Árið 2020 var hópur hreindýraveiðimanna við veiðar á Bolshoy Lyakhovsky-eyju, norður af Síberíu í Rússlandi. Loftslagsbreytingar undanfarin ár hafa orðið til þess að stór hluti íssins á svæðinu hefur bráðnað og þar kom í ljós frosið lík af birni sem þeim þótti grunsamlega gamalt.
Nú eru líffræðingar og sérfræðingar frá Lazarev Mammoth safninu í Yakutsk að rannsaka björninn og fyrstu niðurstöður eru þær að dýrið sé 3.460 ára gamalt.
„Þessi uppgötvun er algjörlega einstök – fyrsti algjörlega ósnortinn líkami brúnbjarnar frá fornöl,“ útskýrir Maxim Cheprasov, yfirmaður rannsóknarstofu safnsins.
Myndskeið: Sjáið vísindamennina rannsaka hin 3.500 ára gamla brúnbjörn
Vísindamenn vilja lífga björnin við
DNA-greiningar á þessum ótrúlega vel varðveitta birni sýna að hann er ekkert sérlega ólíkur nútíma brúnbirni sem lifir á svipuðum slóðum.
Vísindamennirnir vonast til að komast að því einn daginn hversu mjög björninn líkist nútímabjörnum. Líkami hans var það vel varðveittur að vísindamenn telja líkur á þí að hægt verði klóna hinn látna björn. Í því tilviki mun það vera fyrsta klónaða dýrið frá fornöld.
„Ég er viss um að við munum fljótlega geta byrjað að rækta sýnin og þegar við höfum búið til lifandi frumur, verður það vonandi bylting á rannsóknum fornaldardýra,“ útskýrir frumusérfræðingurinn Hwang Woo-Suk, sem er hluti hópsins sem rannsakar björninn.