Það getur verið freistandi að gefa hundinum þínum mat sem er nær því sem finnst í náttúrunni. En vísindamenn hafa nú komist að því að aukin áhætta er á sýklalyfjaónæmum bakteríum þegar gefið er hráfóður, samanborið við hefðbundið hundafóður.
Rannsókn við háskólann í Bristol hefur varpað ljósi á þetta vandamál. Alls tóku 600 fullorðnir hundar og 223 hvolpar þátt í tvíþættri rannsókninni.
Eigendur söfnuðu saursýnum hundanna sem síðan voru rannsökuð með tilliti til lífsstílsþátta, upplýsinga eigenda um umhverfi hundanna og tilvist sýklalyfjaónæmra e-coli gerla.
Rannsóknin leiddi í ljós að hundarnir sem fengu óunnið kjöt voru með fleiri sýklalyfjaónæmar e-coli bakteríur í hægðum sínum samanborið við hunda sem fengu hefðbundið, þurrkað hundafóður. Og þessir sýklar geta smitast til eigenda sinna.
Orsök fjölda sjúkdóma
„E-coli er að finna í þörmum allra dýra og manna. En e-coli er líka orsök margra sjúkdóma, þar á meðal alvarlegra sjúkdóma,“ segir Matthew Avison, prófessor í sameindasýklafræði og meðhöfundur rannsóknarinnar.
Rannsakendur hvetja hundaeigendur sem kjósa hráfóður fyrir hunda sína að vera sérstaklega varkára hvað varðar hreinlæti hundsins og förgun afganga.
LESTU EINNIG
„Dýr og menn deila bakteríum. Hundaeigendur ættu að viðhalda góðu hreinlæti – og með því að sleppa að gefa hundinum hráfóður stuðlarðu að því,“ segir Kristen Reyher, prófessor í dýralækningum við dýralæknaskólann í Bristol.
Rannsóknin sýndi einnig að fyrir hunda í sveit var bakteríuvandamálið en verra. Fyrir hunda í þéttbýli var e-coli hættan mismikil.