Hvaða tækni er notuð til að skipta um lit í gleraugum?
Gleraugu sem verða sjálfkrafa að sólgleraugum í sólskini gera það fyrir tilverknað ljósnæmra sameinda sem breyta um lit þegar þær verða fyrir útfjólubláu ljósi. Fyrstu gleraugun af þessu tagi komu á markað upp úr 1960 og þá var svonefndum silfurhalíðum bætt í glerið. Silfurhalíð eru efnasambönd silfurs og bróms eða klórs. Þegar útfjólublátt ljós skín […]