Hve lengi lifði hundurinn Laika í geimnum?
Sovétríkin sendu árið 1957 þennan kynblending á sporbraut um jörðu – og beinustu leið inn í sögubækurnar. En þetta reyndist skammvinnt ævintýri fyrir geimhundinn Laika.
Hversu lengi lifði geimtíkin Laika?
Tíkin Laika, sem skotið var út í geiminn um borð í Spútnik 2. í nóvember 1957, drapst úr hita og streitu fáeinum klukkustundum eftir geimskotið. Spútnik 2. var skotið á loft aðeins mánuði á eftir Spútnik 1. Öllum undirbúningi var hraðað sem framast var kostur og mönnum var því fullljóst að ekki yrði unnt að […]