Maðurinn

10 óvanalegar tegundir af fælni

Til er fólk sem þjáist af ótta við blóm, trúða eða lykt. Lesið ykkur til um tíu öðruvísi tegundir af fælni.

BIRT: 31/03/2024

Með fælni er átt við órökrétta hræðslu við tiltekinn hlut eða aðstæður sem kann að vera svo alvarleg að líf einstaklingsins sem á í hlut, sé algerlega háð þessum tiltekna ótta.

 

Flestir kannast við myrkfælni, hræðslu við köngulær, lofthræðslu og innilokunarkennd en fælni getur snúist um allt mögulegt annað. Hér má sjá stutt yfirlit yfir þessar fælnitegundir.

 

Oddfælni (Aichmophobia): Hræðsla við beitta og oddhvassa hluti. Þeir sem þjást af þessari fælni geta meira að segja verið smeykir við fingur sem bent er með.

 

Gatnamótafælni (Agyrophobia) : Ótti við að fara yfir götu. Óttinn er alveg óháður umferð, því mannlaus gata getur verið alveg jafn skelfileg og sú sem mikil umferð er um.

 

Blómafælni (Anthophobia): Hræðsla við blóm. Kvilli sem kann að reynast mörgum erfiður sem vilja hreyfa sig út fyrir hússins dyr.

 

Dansfælni (Chorophobia): Hræðsla við að dansa. Margir kæra sig ekkert um að dansa en hér er um að ræða ótta sem getur gert fólk veikt.

 

Trúðafælni (Coulrophobia): Hræðsla við trúða. Hér er ekki einvörðungu um að ræða reiðilega trúða sem hafa þann tilgang að hræða fólk, heldur einnig ofur venjulega trúða.

 

Símaleysisfælni (nomophobia): Óttinn við að lenda í því að vera farsímalaus. Þetta er ein nýjasta tegundin af fælni sem þekkt er. Þessi fælni kann að vera svo alvarleg að aldrei sé slökkt á símanum og hann hafður með hvert sem er.

 

Lyktarfælni (Osmophobia): Hræðsla við lykt. Þessi kvilli kann að tengjast einhverri tiltekinni lykt eða þá öllum mögulegum gerðum af sterkri lykt.

 

Fælnifælni (Phobophobia): Ótti við fælni. Fólk getur orðið svo hrætt við að verða hrætt við eitthvað að sá ótti getur komið fólki í koll.

 

Speglafælni (Spectrophobia): Hræðsla við spegla og eigin spegilmynd. Þessi kvilli er einkar sjaldséður en er álitinn vera til marks um ótta við að viðurkenna hver maður er. 

 

Fjarkafælni (Tetraphobia): Hræðsla við töluna fjóra. Þessi fælni er einkar algeng í mörgum löndum í Asíu þar sem talan 4 og tákn dauðans líkjast oft verulega.

Slagsmál í heila losa okkur við fælni

 

Gríðarstór könguló skríður upp eftir handleggnum en þú haggast ekki. Nýleg tækni sem þróuð var af vísindamönnum í Cambridge í fyrra gerir kleift að eyða fælni og sálrænum áföllum úr undirmeðvitundinni.

 

Tilraunin gekk út á að framkalla fyrst ótta hjá þátttakendunum með því að gefa þeim rafstraum í hvert skipti sem þeir sáu rauðan hring. Þeir gátu greint óttaviðbrögðin í heilanum og komust síðar að raun um að viðbrögðin gerðu alveg ómeðvitað vart við sig á tilviljanakenndum tímum dagsins.

 

Með því að virkja umbunarkerfi heilans þegar óttinn gerði vart við sig, gátu vísindamennirnir unnið bug á óttanum. Þegar fram í sækir vonast þeir til að nýta megi aðferðina til að eyða áfallaminningum hjá t.d. hermönnum sem snúið hafa heim úr stríði.

 

LESTU EINNIG

HÖFUNDUR: LARS THOMAS

Shutterstock

Náttúran

Bakteríur örva ilminn af sumarregni

Jól

Hver er uppruni jólanna?

Alheimurinn

Fjórar óskiljanlegar FFH-kenningar

Alheimurinn

Úr hverju er alheimur?

Heilsa

Sérstakar svefnvenjur geta aukið hættuna á hjartasjúkdómum um 26 prósent

Náttúran

Bessadýr: Harðgerðustu lífverur Jarðar

Maðurinn

Þess vegna er óreiða góð fyrir sköpunargáfu þína

Lifandi Saga

Gallerí: Baráttan við náttúruöflin

Lifandi Saga

Miðaldir voru tími svikahrappanna: Sérfróðir í svikum og prettum 

Lifandi Saga

Hversu margir bjuggu í Ameríku þegar Kólumbus bar að garði?

Lifandi Saga

Öll von slokknaði í fangelsum 19. aldarinnar

Maðurinn

Streita veldur ofþyngd

ÁSKRIFT AÐ VÍSINDI.IS

Prófaðu í 14 daga ókeypis!

  • Fullur aðgangur að vefnum okkar með rúmlega 3000 skemmtilegum og spennandi greinum um allt milli himins og jarðar á sviði vísinda og sögu.
  • Lifandi vísindi/Lifandi saga í rafrænni útgáfu á vefnum,
  • Aðeins 1.790 krónur á mánuði.
  • Engin skuldbinding – Þú getur hætt hvenær sem er.

ÁSKRIFT AÐ TÍMARITINU

Þrjú tölublöð + gjöf: Skemmtilegur sjónauki
  • Þrjú næstu tölublöð Lifandi vísinda/Lifandi sögu – sent heim til þín – eins færðu lítinn og vandaðan sjónauka að gjöf.
  • Fullur aðgangur að vefnum okkar – visindi.is – með tæplega 3000 skemmtilegum og spennandi greinum um allt milli himins og jarðar á sviði vísinda og sögu.
  • Spennandi greinar og flottar myndir sem svala forvitni þinni.
  • Þú getur hætt eftir tilboðið en ef þú heldur áfram skuldbindur þú þig aðeins þrjú tölublöð í einu og þú getur sagt upp hvenær sem sem og klárar þá tímabilið sem er hafið.
  • Venjuleg áskrift – þrjú tölublöð – kostar aðeins 7.590 kr

Sjónauki og þriggja blaða áskrift – Alls 3.800 kr.

Lifandi vísindi

Lyf

Lifandi saga

Search

Ertu áskrifandi að tímaritinu?

Áskrifendur að tímaritinu geta fengið frían aðgang að vefnum hér.

Innskráning

Ertu áskrifandi að tímaritinu?

Áskrifendur að tímaritinu geta fengið frían aðgang að vefnum hér.