Rósin skapar hugmynd að nýju efni
Kínverskir vísindamenn hafa uppgötvað að bygging krónublaða rósarinnar gerir henni kleift að halda í raka. Yfirborðið minnir nokkuð á eggjabakka í lögun og heldur vatnsdropum kyrrum, jafvel á fleti sem snýr niður. Uppgötvunina má nýta til að skapa efni sem myndar öfluga viðloðun við raka. Subtitle: Old ID: 626 463
Eru epli og rósir af sömu ætt?
Eplið og rósin tilheyra reyndar sömu plöntuættinni, nefnilega rósaætt, sem á latínu kallast Rosaceae. Þetta er stór ætt og henni tilheyra 3-4 þúsund tegundir, ýmist jurtir, runnar eða tré. Auk rósa og epla má t.d. nefna jarðarber og kirsuber. Þótt allar þessar plöntur virðist afar ólíkar hver annarri, hafa þær ákveðin sameiginleg einkenni, sem grasafræðingar […]