Lifandi Saga

Hvers vegna vildu Frakkar eignast Níger sem nýlendu? 

Undir lok 19. aldar beindu franskir nýlenduherrar sjónum sínum að Níger. Þetta afríska land hafði ekki yfir að ráða sérlega verðmætum hráefnum en hins vegar var það ákaflega vel staðsett í Afríku. 

BIRT: 21/09/2024

Hvernig eigum við að skipta Afríku á milli okkar? Þetta var helsta spurningin þegar nýlenduveldi Evrópu komu saman á fundi í Berlín þann 15. nóvember 1884. 

 

Fram að þeim tíma höfðu Evrópubúar einkum byggt verslunarstöðvar meðfram ströndum Afríku til að stunda viðskipti við innfædda en nú horfðu þeir gráðugir til hins mikla ríkidæmis sem var að finna í iðrum Afríku. 

 

Einn þátttakendanna, Frakkland, hélt frá ráðstefnunni í Berlín með loforð um mikið landflæmi á þessu stóra meginlandi. 

 

Ein möguleg nýlenda fyrir Frakkland var Níger og fáeinum árum eftir ráðstefnuna sendu Frakkarnir fjölmarga leiðangra til Afríku til að krefjast yfirráða í landinu. 

 

Á meðan Frakkarnir voru að leggja undir sig Níger frömdu leiðangursmenn margvísleg brot gegn þarlendum íbúum og voru alræmdir fyrir að ræna, nauðga konum og drepa borgara. Árið 1922 var landið opinberlega nýlenda í frönsku Vestur-Afríku. 

 

Níger var fullkomlega staðsett

Einn ríkur þáttur í nýlendustefnu Frakka var leitin að hrávörum fyrir vaxandi iðnað heima fyrir. 

 

Því miður fyrir Frakkana var ekki mikið um verðmæt hráefni í Níger en landið var þó ríkt af margvíslegum nytjajurtum og síðar kom í ljós að þar var að finna mikið magn af úrani. 

 

Þó að Níger hafi ekki boðið upp á mikið af hráefnum var staðsetning þess ákaflega heppileg. Eitt af stærstu fljótum Afríku, Nígerfljótið, rennur í gegnum landið og þannig gátu Frakkar öðlast stjórn á einni mikilvægustu flutningaleiðinni í Vestur-Afríku. 

Rússar prófuðu kjarnorkuvopn sín á dreifbýlum steppunum í Kazakstan og Bandaríkjamenn vildu grafa nýjan Panamaskurð með vetnissprengjum. En engin var eins öflug og Zar-sprengjan sem var sprengd árið 1961.

Auk þess gaf landfræðileg lega Níger Frökkum tækifæri til að ráða yfir verslunarleiðum í gegnum Sahara og með þeim hætti gátu þeir hindrað önnur evrópsk nýlenduveldi í að ná fótfestu á svæðinu. 

 

Níger fékk að lokum sjálfstæði árið 1960 en hefur síðan verið plagað af fátækt, þurrkum og borgarastríðum. 

Sjálfstæðið markaði upphafið að ringulreið

Eftir að Frakkar höfðu stýrt Níger um áratuga skeið fékk landið loksins sjálfstæði árið 1960. Þessi sögulegi atburður ætti að hafa markað upphafið að tímabil þróunar og velmegunar en þess í stað endaði Níger sem eitt fátækasta og vanþróaðasta land heims. 

1960: Sjálfstæði Níger 

Þann 3. ágúst 1960 hlaut Níger sjálfstæði og Hamani Diori varð fyrsti forseti landsins. Tími hans við völd einkenndist af nánu sambandi við Frakkland og eins-flokks kerfi. Þrátt fyrir að Diori hafi komið á pólitískum stöðugleika var hann einnig gagnrýndur fyrir að standa í fararbroddi spilltrar og ólýðræðislegrar ríkisstjórnar. 

1974: Bylting gegn Diori 

Ríkisstjórn Hamani Dioris féll árið 1974 eftir að herinn náði völdum undir forystu Seyni Kountché ofursta. Mikil óánægja hafði gripið um sig vegna vangetu Diori við að takast á við djúpa efnahagslægð og mikla þurrka sem herjuðu á landið. Kountché stýrði Níger með harðri hendi allt fram að dauða sínum árið 1987. 

1990: Tuareg-uppreisnin 

Eftir 1990 einkenndist ástandið í Níger af vopnaðri uppreisn Tuareg þjóðflokksins í norðurhluta landsins. Tuaregarnir sögðust vera jaðarsettir af ríkisstjórninni og kröfðust meira sjálfstæðis. Eftir eins árs bardaga var friðarsamkomulag undirritað árið 1995 en stöðug vopnuð átök héldu áfram næstu áratugi. 

2010: Bylting og lýðræðisleg stjórn

Í febrúar 2010 varð enn ein bylting hersins eftir að Mamadou Tandja forseti reyndi að breyta stjórnarskránni til að lengja tíma sinn við völd. Herforingjastjórnin sem tók við völdum lofaði að koma á lýðræði og í kosningum árið 2011 var Mahamadou Issoufou kosinn forseti. 

2023: Enn ein bylting

Þann 26. júlí 2023 veltu herforingjar lýðræðislega kjörna forsetanum Mohamed Bazoum úr stóli eftir að hafa kært hann fyrir landráð. Byltingin vakti miklar áhyggjur á Vesturlöndum enda talin draga úr getu landsins til að vinna gegn hryðjuverkum heittrúaðra í Vestur-Afríku sem gætu mögulega opnað umfangsmiklar flóttamannaleiðir til ESB. 

HÖFUNDUR: EMRAH SÜTCÜ

© Ron Kroon/Anefo. © P. Hynèce. © Dan Lundberg. © Prime Minister's Office. © USAFRICOM. © Shutterstock

Náttúran

Bakteríur örva ilminn af sumarregni

Menning

Hverjir höfðu fasta búsetu í Machu Picchu?

Lifandi Saga

Hitler var á efnum alla seinni heimsstyrjöld

Jörðin

Af hverju virðist Grænland álíka stórt og Ástralía?

Lifandi Saga

Hversu góðir vinir eru Kína og Rússland? 

Náttúran

Greind í heimi dýranna

Alheimurinn

Hér eru sannanirnar fyrir Miklahvelli

Náttúran

Nýfundin risaeðla með furðu smáa framlimi

Lifandi Saga

Veislubúningar varðmanna Nixons aðhlátursefni

Náttúran

Hvað eru doppleráhrif?

Spurningar og svör

Af hverju eru sítrónur súrar?

Maðurinn

Hvernig framleiðir líkaminn orku úr fæðunni?

ÁSKRIFT AÐ VÍSINDI.IS

Prófaðu í 14 daga ókeypis!

  • Fullur aðgangur að vefnum okkar með rúmlega 3000 skemmtilegum og spennandi greinum um allt milli himins og jarðar á sviði vísinda og sögu.
  • Lifandi vísindi/Lifandi saga í rafrænni útgáfu á vefnum,
  • Aðeins 1.790 krónur á mánuði.
  • Engin skuldbinding – Þú getur hætt hvenær sem er.

ÁSKRIFT AÐ TÍMARITINU

Þrjú tölublöð + gjöf: Skemmtilegur sjónauki
  • Þrjú næstu tölublöð Lifandi vísinda/Lifandi sögu – sent heim til þín – eins færðu lítinn og vandaðan sjónauka að gjöf.
  • Fullur aðgangur að vefnum okkar – visindi.is – með tæplega 3000 skemmtilegum og spennandi greinum um allt milli himins og jarðar á sviði vísinda og sögu.
  • Spennandi greinar og flottar myndir sem svala forvitni þinni.
  • Þú getur hætt eftir tilboðið en ef þú heldur áfram skuldbindur þú þig aðeins þrjú tölublöð í einu og þú getur sagt upp hvenær sem sem og klárar þá tímabilið sem er hafið.
  • Venjuleg áskrift – þrjú tölublöð – kostar aðeins 7.590 kr

Sjónauki og þriggja blaða áskrift – Alls 3.800 kr.

Lifandi vísindi

Lyf

Lifandi saga

Search

Ertu áskrifandi að tímaritinu?

Áskrifendur að tímaritinu geta fengið frían aðgang að vefnum hér.

Innskráning

Ertu áskrifandi að tímaritinu?

Áskrifendur að tímaritinu geta fengið frían aðgang að vefnum hér.