Þrátt fyrir nafnið hafa fæstar tegundir nema örfá hundruð fóta.
Metið er 750 fætur og þeir voru taldir á dýri af tegundinni Illacme plenipes. Þessi tegund fannst í Kaliforníu árið 1926.
Skömmu síðar hugðust nokkrir vísindamenn ná fleiri eintökum en þá brá svo við að þau fundust alls ekki. Það var ekki fyrr en 2006 sem tegundin sást aftur og nú kom í ljós að útbreiðslusvæði hennar er aðeins um 0,8 ferkílómetrar í San Benito-sýslu.
Þar með er þessi þúsundfætla bæði ein sú sjaldgæfasta og í hvað mestri útrýmingarhættu.
Vísindamennirnir telja að þessi skepna fjölgi liðum og þar með fótum eftir því sem dýrið eldist. Þannig mætti sem sagt hugsa sér að fæturnir gætu mögulega orðið þúsund talsins.