Sirkusfíllinn Mighty Mary tróð einn gæslumanna sinna til bana úti á miðri götu í Tennessee árið 1916. Óttasleginn múgurinn krafðist hefnda og ekki var um annað að ræða en að taka Mary af lífi. Sirkusstjórinn setti keðju um háls skepnunnar og hífði hana upp í krana. Keðjan gaf sig en aftakan heppnaðist í annarri tilraun.