Árlega smitast 390 milljónir manna af svonefndri beinbrunaveiru (dengue) og hjá Alþjóðaheilbrigðisstofnuninni WHO er dengue-veikin talin meðal tíu ógnvænlegustu sjúkdóma heims.
Smitið berst með moskítóflugum og veldur einkennum sem líkjast inflúensu en getur líka valdið lífshættulegum blæðingum. Árlega deyja um 20.000 manns úr sjúkdómnum.
Vísindamenn hafa sýkt mörg þúsund moskítóflugur með bakteríu sem vinnur bug á dengue-veirunni. Aðferðin hefur dregið talsvert úr smiti.
Samtökin World Mosquito Program hafa frá 2011 gert tilraunir með að sýkja flugurnar sem bera smitið með bakteríu sem vinnur bug á veirunni í flugunni sjálfri.
Bakterían kallast Wolbachia og hún tekur til sín mikilvæg efni, t.d. kólesteról sem veiran þarf á að halda til að fjölga sér.
Sýkt moskítófluga dreifir því ekki veirunni. Þegar flugurnar fjölga sér berst bakterían áfram til næstu kynslóðar og veiran verður þannig á endanum heimilislaus.
Aðferðin hefur einn veikleika
Í ýmsum löndum hafa verið gerðar tilraunir í mjög stórum stíl með því að sprauta Wolbachia í mikinn fjölda moskítóeggja sem síðan voru látin klekjast. Nú hafa samtökin birt fyrstu niðurstöður sínar.
Á svæðum í Brasilíu og Indónesíu hefur tekist að fækka dengue-tilvikum um allt að 76%.
Því miður sýna niðurstöðurnar líka að á mjög heitum svæðum, t.d. í Víetnam, flyst bakterían ekki nógu vel milli kynslóða.
Vísindamennirnir reyna nú að ráða bót á þessum vanda með því að rækta fram nýjar gerðir bakteríunnar sem þoli hitann betur.