Alskegg inniheldur fleiri skaðlegar bakteríur en feldur hunda. Þetta kemur fram í rannsókn sem hópur vísindamanna frá Hirslanden Klinik St. Anna í Sviss.
Klíníkin notar sama segulómtækið fyrir bæði hunda og menn og því vildu forsvarsmenn stofnunarinnar fá úr því skorið hvort það væri forsvaranlegt að nota segulómtækið líka fyrir hunda.
Þeim til mikillar undrunar var þetta ekki bara forsvaranlegt – hundarnir voru í raun þrifalegri en skeggjaðir karlmenn.
39 % alskeggs hættulegt heilsunni
Rannsakendur tóku sýni úr 18 alskeggjuðum einstaklingum og úr hálsfeldi 30 hunda – sem er eitt þeirra svæða sem eru hvað óhreinust á hundi. Karlarnir voru á aldrinum 18-76 ára og hundategundirnar voru 16.
Rannsakendur skoðuðu síðan heildarmagn baktería í sýnunum.
Niðurstaðan var ótvíræð því sjö af 18 alskeggjum innihéldu hugsanlega heilsuskaðlegar bakteríur. Til samanburðar innihéldu aðeins fjórir af 30 hundafeldum hættulegar bakteríur.
Hátt hlutfall baktería
Öll alskeggin og 23 af 30 hundafeldum innihéldu hátt hlutfall baktería. Síðustu sjö hundafeldirnir höfðu miðlungshátt hlutfall örvera.
Hreinleiki
Færri bakteríur fundust í segulómtækinu sem notað var fyrir bæði hunda og menn – að öllum líkindum vegna aukinnar áherslu á þrif.
Skaðlegar bakteríur
Sjúkdómsvaldandi bakteríur fundust í 7 af 18 alskeggjum en aðeins í fjórum af 30 hundafeldum.
Smithætta
Tvö alskegg og einn hundafeldur innihélt bakteríuna Staphylococcus aureus sem getur valdið alvarlegum sýkingum ef hún kemst í blóðrásina.