Náttúran

Hundurinn þinn skynjar mun á tungumálum

Heilaskannanir sýna að hundurinn þinn hefur máleyra og flóknari málskilning en áður hefur verið álitið.

BIRT: 07/10/2023

„Sittu“ og „sæktu“ eru meðal þeirra orða sem flestir hundar þekkja og skilja. Hingað til hefur almennt verið álitið að með nokkrum lærðum undantekningum skynji þessi besti vinur mannsins töluð orð einna helst sem bla bla bla.

 

Heilaskannanir sýna nú að hundurinn tekur eftir því ef þú skiptir yfir í annað tungumál.

 

Þar með hafa vísindamenn í fyrsta sinn sýnt fram á hæfni til að greina milli tungumála hjá öðrum dýrum en öpum og gætu verið komnir á slóð þróaðs málskilnings hjá þessum ferfættu góðvinum okkar.

 

Hundsheilinn skynjar framandi tungumál

Heilasérfræðingar hjá Eötvös Lorand-háskóla í Ungverjalandi rannsökuðu fimm hunda af kyninu golden retriever, sex border collie-hunda, tvo ástralska fjárhunda, labradoodle-hund, einn af kyninu cockerspaniel og þrjá blendinga. Allir hundarnir voru á aldrinum 3-11 ára.

 

Hundarnir 18 voru látnir hlusta á þrjár ólíkar setningar úr barnabókinni Litli prinsinn á:

 

  • Spænsku

 

  • Ungversku

 

  • Bullmáli

 

Bullsetningarnar voru þannig gerðar að taktur og hljómfall samræmdist spænsku eða ungversku en orðin sjálf voru merkingarlaus.

 

Myndband: Hundurinn Kun-kun (border collie) veitti innblástur

Hugmyndin að rannsókninni kviknaði þegar dýraheilasérfræðingur flutti frá Mexíkó til Ungverjalands með border collie-hundinn Kun-kun og undraðist að þessi 4,5 ára hundur skyldi greina mun á tungumálunum.

Meðan hundarnir hlustuðu á setningar var fylgst með heilanum í MR-skanna og á grundvelli blóðflæðis mátti sjá hvaða heilastöðvar virkjuðust.

 

Þegar hundarnir hlustuðu á spænsku og ungversku virkjuðust þær heilastöðvar sem yfirleitt vinna úr hljóðum í t.d. tali eða tónlist. En þegar þeir hlustuðu á það mál sem þeir voru óvanir streymdi blóðið til heilastöðva sem vinna úr flóknari málhljóðum.

 

Í mönnum greina þessar heilastöðvar mynstur og reglubundinn takt í tungumáli. Bullmálið leiddi til mjög aukinnar virkni í þessum heilastöðvum.

 

Sameiginleg þróun gæti hafa þroskað máleyra

Rannsóknirnar sýna að hundar greina mynstur í tungumáli, svo sem takt og áherslur en þekkja ekki bara þau orð sem þeim hafa verið kennd.

 

Niðurstöðurnar gefa líka til kynna að hundar beri kennsl á merkingarleysi og það atriði hyggjast vísindamennirnir kanna nánar.

 

Áður hafa rannsóknir sýnt að hundar skilja skipanir án tillits til hvernig og í hvaða tónhæð hún er gefin.

 

Hið endanlega takmark er að komast að því hvort málskynjun og skilningur hafi þróast sjálfstætt hjá hundum og mönnum eða hvort þetta sé miklu eldra og hluti af sameiginlegri þróun fyrir aðskilnað tegunda.

LESTU EINNIG

HÖFUNDUR: Jeppe Wojcik

Eniko Kubinyi

Náttúran

Bakteríur örva ilminn af sumarregni

Náttúran

Hér eru aðeins leyfð kvendýr og afkvæmi þeirra: Kvennasambýli hafsins

Náttúran

Hvernig myndast haglél?

Maðurinn

Hvað er stífkrampi?

Alheimurinn

Af hverju eru plánetur og sólir alltaf kúlulaga?

Lifandi Saga

„Pólskir riddarar réðust á þýska skriðdreka“

Náttúran

Finna skordýr sársauka?

Maðurinn

Heilaþvottur á að losa þig við versta óttann

Maðurinn

Sannleikurinn um heilabilun

Maðurinn

3 tilgátur: Þess vegna grátum við

Alheimurinn

Af hverju er geimurinn svartur?

Náttúran

Líf við ómögulegar aðstæður undir ís

ÁSKRIFT AÐ VÍSINDI.IS

Prófaðu í 14 daga ókeypis!

  • Fullur aðgangur að vefnum okkar með rúmlega 3000 skemmtilegum og spennandi greinum um allt milli himins og jarðar á sviði vísinda og sögu.
  • Lifandi vísindi/Lifandi saga í rafrænni útgáfu á vefnum,
  • Aðeins 1.790 krónur á mánuði.
  • Engin skuldbinding – Þú getur hætt hvenær sem er.

ÁSKRIFT AÐ TÍMARITINU

Þrjú tölublöð + gjöf: Skemmtilegur sjónauki
  • Þrjú næstu tölublöð Lifandi vísinda/Lifandi sögu – sent heim til þín – eins færðu lítinn og vandaðan sjónauka að gjöf.
  • Fullur aðgangur að vefnum okkar – visindi.is – með tæplega 3000 skemmtilegum og spennandi greinum um allt milli himins og jarðar á sviði vísinda og sögu.
  • Spennandi greinar og flottar myndir sem svala forvitni þinni.
  • Þú getur hætt eftir tilboðið en ef þú heldur áfram skuldbindur þú þig aðeins þrjú tölublöð í einu og þú getur sagt upp hvenær sem sem og klárar þá tímabilið sem er hafið.
  • Venjuleg áskrift – þrjú tölublöð – kostar aðeins 7.590 kr

Sjónauki og þriggja blaða áskrift – Alls 3.800 kr.

Lifandi vísindi

Lyf

Lifandi saga

Search

Ertu áskrifandi að tímaritinu?

Áskrifendur að tímaritinu geta fengið frían aðgang að vefnum hér.

Innskráning

Ertu áskrifandi að tímaritinu?

Áskrifendur að tímaritinu geta fengið frían aðgang að vefnum hér.

Viltu lesa greinina?

Fáðu aðgang að visindi.is

Ókeypis í 2 vikur!

Eftir það kostar eingöngu 1.790 kr. á mánuði og enginn uppsagnarfrestur.

Innifalið er aðgangur að öllum greinum á vefnum ásamt rafræna útgáfu af nýjustu tölublöðunum.

  • Fullur aðgangur að visindi.is
  • Frábærar myndir og myndbönd
  • Aðgengilegt í öllum snjalltækjum
  • Fullur aðgangur að gríðarlegu magni eldri greina
  • Nýjustu tölublöðin í rafrænu formi

Núverandi áskrifendur að tímaritinu fá að sjálfsögðu ókeypis aðgang að vefnum og þurfa bara að virkja aðgang sinn hér.

Ef þú ert þegar áskrifandi að visindi.is