Hvað í ósköpunum á milljarðamæringur að gera til að slá út gullúr vina sinna? Svarið kemur kannski með úrinu Jurassic Tourbillion-úrinu frá Louis Moinet. Auk þess að vera úr 18 karata platínu og með 56 demanta, sem samtals eru 3,46 karöt, eru hér líka steingerðar flísar úr forneðlubeinum. Bara spurningin hvort úrið mæli kannski jarðsögulegan tíma.