Læknisfræði

Komast má hjá krabba í öðru hverju tilviki

Það er einkum þrennt sem þú þarf að sneiða hjá ef þú vilt draga úr hættunni á krabbameini. Þetta er undirstrikað í nýrri og mjög stórri rannsókn.

BIRT: 23/03/2023

Alls stafa 44% krabbameinstilvika á heimsvísu af ástæðum sem unnt væri að sneiða hjá, svo sem reykingum, mengun og áfengisneyslu.

 

Þetta sýnir ný, stór rannsókn þar sem m.a. bandarískir vísindamenn hafa rannsakað tölur um krabbameinstilvik á 204 mismunandi svæðum á hnettinum.

 

Niðurstaðan sýnir að 4,5 milljónir dauðsfalla af völdum krabbameins árið 2019 stöfuðu af ástæðum sem unnt hefði verið að komast hjá.

 

Reykingar, áfengisneysla og ofþyngd segja vísindamennirnir að beri langstærstan hluta ábyrgðarinnar á heimsvísu. Það staðfestir niðurstöður fjölmargra smærri rannsókna.

Um rannsóknina:
  • Vísindamennirnir á bak við rannsóknina skoðuðu tölur um áhættuþætti og krabbameinsdauðsföll frá 204 mismunandi löndum og svæðum í heiminum.

 

  • Og þó að rannsóknin sé ein sú ítarlegasta sem gerð hefur verið er erfitt að finna nákvæman fjölda dauðsfalla og krabbameinstilfella í heiminum þar sem ekki öll lönd skrá hann á sama hátt.

 

  • Jafnframt benda rannsakendurnir sjálfir á að það séu ákveðnir áhættuþættir sem hægt er að koma í veg fyrir, eins og sólarljós og sýkingar af bakteríunni helicobacter pylori, sem ekki eru teknir með í rannsókninni.

Sjáðu 10 stærstu áhættuþættina hér

Nýja rannsóknin er meðal hinna stærstu sinnar gerðar og í henni rannsökuðu vísindamennirnir tengslin milli 23 mismunandi gerða krabbameina og 34 áhættuþátta sem hægt væri að sneiða hjá, svo sem óbeinna reykinga, kyrrsetu og heilkornasnauðs mataræðis.

 

Með þessu móti tókst að skilgreina og raða upp þeim 10 áhættuþáttum sem kostuðu flest mannslíf árið 2019 og bera saman við tölur frá 2010.

 

Reykingar, áfengisneysla og ofþyngd raða sér í efstu sætin bæði árin. Dauðsföllum af völdum ofþyngdar hefur fjölgað langmest – sérstaklega á fátæktarsvæðum.

Margir þættir auka áhættu
  • Reykingar
  • Áfengisneysla
  • Ofþyngd
  • Verjulaust kynlíf
  • Örðumengun í lofti
  • Asbestryk í tengslum við vinnu
  • Heilkornasnautt mataræði
  • Mjólkursnautt mataræði
  • Óbeinar reykingar
  • Rannsóknin byggir á dauðsföllum af völdum krabbameins árið 2019.

 

 

  • Jafnframt benda rannsakendurnir sjálfir á að það séu ákveðnir áhættuþættir sem hægt er að koma í veg fyrir, eins og sólarljós og sýkingar af bakteríunni helicobacter pylori, sem ekki eru teknir með í rannsókninni.

Mennirnir taka hættulegt fyrsta sætið

Krabbamein í barka, berkjum og lungum eru efst á listanum yfir krabbamein sem komast hefði mátt hjá. Þar á eftir koma endaþarmskrabbi og krabbi í vélinda.

 

Munur eftir kynjum reyndist áberandi mikill. Hægt hefði verið að fyrirbyggja 50,6% af andlátum karla vegna krabbameins en hjá konum var talan 36,3%. Á þessu kunna vísindamennirnir enga skýringu.

 

Aðrir velta fyrir sér hvort kynin bregðist af lífeðlisfræðilegum ástæðum misjafnlega við áhættuþáttunum. Enn aðrir vísindamenn benda á að menningarmunur gæti líka átt sinn þátt.

LESTU EINNIG

HÖFUNDUR: NANNA VIUM

Shutterstock

Náttúran

Bakteríur örva ilminn af sumarregni

Menning

Hverjir höfðu fasta búsetu í Machu Picchu?

Lifandi Saga

Hitler var á efnum alla seinni heimsstyrjöld

Jörðin

Af hverju virðist Grænland álíka stórt og Ástralía?

Lifandi Saga

Hversu góðir vinir eru Kína og Rússland? 

Náttúran

Greind í heimi dýranna

Alheimurinn

Hér eru sannanirnar fyrir Miklahvelli

Náttúran

Nýfundin risaeðla með furðu smáa framlimi

Lifandi Saga

Veislubúningar varðmanna Nixons aðhlátursefni

Náttúran

Hvað eru doppleráhrif?

Spurningar og svör

Af hverju eru sítrónur súrar?

Maðurinn

Hvernig framleiðir líkaminn orku úr fæðunni?

ÁSKRIFT AÐ VÍSINDI.IS

Prófaðu í 14 daga ókeypis!

  • Fullur aðgangur að vefnum okkar með rúmlega 3000 skemmtilegum og spennandi greinum um allt milli himins og jarðar á sviði vísinda og sögu.
  • Lifandi vísindi/Lifandi saga í rafrænni útgáfu á vefnum,
  • Aðeins 1.790 krónur á mánuði.
  • Engin skuldbinding – Þú getur hætt hvenær sem er.

ÁSKRIFT AÐ TÍMARITINU

Þrjú tölublöð + gjöf: Skemmtilegur sjónauki
  • Þrjú næstu tölublöð Lifandi vísinda/Lifandi sögu – sent heim til þín – eins færðu lítinn og vandaðan sjónauka að gjöf.
  • Fullur aðgangur að vefnum okkar – visindi.is – með tæplega 3000 skemmtilegum og spennandi greinum um allt milli himins og jarðar á sviði vísinda og sögu.
  • Spennandi greinar og flottar myndir sem svala forvitni þinni.
  • Þú getur hætt eftir tilboðið en ef þú heldur áfram skuldbindur þú þig aðeins þrjú tölublöð í einu og þú getur sagt upp hvenær sem sem og klárar þá tímabilið sem er hafið.
  • Venjuleg áskrift – þrjú tölublöð – kostar aðeins 7.590 kr

Sjónauki og þriggja blaða áskrift – Alls 3.800 kr.

Lifandi vísindi

Lyf

Lifandi saga

Search

Ertu áskrifandi að tímaritinu?

Áskrifendur að tímaritinu geta fengið frían aðgang að vefnum hér.

Innskráning

Ertu áskrifandi að tímaritinu?

Áskrifendur að tímaritinu geta fengið frían aðgang að vefnum hér.