Marglytta breytist í lyftu
Máltíðir eru stopular í hyldýpinu og fyrir vikið er brýnt að spara orkuna fyrir sjálfar veiðarnar. Kolkrabbinn argófari kemur sér því fyrir ofan á holdýrum og lætur þau ferja sig að veislumáltíðinni nærri sjávarborðinu.
Risavaxin svifæta
Djöflaskatan er með rösklega sjö metra vænghaf og er náskyld hákarlinum. Þrátt fyrir það, lifir þessi risafiskur eingöngu á smáfiskum og svifi, sem hann síar gegnum stóran skoltinn.
Bænarækjan sker bráðina
Líkt og við á um skordýrin beiður, leggur bænarækjan klærnar á framfótunum saman. Þegar grunlaus bráðin nálgast spretta klærnar fram og stingast í hana. Því næst sker bænarækjan bráðina í bita með klónum.
Gegnsær felubúningur
Erfitt reynist að fela sig á opnu hafinu og fyrir vikið er besti felubúningurinn oft fólginn í því að vera gegnsær. Þessari aðferð beitir ungi læknafiskurinn, en roð hans er svo þunnt að unnt er að sjá beint inn í heila hans.
Hámar í sig svifi
Þessi smágerði flugfiskur getur étið svif í mestu makindum, því þó svo að marga ránfiska fýsi að éta hann þá er erfitt að ná honum. Sérstakir uggar gera það að verkum að hann getur flogið langar vegalengdir yfir sjávarborðinu, þar sem blóðþyrst rándýrin komast hvergi nærri.
Étur dýr sömu tegundar
Þegar demantakolkrabbinn hefur náð fullri stærð er hann næstum heill metri á lengd og vegur kringum 30 kíló. Þegar kolkrabbar þessir eru ungir að árum halda þeir sig undir sjávarborðinu þar sem þeir éta smáfiska og enn minni kolkrabba.
Bráð leitar skjóls innan um eitraða fálmara marglyttunnar.
Ung dýr eru sérlega varnarlaus í veislumáltíðinni og verða fyrir bragðið að beita róttækum aðferðum svo þau endi ekki sem forréttur. Þessum unga fiski stafar ekki hætta af eitruðum veiðiþráðunum, en það á hins vegar við um ránfiskana, og fyrir vikið getur sá ungi leitað skjóls hjá holdýrinu.

Næsta máltíð tilbúin
Vitaskuld þurfa einhverjir að sinna þrifum í átveislunni miklu. Hreinsirækjan lifir í samlífi með fiskum hafsins, sem synda fram hjá rækjunni til að láta hreinsa af sér dauðar frumur og sníkla, sem svo rækjan lifir á.

Flatfiskur hermir eftir eitruðum marglyttum
Stundum er besta vörnin að skapa ótta meðal óvina sinna. Til að hræða burt soltin rándýr hafa afrískir pompanóar þróað fálmara sem likjast eitruðum fálmurum marglyttu. Þannig narra þeir ívini sína.