Öll framleiðum við þennan umrædda vökva og gjarnan nokkra lítra á dag.
Þvag er ómissandi afurð sem gagnast líkamanum við að losa sig við margs konar úrgangsefni.
Það sem margir hins vegar ekki vita er að liturinn á pissinu segir mjög vel til um heilsufar okkar.
Brúnt þvag
Þú hefur borðað vænan skammt af rabarbara, bóndabaunum eða jafnvel aloe vera.
Brúni liturinn kann einnig að vera aukaverkun ýmissa lyfjategunda, til dæmis hægðalyfja ellegar sýklalyfja.
Í alvarlegri sjúkdómstilfellum kann brúnt þvag að gefa til kynna sjúkdóm í lifur eða nýrum.
Lillablátt þvag
Já, þú last ekki skakkt. Í einstaka tilvikum getur liturinn í klósettskálinni orðið lillablár.
Litur þessi á rætur að rekja til afar sjaldgæfs sjúkdóms sem kallast purpuraveiki en galli í ensímum veldur því að þeir sem þjást af honum eiga fullt í fangi með að framleiða blóðrauða, þ.e. efnið í blóðkornunum sem sér um að flytja súrefni frá lungum og út í vefi líkamans.
Grænt þvag
Grænt piss kann að stafa af vítamínum eða lyfjum. Þá er einnig hugsanlegt að viðkomandi hafi snætt mikið magn af spergilkáli, spergli eða grænkáli.
Tiltekin litarefni í grænu grænmeti hljóta ekki upptöku í líkamanum og ganga þess í stað niður af honum með þvaginu.
Blátt þvag
Blái liturinn er einkar sjaldséður.
Blátt piss kann að eiga rætur að rekja til arfgenga barnasjúkdómsins kalkvakaóhófs sem veldur miklu kalkmagni í blóði og kallast manna á meðal einnig „blá-bleiu-heilkennið“.
Bleikt/rautt þvag
Þegar þessir litir sjást er alvara á ferðum.
Rautt þvag getur stafað af blóði í þvaginu sem kann að vera til marks um ýmsa alvarlega kvilla á borð við stækkaðan blöðruhálskirtil, krabbamein í blöðru eða blýeitrun.
Orsökin kann þó einnig að vera saklausari en svo, ef t.d. viðkomandi er byrjaður á nýjum lyfjum eða hefur hámað í sig rauðrófur eða ber.
Appelsínugult þvag
Þú hefur sennilega borðað ofgnótt gulróta.
Ávextir og grænmeti sem fela í sér hátt hlutfall af C-vítamíni og karótíni, eiga oft sök á appelsínugulum lit á þvaginu.
Lyfið pýridíum sem oft er notað til að ráða niðurlögum þvagfærasýkingar, kann jafnframt að vera sökudólgurinn.
Hunangslitað þvag
Þú ættir að skella í þig vatnsglasi eða jafnvel nokkrum glösum.
Það er umbrotsefnið úróbílín sem sér til þess að þvag okkar verður gult á að líta.
Því meira magn sem leynist af úróbílíni í þvaginu, þeim mun meira vatn hefur líkaminn sogað í sig til að hann þorni ekki upp og þvagið verður dekkra.
Litlaust þvag
Þú hefur sennilega drukkið mikið magn af vatni, áfengi eða koffíni.
Áfengi og koffín koma í veg fyrir að líkaminn geti sogað í sig vökva og fyrir vikið berst meira vatn úr líkamanum með þvaginu.
Gegnsætt, gult þvag
Þú býrð yfir nægilegu vökvamagni og heilsan er góð!