Menning og saga

Svört kona flaug yfir allar hindranir

BIRT: 04/11/2014

Frá þeirri stundu þegar Bessie Coleman sá flugsýningu í fyrsta sinn, var hún gagntekin. Hún ætlaði að verða flugmaður. Að vísu var hún hið tíunda af þrettán börnum fátækra foreldra í Texas og 23 ára þurfti hún að flytja til Chicago til að vinna fyrir daglegu viðurværi.

 

Það var árið 1915. En draumurinn lifði áfram innra með henni. Einn eldri bræðra hennar hvatti hana með frásögnum af frönskum konum sem þveröfugt við bandarískar kynsystur sínar lögðu flugið fyrir sig.

 

En horfurnar á að draumurinn gæti nokkru sinni ræst voru ekki bjartar. Í fyrsta lagi var Bessie kona og í öðru lagi var hún svört.

 

Svartir voru meðhöndlaðir sem annars flokks borgarar og hún komst því hvergi í flugskóla í Bandaríkjunum. En Bessie skráði sig á námskeið í frönsku og varð sér úti um vegabréf og áritun til Frakklands.

 

Vel stæður bandarískur blökkumaður, Robert Abbot, studdi við hana fjárhagslega og 1920 innritaðist hún í flugskóla í Frakklandi. Á 7 mánuðum lærði Bessie undirstöðuatriðin ásamt því að geta flogið tvíþekju. Eftir heimkomuna vakti hún mikla hrifningu jafnt meðal hvítra sem svartra þegar hún bauð þyngdarlögmálunum birginn með því að fljúga í hringi, áttur og steypa sér úr mikilli hæð.

 

En hún þverneitaði að sýna listir sínar nema svörtum áhorfendum leyfðist að nota sama inngang á sýningarsvæðið og hvítum.

 

Árið 1926 fórst þessi frækni frumkvöðull í flugslysi, aðeins 34 ára. En hún hafði ekki barist til einskis. Á árunum eftir lát hennar voru stofnaðir flugskólar fyrir blökkumenn víða í Bandaríkjunum.

 
 

Náttúran

Bakteríur örva ilminn af sumarregni

Læknisfræði

Ofvirkni í heilastöð veldur stami

Maðurinn

Rannsókn: Þetta er ástæðan fyrir því að börn læra hraðar en fullorðnir

Maðurinn

Heilinn kortlagður: Smásæ vefsýni sýna stórbrotin smáatriði

Náttúran

Af hverju er kalt í mikilli hæð?

Maðurinn

Hversu oft segjum við ósatt?

Lifandi Saga

Kjarnorkuógnin: Sovéskur kafbátur í skerjagarðinum

Alheimurinn

Lítið eitt um þyngdarkraftinn

Menning

Hverjir höfðu fasta búsetu í Machu Picchu?

Lifandi Saga

Hitler var á efnum alla seinni heimsstyrjöld

Jörðin

Af hverju virðist Grænland álíka stórt og Ástralía?

Lifandi Saga

Hversu góðir vinir eru Kína og Rússland? 

ÁSKRIFT AÐ VÍSINDI.IS

Prófaðu í 14 daga ókeypis!

  • Fullur aðgangur að vefnum okkar með rúmlega 3000 skemmtilegum og spennandi greinum um allt milli himins og jarðar á sviði vísinda og sögu.
  • Lifandi vísindi/Lifandi saga í rafrænni útgáfu á vefnum,
  • Aðeins 1.790 krónur á mánuði.
  • Engin skuldbinding – Þú getur hætt hvenær sem er.

ÁSKRIFT AÐ TÍMARITINU

Þrjú tölublöð + gjöf: Skemmtilegur sjónauki
  • Þrjú næstu tölublöð Lifandi vísinda/Lifandi sögu – sent heim til þín – eins færðu lítinn og vandaðan sjónauka að gjöf.
  • Fullur aðgangur að vefnum okkar – visindi.is – með tæplega 3000 skemmtilegum og spennandi greinum um allt milli himins og jarðar á sviði vísinda og sögu.
  • Spennandi greinar og flottar myndir sem svala forvitni þinni.
  • Þú getur hætt eftir tilboðið en ef þú heldur áfram skuldbindur þú þig aðeins þrjú tölublöð í einu og þú getur sagt upp hvenær sem sem og klárar þá tímabilið sem er hafið.
  • Venjuleg áskrift – þrjú tölublöð – kostar aðeins 7.590 kr

Sjónauki og þriggja blaða áskrift – Alls 3.800 kr.

Lifandi vísindi

Lyf

Lifandi saga

Search

Ertu áskrifandi að tímaritinu?

Áskrifendur að tímaritinu geta fengið frían aðgang að vefnum hér.

Innskráning

Ertu áskrifandi að tímaritinu?

Áskrifendur að tímaritinu geta fengið frían aðgang að vefnum hér.