að svæfa sjúklinga og Frances þurfti að undirgangast alla aðgerðina með fullri meðvitund. Hún lýsti hryllingnum í bréfi til systur sinnar.
Hvernig hefur svæfing áhrif á líkamann?
Svæfing er notuð við skurðaðgerðir til að koma í veg fyrir að sjúklingurinn finni sársauka og bregðist við honum. Öfugt við staðdeyfingu virkar svæfingarlyfið á miðtaugakerfið og þar með á allan líkamann. Svæfingarlyf eru samsett úr tveimur eða fleiri efnum sem saman virka deyfandi, hemja sársauka og slaka á vöðvum. Efni á borð við áfengi […]