Allt að fimmta hvert par verður einhvern tíma fyrir skertri frjósemi.
Í þriðjungi tilvika stafar barnleysið af því að sáðfrumur karlsins hafa ekki næga sundgetu til að ná alla leið til eggsins.
En nú hafa vísindamenn hjá Monash-háskóla í Melbourne í Ástralíu fundið aðferð til að tvöfalda gæði sæðisins og jafnvel talsvert meira.
Hátíðnihljóð ýtir við lötum sáðfrumum
Vísindamennirnir prófuðu að beina hátíðnihljóðum að sæðissýnum. Og háir tónar virtust heldur betur kveikja sáðfrumunum dug og dáð.
Með því að beina hátíðnihljóði á 40 megariðum að sáðfrumunum í 20 sekúndur tókst að auka hreyfigetu þeirra um allt að 266%.
Hlutfall óvirkra eða hreyfingarlausra frumna fór líka úr 36% í 10%.
Að sögn doktorsnemans Ali Vafaie, eins þeirra sem stóðu að tilrauninni, hafði hátíðnihljóðið lítils háttar bætandi áhrif á sterkustu sáðfrumurnar en þær sem voru fremur veikburða sýndu mun meiri framför.
„Sáðfrumur sem höfðu litla hreyfigetu fyrir hátíðnimeðferðina, sýndu mesta framför eftir meðferð og frá klínískum rannsóknum vitum við að 10% bæting hreyfigetu sáðfrumna skilar sér í 8% auknum líkum á þungun,“ segir Ali Vafaie í fréttatilkynningu.
Hátíðnihljóð gæti hjálpað barnlausum
Tíðnin sem notuð var er hærri en svo að mannseyrað greini hana en hljóðbylgjurnar berast engu að síður gegnum sáðfrumurnar. Það örvar þær og vekur hægfara frumur til dáða.
Vísindamennirnir gera sér vonir um að hátíðnimeðhöndlun geti hjálpað barnlausu fólki að eignast þau börn sem það dreymir um.
Nú felst frjósemismeðferð oft í því að taka bæði egg og sáðfrumur og koma fyrir í petriskál, þar sem hraðsyndasta sáðfruman frjóvgar eggið – í rauninni svipað og við eðlilegar aðstæður.
Þegar sáðfrumurnar eru mjög illa syndar virkar þessi aðferð þó ekki og þá getur reynst nauðsynlegt að sprauta sáðfrumu beint í eggið en til þess þarf afar fíngerða nál.
Dáleiðandi takturinn veldur því að heilinn virðist springa og okkur líður líkt og okkur hafi verið hent út úr líkamanum í sæluvímu. Vísindin geta nú skýrt öll stig samfara og í ljós kemur að samfarir eru langtum meira en nautnin ein, sé rétt farið að.
Sú aðferð er dýr og vísindamennirnir að baki rannsóknarinnar vonast til að nýja aðferðin geti hjálpað fólki til að eignast börn á hefðbundinn hátt.
„Með því að gera veikburða sáðfrumur hreyfanlegar og auka hreyfanleika öflugra frumna getum við hjálpað fólki til að uppfylla lágmarkskröfur til glasafrjóvgunar í stað enn dýrari aðferða sem líka krefjast meiri inngripa,“ segir dr. Reza Nosrati sem er yfirmaður rannsóknastofnunar Monash-háskólans.