Náttúran

Tuttugu arma sædýr fannst við suðurskautið

Við rannsóknir á sjávarbotni við Suðurskautslandið fundu vísindamenn áður óþekkta dýrategund með 20 arma og litlar klær á endunum.

BIRT: 01/04/2024

Hafir þú séð mynd Ridleys Scott, Alien, frá 1979, manstu kannski eftir þessum óhugnanlegu kvikindum sem stökkva upp á andlitið á geimförunum og klemma sig föst.

 

Sé svo, geturðu reynt að ímynda þér slíkar skepnur með 20 arma með litlum klóm á endanum – á mörg hundruð metra dýpi við Suðurskautslandið.

 

Slík dýr hafa ástralskir og bandarískir vísindamenn nú fundið við rannsóknir á mörgum tegundum sem veiddust í rannsóknarleiðöngrum á árunum 2008-2017.

 

Nýfundna tegundin hefur fengið fræðiheitið Promachocrinus fragarius en latneska orðið fragum merkir jarðarber. Í óvísindalegra samhengi er dýrið kallað Suðurskauts-jarðarberjafjaðurstjarna.

 

Eins og jarðarber

Það heiti stafar af því að þegar armarnir hafa verið skornir af þykir búkurinn minna á jarðarber. Á endum armanna eru litlar klær sem þessi stjarna notar til að halda sér fastri við botninn.

 

Þessi nýuppgötvaða tegund tilheyrir flokki svokallaðra seildýra (Crinoidea) ásamt t.d. krossfiskum, ígulkerjum, sæbjúgum og fleiri fjaðurstjörnutegundum.

Hún ætti að kremjast í spað vegna gríðarlegs þrýstings á 10.000 metra dýpi. En henni er bara nokk sama…því hún hefur skjöld í þarminum.

Vísindamennirnir hafa skrifað um jarðarberjafjaðurstjörnu suðurskautsins í tímaritið Invertebrate Systematics, þar sem þeir segja m.a. frá því að aðeins ein tegund af fjaðurstjörnu hafi verið þekkt fram að þessu á suðurskautinu: Promachocrinus kerguelensis.

 

Armarnir eru misjafnir og sumir fjaðurkenndir. Þeir geta orðið allt að 8 cm langir. Þeir geta líka verið allt frá purpurarauðum yfir í mjög dökkrauðan lit.

 

Þessi svonefnda jarðarberjafjaðurstjarna lifir á 20-2.000 metra dýpi og það þurfti DNA-greiningu til að ákvarða tegundina, enda eru Promachocrinus-tegundir talsvert fleiri.

HÖFUNDUR: SØREN ROSENBERG PEDERSEN

© Greg W. Rouse

Náttúran

Bakteríur örva ilminn af sumarregni

Heilsa

Er mikið um kyrrsetu hjá þér í vinnunni? Þá getur kaffi lengt líf þitt samkvæmt stórri rannsókn.

Heilsa

Lækning gegn útbreiddum meltingartruflunum finnst í flestum eldhúsum.

Náttúran

Jörðin eftir manninn: Svona munu leifar siðmenningar okkar hverfa

Heilsa

Læknar hafa grætt heilt auga í mann

Maðurinn

Nú geta vísindamenn ráðskast með drauma okkar

Tækni

140.000 veirutegundir hafa fundist í þarmaflórunni

Maðurinn

Kornabörn þekkja móðurmálið sitt

Alheimurinn

Tvíburi Vetrarbrautarinnar finnst í útjaðri alheimsins

Lifandi Saga

Hvers vegna klæddust fangar röndóttum búningum í gamla daga?

Lifandi Saga

Af hverju er rússneskur bær í Noregi?

Jörðin

Leiða loftslagsbreytingar til fleiri jarðskjálfta?

ÁSKRIFT AÐ VÍSINDI.IS

Prófaðu í 14 daga ókeypis!

  • Fullur aðgangur að vefnum okkar með rúmlega 3000 skemmtilegum og spennandi greinum um allt milli himins og jarðar á sviði vísinda og sögu.
  • Lifandi vísindi/Lifandi saga í rafrænni útgáfu á vefnum,
  • Aðeins 1.790 krónur á mánuði.
  • Engin skuldbinding – Þú getur hætt hvenær sem er.

ÁSKRIFT AÐ TÍMARITINU

Þrjú tölublöð + gjöf: Skemmtilegur sjónauki
  • Þrjú næstu tölublöð Lifandi vísinda/Lifandi sögu – sent heim til þín – eins færðu lítinn og vandaðan sjónauka að gjöf.
  • Fullur aðgangur að vefnum okkar – visindi.is – með tæplega 3000 skemmtilegum og spennandi greinum um allt milli himins og jarðar á sviði vísinda og sögu.
  • Spennandi greinar og flottar myndir sem svala forvitni þinni.
  • Þú getur hætt eftir tilboðið en ef þú heldur áfram skuldbindur þú þig aðeins þrjú tölublöð í einu og þú getur sagt upp hvenær sem sem og klárar þá tímabilið sem er hafið.
  • Venjuleg áskrift – þrjú tölublöð – kostar aðeins 7.590 kr

Sjónauki og þriggja blaða áskrift – Alls 3.800 kr.

Lifandi vísindi

Lyf

Lifandi saga

Search

Ertu áskrifandi að tímaritinu?

Áskrifendur að tímaritinu geta fengið frían aðgang að vefnum hér.

Innskráning

Ertu áskrifandi að tímaritinu?

Áskrifendur að tímaritinu geta fengið frían aðgang að vefnum hér.

Viltu lesa greinina?

Fáðu aðgang að visindi.is

Ókeypis í 2 vikur!

Eftir það kostar eingöngu 1.790 kr. á mánuði og enginn uppsagnarfrestur.

Innifalið er aðgangur að öllum greinum á vefnum ásamt rafræna útgáfu af nýjustu tölublöðunum.

  • Fullur aðgangur að visindi.is
  • Frábærar myndir og myndbönd
  • Aðgengilegt í öllum snjalltækjum
  • Fullur aðgangur að gríðarlegu magni eldri greina
  • Nýjustu tölublöðin í rafrænu formi

Núverandi áskrifendur að tímaritinu fá að sjálfsögðu ókeypis aðgang að vefnum og þurfa bara að virkja aðgang sinn hér.

Ef þú ert þegar áskrifandi að visindi.is