Alheimurinn

Dagatal yfir loftsteinadrífur haustsins

Ef þú hefur gaman af því að sjá stjörnuhröp og að vera úti hálfa nóttina horfandi upp í stjörnubjartan himininn þá geturðu nýtt þetta dagatal okkar núna þegar sumri tekur að halla, þannig að þú vitir hvenær þú getir átt von á mikilli ljósasýningu.

BIRT: 09/08/2024

Stjörnuhröp 2024

Frá stórbrotinni sýningu Geminítanna til endalaust streymis Tauridíanna með litskrúðugum loftsteinahölum og fjölskylduvænni síðsumarssýningu Perseidíanna.

 

Stjörnuhröp eru stórkostleg ásýndar og upplifunin af því að standa, og bókstaflega halda andanum niðri í sér, á meðan maður fylgist með loftsteini sem er að brenna upp í andrúmslofti jarðar er algjörlega einstök reynsla – umlukin dulúð og grípandi tilfinningu um að vera aðeins agnarsmátt púsl í óendanlega stórum alheimi.

 

Ef þú kannt að meta þá tilfinningu að liggja á bakinu einhverja haustnóttina og dást að stjörnuhröpunum, sem birtast hvert á fætur öðrum, þá er þetta almanak afar heppilegt fyrir þig.

 

Hérna getur þú fundið helstu viðburði á þessu sviði með nákvæmri dagsetningu um hvenær bestu líkur eru á að sjá sem flest stjörnuhröp.

 

Góða skemmtun – við sjáumst þarna úti í nóttinni.

LOFTSTEINADRÍFUR - ALMANAK 2024

Hér er almanak okkar yfir stjörnuhröp, sem þú getur litið yfir til að fylgjast með þeirri væntanlegri ljósasýningu, sem við eigum von á nú í haust og fram eftir vetri. Vitanlega ef veður leyfir.

 

  • Persítarnir – 17. júlí – 24. ágúst 2024
  • Óríonítarnir – 2. október – 7. nóvember 2024
  • Tárítarnir/norðlægir – 20. október – 10. desember 2024
  • Leonítarnir – 6. nóvember – 30. nóvember 2024
  • Geminítarnir – 4. desember – 20. desember 2024
  • Úrsítarnir – 17. desember – 26. desember 2024

 

Þú getur lesið meira um þessa mismunandi loftsteinadrífur hér fyrir neðan.

PERSÍTAR

Tímabil: 17-24. ágúst 2024

 

Hámark: 12-13 ágúst

 

Þéttni: 100 stjörnuhröp á klukkustund

 

Langvinsælasta loftsteinastrífa ársins á norðurhveli jarðar. Ekki síst vegna þess að loftsteinaskúran skellur á jörðinni af fullum styrk rétt þegar nætur eru sem hlýjastar þó svo erfiðara gæti verið að sjá drífuna hér á landi sökum birtu.

 

Þar sem Persítarnir eru líka ein virkasta loftsteinadrífa ársins er hún í uppáhaldi hjá mörgun.

 

80 til allt að 200 stjörnuhröp á klukkustund þegar mest lætur, góður næturhiti og hámarkstímabilið spannar þrjá daga. Því er mjög erfitt að finna afsökun fyrir því að koma sér ekki fyrir í myrkrinu og horfa til himins.

Loftsteinadrífan Persítarnir

Það er ágætt að fara út tímanlega ef þú vilt virkilega njóta Persíana, því augun verða að venjast myrkrinu.

 

Þegar augun hafa vanist myrkrinu muntu geta séð jafnvel daufari stjörnuhröpin og hafa þannig tækifæri til að njóta hins tilkomumikla sjónarspils með allt að 2-3 stjörnuhröpum á mínútu – alla nóttina.

 

Persítar stafa frá halastjörnunni Swift-Tuttle

Svona leit Persítaloftsteinadrífan út í Yosemite þjóðgarðinum árið 2015.

ÓRÍONÍTAR

Tímabil: 2. október – 7. nóvember 2024

 

Hámark: 21. október – 22. október 2024

 

Þéttni: 10 – 20 stjörnuhröp á klukkustund

 

Óríonítarnir eru með hvað flottustu ljósasýninguna með geggjaðan hala og langan líftíma.

 

Jafnframt er það eitt annað sem er athyglisvert við Óríonítana, en það er að lofsteinadrífan rekst á jörðina nánast beint framan frá og hraði lofsteinadrífunnar inni í gufuhvolfið er heilir 67 km/sek.

 

Það þýðir að stjörnuhröpin frá Óríonítunum færast eldskjótt yfir himininn og ná þannig yfir drjúgan hluta af honum, áður en þeir brenna upp.

 

En þetta gerir einnig að verkum að hvað erfiðast er að fylgjast með þessari lofsteinadrífu því að oft lítur út fyrir að stjörnuhröpin þeytist einfaldlega alla leið þvert yfir næturhimininn í sviphendingu.

 

Lofsteinadrífa – Óríonítar árið 2016

Óríonítarnir eru með geislapunkt sinn í stjörnumerkinu Óríon, en vegna hins mikla hraða stjörnuhrapanna og gríðarlegra langra hala þeirra ættir þú ekki að fókusera á einn stað á himninum, því þá getur þú misst af öllu sjónarspilinu.

 

Leggstu þess í stað á bakið og fylgstu rólega með eins mikið af næturhimninum og þú getur.

 

Órionítar stafa frá Halley – halastjörnunni

 

Lofsteinadrífan á næturhimninum nær hámarki með um 20 stjörnuhröpum á klukkustund frá 20. október og þrjár til fjórar næstu nætur.   

MYNDBAND: Sjáðu Óríonítana dansa á stjörnuhimninum

Svona litu Óríonítarnir út í Þýskalandi snemma um morguninn 22.október 2019.

TÁRÍTAR/NORÐLÆGIR

Tímabil: 20. október – 10. desember 2024

 

Hámark: 11. – 12. nóvember

 

Þéttni: 5 stjörnuhröp á klukkustund

 

Norðlægir Tárítar rétt eins og suðlægir Táriíar einkennast af mjög ljóssterkum stjörnuhröpum með tilkomumiklum hölum og hafa langan líftíma. Yfirleitt eru þeir komnir úr stjörnumerkinu Nautinu en stjörnuhröpin berast að frá mismunandi stöðum og því er best að fylgjast með öllum himninum.

 

Tárítar eru ein af þeim loftsteinadrífum sem innihalda stærstu agnirnar og skapa þannig flest stjörnuhröp.

 

Táritar/Norðlægir stafa frá halastjörnunni Encke

 

Norðlægir Tárítar í nóvember.

LEONÍTARNIR

Tímabil: 6.  nóvember – 30. nóvember 2022

 

Hámark: 17. – 18. nóvember

 

Þéttni: 15 stjörnuhröp á klukkustund

 

Loftsteinadrífan Leonítarnir hafa burði til að skapa langmestu ljósasýninguna á næturhimninum og loftsteinadrífan hefur sum árin komið með allt að 50.000 stjörnuhröp á klukkustund. Því miður er næstu loftsteinadrífu af þeim styrkleika fyrst að vænta árið 2099.

 

Yfirleitt er þéttnin um 12 – 20 stjörnuhröp á klukkustund og langflest birtast þau í stjörnumerkinu Ljóninu.

 

Leonítar stafa frá loftsteininum Tempel-Tuttle

Loftsteinadrífan Leonítarnir getur skapað ótrúlega ljósasýningu.

GEMINÍTAR

Tímabil: 4. desember – 20. desember 2022

 

Hámark: 14. – 15. desember

 

Þéttni: 150 stjörnuhröp á klukkustund

 

Öflugasta og ein ákafasta loftsteinadrífa ársins er komin frá Geminítunum, sem er jafnframt ein af fáum lofsteinadrífum sem veita hvað flest stjörnuhröp skömmu fyrir miðnætti.

 

Loftsteinarnir frá Geminítunum eru afar litlir og þrengja sér inn í lofthjúp jarðar í kringum stjörnumerki Tvíburanna á tiltölulega litlum hraða.

 

Þess vegna lýsa stjörnuhröpin þaðan oftar öflugar, en á skemmri tíma og með minni hala. Hins vegar eykst fjöldi þeirra ár eftir ár.

 

Þessi blanda af fjölmörgum stjörnuhröpum og afar ljóssterkum gerir Geminitíanna afar vinsæla meðal þeirra sem vita fátt betra en að rýna í stjörnuhimininn á þessum árstíma.

 

Geminítar stafa frá smástirninu 3200 Phaedon

 

Loftsteinadrífan Geminítanna yfir Maharastra, Indlandi.

ÚRSÍTARNIR

Tímabil: 22. desember til 23. desember 2024

 

Hámark: 22. desember – 23. desember 2024

 

Þéttni: 10 stjörnuhröp á klukkustund

 

Lofsteinadrífan Úrsiítarnir gleymist oft því loftsteinadrífuna ber oft upp á jólum, en einnig því það er erfitt að feta í fótspor hinnar stórkostlegu sýningar eftir Gemínitanna.

 

En þeir sem að drífa sig á fætur eldsnemma daginn fyrir hámarksþéttni drífunnar verða verðlaunaðir með 10 og oft upp í 20 stjörnuhröp á klukkustund – svo fremi að veður leyfi.

 

Loftsteinadrífa Úrsitanna skilar af sér öllu ljósminni stjörnuhröpum með tiltölulega stutta hala, sem sjást eiginlega út um allt. Þess vegna getur skýjaður himinn dregið verulega úr upplifuninni.

 

Úrsítar eru geimagnir sem stafa frá halastjörnunni 8P/Tuttle

 

HÖFUNDUR: JAKOB PRIESS

Shutterstock

Náttúran

Bakteríur örva ilminn af sumarregni

Læknisfræði

Ofvirkni í heilastöð veldur stami

Maðurinn

Rannsókn: Þetta er ástæðan fyrir því að börn læra hraðar en fullorðnir

Maðurinn

Heilinn kortlagður: Smásæ vefsýni sýna stórbrotin smáatriði

Náttúran

Af hverju er kalt í mikilli hæð?

Maðurinn

Hversu oft segjum við ósatt?

Lifandi Saga

Kjarnorkuógnin: Sovéskur kafbátur í skerjagarðinum

Alheimurinn

Lítið eitt um þyngdarkraftinn

Menning

Hverjir höfðu fasta búsetu í Machu Picchu?

Lifandi Saga

Hitler var á efnum alla seinni heimsstyrjöld

Jörðin

Af hverju virðist Grænland álíka stórt og Ástralía?

Lifandi Saga

Hversu góðir vinir eru Kína og Rússland? 

ÁSKRIFT AÐ VÍSINDI.IS

Prófaðu í 14 daga ókeypis!

  • Fullur aðgangur að vefnum okkar með rúmlega 3000 skemmtilegum og spennandi greinum um allt milli himins og jarðar á sviði vísinda og sögu.
  • Lifandi vísindi/Lifandi saga í rafrænni útgáfu á vefnum,
  • Aðeins 1.790 krónur á mánuði.
  • Engin skuldbinding – Þú getur hætt hvenær sem er.

ÁSKRIFT AÐ TÍMARITINU

Þrjú tölublöð + gjöf: Skemmtilegur sjónauki
  • Þrjú næstu tölublöð Lifandi vísinda/Lifandi sögu – sent heim til þín – eins færðu lítinn og vandaðan sjónauka að gjöf.
  • Fullur aðgangur að vefnum okkar – visindi.is – með tæplega 3000 skemmtilegum og spennandi greinum um allt milli himins og jarðar á sviði vísinda og sögu.
  • Spennandi greinar og flottar myndir sem svala forvitni þinni.
  • Þú getur hætt eftir tilboðið en ef þú heldur áfram skuldbindur þú þig aðeins þrjú tölublöð í einu og þú getur sagt upp hvenær sem sem og klárar þá tímabilið sem er hafið.
  • Venjuleg áskrift – þrjú tölublöð – kostar aðeins 7.590 kr

Sjónauki og þriggja blaða áskrift – Alls 3.800 kr.

Lifandi vísindi

Lyf

Lifandi saga

Search

Ertu áskrifandi að tímaritinu?

Áskrifendur að tímaritinu geta fengið frían aðgang að vefnum hér.

Innskráning

Ertu áskrifandi að tímaritinu?

Áskrifendur að tímaritinu geta fengið frían aðgang að vefnum hér.