Lifandi Saga

Hvað var mannætueyja Stalíns? 

Mitt úti í auðnum Síberíu er að finna litla láglenda eyju þar sem hræðilegir atburðir áttu sér stað fyrir 90 árum síðan. Svo hræðilegir og blóðugir að skýrslum um eyjuna var haldið leyndum um áratugaskeið í sovéskum skjalasöfnum.

BIRT: 30/11/2024

Þann 18. maí 1933 kom fljótaprammi með fyrstu fangana til eyjunnar Nazino. Hún er í miðju Op-fljóti í Síberíu og var föngunum ætlað að yrkja jörðina og koma á laggirnar sjálfbærri nýlendu, samkvæmt ákvörðun kommúnistaflokksins og Stalíns.

 

Þegar síðasti pramminn sigldi burt voru mörg þúsund glæpamenn og aðrir „óæskilegir borgarar“; menn, konur og börn skilin eftir á þessari þriggja kílómetra löngu og 600 metra breiðu eyju. 

 

Nazino var mýrlend og veitti föngunum enga möguleika á að nærast eða komast í skjól.

 

Strax fyrstu nóttina dóu um 300 fangar úr kulda og vosbúð og á næstu dögum steig dánartalan hratt.

 

Fangarnir höfðu hvorki fengið vistir eða verkfæri heldur fengu þeir einungis handfylli af mjöli fjórða eða fimmta hvern dag.

 

,,Fólk fangaði stúlkuna”

Ekki leið á löngu þar til fyrstu örvæntingarfullu fangarnir tóku að stunda mannát til að seðja hungur sitt. 

 

„Fólkið fangaði stúlkuna, batt hana við tré, skar brjóst hennar af og vöðvana og allt sem hægt var að borða“, sagði einn fangi síðar.

 

Brátt herjuðu flokkar af blóðþyrstum föngum á aðra fanga þar sem þeir rændu þá og drápu miskunnarlaust. 

 

MYNDSKEIÐ: Mannætueyja Stalíns

Eftir minna en einn mánuð gátu kommúnistaforkólfar ekki lengur hundsað þessa óhugnanlegu framvindu og ákváðu að loka búðunum.

 

Þegar fangarnir voru fluttir til annarra fangabúða höfðu einungis 2.200 af upprunalegum 6.700 föngum lifað af sult, sjúkdóma og mannát.

 

Af þeim voru aðeins 300 þeirra í sæmilegu líkamlegu ástandi. Síðar tók embættismaðurinn Vasily Velchko viðtöl við suma fangana og skrifaði skýrslu sem hneykslaði flokksforystuna. 

 

Atburðirnir á Nazino voru þaggaðir niður og skýrslan geymd í skjalasafni allt fram til ársins 1988 þegar mannréttindasamtökin Memorial grófu upp frásögnina. 

HÖFUNDUR: Emrah Sütcü

Shutterstock

Náttúran

Bakteríur örva ilminn af sumarregni

Lifandi Saga

Hve marga Rómana drápu nasistar? 

Maðurinn

Hvaða tilgangi gegna líkamshár mannsins?

Náttúran

Hvernig myndast El Ninjo?

Lifandi Saga

Blóðsúthellingar og kynlíf: Íslendingar skrifuðu ævintýrasagnfræði

Heilsa

Óþekktar lendur heilans kortlagðar

Alheimurinn

Missýningar og veðurfyrirbæri skapa fljúgandi diska.

Heilsa

Epla- eða perulögun? Líkami þinn kemur upp um hættuna á ótímabæru andláti

Alheimurinn

Ráðgáta sólkerfisins verður leyst á tunglunum 

Lifandi Saga

Allir hræddust miskunnarlausa böðla

Náttúran

Af hverju verður fólki ekki kalt í framan?

Jörðin

Af hverju spúa eldstöðvar ösku?

ÁSKRIFT AÐ VÍSINDI.IS

Prófaðu í 14 daga ókeypis!

  • Fullur aðgangur að vefnum okkar með rúmlega 3000 skemmtilegum og spennandi greinum um allt milli himins og jarðar á sviði vísinda og sögu.
  • Lifandi vísindi/Lifandi saga í rafrænni útgáfu á vefnum,
  • Aðeins 1.790 krónur á mánuði.
  • Engin skuldbinding – Þú getur hætt hvenær sem er.

ÁSKRIFT AÐ TÍMARITINU

Þrjú tölublöð + gjöf: Skemmtilegur sjónauki
  • Þrjú næstu tölublöð Lifandi vísinda/Lifandi sögu – sent heim til þín – eins færðu lítinn og vandaðan sjónauka að gjöf.
  • Fullur aðgangur að vefnum okkar – visindi.is – með tæplega 3000 skemmtilegum og spennandi greinum um allt milli himins og jarðar á sviði vísinda og sögu.
  • Spennandi greinar og flottar myndir sem svala forvitni þinni.
  • Þú getur hætt eftir tilboðið en ef þú heldur áfram skuldbindur þú þig aðeins þrjú tölublöð í einu og þú getur sagt upp hvenær sem sem og klárar þá tímabilið sem er hafið.
  • Venjuleg áskrift – þrjú tölublöð – kostar aðeins 7.590 kr

Sjónauki og þriggja blaða áskrift – Alls 3.800 kr.

Lifandi vísindi

Lyf

Lifandi saga

Search

Ertu áskrifandi að tímaritinu?

Áskrifendur að tímaritinu geta fengið frían aðgang að vefnum hér.

Innskráning

Ertu áskrifandi að tímaritinu?

Áskrifendur að tímaritinu geta fengið frían aðgang að vefnum hér.