„Ich bin ein Berliner“
Kalda stríðið er í hámarki. Ári áður var búið að reisa Berlínarmúrinn og hvergi er spennan milli stórveldanna jafn mikil og greinileg heldur en í Vestur – Berlín. Fyrir framan ráðhúsið heitir forseti BNA, John F. Kennedy, stuðningi sínum gagnvart íbúum í sovéska hluta Berlínar með þessum frægu orðum. Ræðan verður táknræn fyrir Kalda stríðið.
Schöneberg, Vestur – Berlín
26. júlí 1963
Sverðið í hakakrossinum
30 árum eftir lok síðari heimsstyrjaldarinnar skipuleggur DDR hátíðarhöld til að heiðra 80.000 sovéska hermenn sem féllu í bardaganum um Berlín. Aðalhlutverki kvöldsins gegnir 12 metra há stytta af sovéskum hermanni sem hefur molað risavaxinn hakakross undir fótum sér.
Austur – Berlín, Þýskaland
7. maí 1975
Síðasta vaktin á múrnum
Tveimur dögum áður féll Berlínarmúrinn. Ekki náðist að tilkynna landamæravörðum þetta áður en Austur-Þjóðverjar kröfðust í þúsundatali að fá að komast til Vestur – Berlínar. Mikil ringulreið ríkir þannig að ráðalausum hermönnum er skipað að tryggja múrinn gegn skemmdarverkum. Fáeinum tímum síðar eru þeir horfnir á braut og niðurbrot múrsins hefst fyrir alvöru.
Berlín, Þýskaland
11. nóvember, 1989
Landamæraverðir rífa niður múrinn
Eftir þrýsting frá þúsundum DDR – íbúa opna austurþýskir landamæraverðir kvöldið þann 9. nóvember 1989 hliðin milli Austur – og Vestur Berlínar. Til þess að opna fleiri gáttir milli austurs og vesturs lét ríkisstjórnin á næstu dögum rífa niður marga hluta múrsins sem náði yfir 100 kílómetra, en í raun var Berlínarmúrinn fyrir löngu fallinn.
Berlín, Þýskaland
11. nóvember 1989