Maðurinn

Á þessu þekkjast siðblindar konur

Flestir siðblindingjar eru karlmenn en konurnar eru bæði mun stjórnsamari og um leið háttvísari og lævísari en siðblindir karlmenn. Þær geta jafnvel verið hættulegri.

BIRT: 02/11/2024

Almennt er talið að 0,5-1% fólks þjáist af þeirri persónuleikaröskun sem lýsir sér sem félagsleg lesblinda og við köllum almennt einfaldlega siðblindu.

 

Bíómyndapersónur á borð við Hannibal Lecter eða Patrick Bateman eru í huga margra hin fullkomnu dæmi um siðblinda einstaklinga – siðblinda karlmenn. Og flestar rannsóknir á þessu sviði benda líka til þess að flestir siðblindingjar séu karlmenn.

 

Við tökum miklu síður eftir siðblindum konum en það er hins vegar full ástæða til að vera á varðbergi gagnvart þessari persónuleikaröskun í konum.

Lævís stjórnun siðblindra kvenna

Siðblind kona er ólík siðblindum karlmanni að fjölmörgu leyti. Það er einkum talið einkenna siðblinda karlmenn að vera heillandi í framkomu, hvatvísir, hafa mikið sjálfstraust en skorta hæfni til að sýna samkennd eða eftirsjá.

 

Bæði í bandarískri rannsókn og annarri norskri eru eftirfarandi eiginleikar taldir einkenna siðblindar konur.

 

  • Daður

 

  • Stjórnsemi

 

  • Víla ekki fyrir sér að stela og svíkja

 

  • Sýna árásargjarnan talsmáta

 

  • Einangra fórnarlömb sín frá félagslegri umgengni

 

  • Óstöðugt tilfinningalíf

 

  • Afbrýðisemi

 

  • Valda sýnilegum áverkum á sjálfum sér

 

Öðruvísi en siðblindir karlmenn

Siðblindar konur beita sjaldnast beinu ofbeldi en viðhafa heldur ekki jafn heillandi framkomu né hafa jafn ofboðslegt sjálfsálit og siðblindir karlmenn.

 

Það er siðblindum konum hins vegar sameiginlegt að vera mun lævísari en karlkyns siðblindingjar, t.d. við að ná stjórn á öðrum.

 

Og það er einmitt þetta sem bandaríski sálfræðingurinn Seth Meyers undirstrikar, í viðtali við Psychology Today, hvað valdi því að siðblindar konur geti verið hættulegri en karlmenn. Við erum alls ekki vön því að líta á konur sem siðblindar, hvorki í félagslegu né samfélagslegu samhengi.

 

Seth Meyers nefnir sem dæmi að fæstir myndu nokkru sinni láta sér detta í hug að kvenkyns hjúkrunarfræðingur gæti verið siðblindingi, þvert á móti virðist okkur kona í slíku starfi vera umhyggjan uppmáluð.

 

Engu að síður getur einmitt þetta starf veitt siðblindri konu tækifæri til að fá útrás fyrir leyndar niðurrifstilhneigingar sínar – sem gæti á endanum valdið alveg jafn miklum skaða og ofbeldi karlmanna.

LESTU EINNIG

HÖFUNDUR: KARINE KIRKEBÆK

Shutterstock

Náttúran

Bakteríur örva ilminn af sumarregni

Maðurinn

3 tilgátur: Þess vegna grátum við

Alheimurinn

Af hverju er geimurinn svartur?

Náttúran

Líf við ómögulegar aðstæður undir ís

Lifandi Saga

Hvers vegna brann Hindenburg? 

Náttúran

Gætu hvítabirnir lifað af á Suðurskautslandinu?

Lifandi Saga

Hvað voru fyrsta og annað ríkið?

Lifandi Saga

El-Alamein: Montgomery sigrar Rommel í sandbylnum

Lifandi Saga

Hvers vegna geta kosningar verið svona ótrúlega jafnar?

Náttúran

Hvers vegna hafa dýr svona mismunandi augu?

Lifandi Saga

5 ástæður þess að BNA er einungis með tvo flokka 

Náttúran

Geta hvalir gleypt fólk?

ÁSKRIFT AÐ VÍSINDI.IS

Prófaðu í 14 daga ókeypis!

  • Fullur aðgangur að vefnum okkar með rúmlega 3000 skemmtilegum og spennandi greinum um allt milli himins og jarðar á sviði vísinda og sögu.
  • Lifandi vísindi/Lifandi saga í rafrænni útgáfu á vefnum,
  • Aðeins 1.790 krónur á mánuði.
  • Engin skuldbinding – Þú getur hætt hvenær sem er.

ÁSKRIFT AÐ TÍMARITINU

Þrjú tölublöð + gjöf: Skemmtilegur sjónauki
  • Þrjú næstu tölublöð Lifandi vísinda/Lifandi sögu – sent heim til þín – eins færðu lítinn og vandaðan sjónauka að gjöf.
  • Fullur aðgangur að vefnum okkar – visindi.is – með tæplega 3000 skemmtilegum og spennandi greinum um allt milli himins og jarðar á sviði vísinda og sögu.
  • Spennandi greinar og flottar myndir sem svala forvitni þinni.
  • Þú getur hætt eftir tilboðið en ef þú heldur áfram skuldbindur þú þig aðeins þrjú tölublöð í einu og þú getur sagt upp hvenær sem sem og klárar þá tímabilið sem er hafið.
  • Venjuleg áskrift – þrjú tölublöð – kostar aðeins 7.590 kr

Sjónauki og þriggja blaða áskrift – Alls 3.800 kr.

Lifandi vísindi

Lyf

Lifandi saga

Search

Ertu áskrifandi að tímaritinu?

Áskrifendur að tímaritinu geta fengið frían aðgang að vefnum hér.

Innskráning

Ertu áskrifandi að tímaritinu?

Áskrifendur að tímaritinu geta fengið frían aðgang að vefnum hér.

Viltu lesa greinina?

Fáðu aðgang að visindi.is

Ókeypis í 2 vikur!

Eftir það kostar eingöngu 1.790 kr. á mánuði og enginn uppsagnarfrestur.

Innifalið er aðgangur að öllum greinum á vefnum ásamt rafræna útgáfu af nýjustu tölublöðunum.

  • Fullur aðgangur að visindi.is
  • Frábærar myndir og myndbönd
  • Aðgengilegt í öllum snjalltækjum
  • Fullur aðgangur að gríðarlegu magni eldri greina
  • Nýjustu tölublöðin í rafrænu formi

Núverandi áskrifendur að tímaritinu fá að sjálfsögðu ókeypis aðgang að vefnum og þurfa bara að virkja aðgang sinn hér.

Ef þú ert þegar áskrifandi að visindi.is