Heilsa

Morgunmatur skiptir höfuðmáli fyrir geðheilsu barna og unglinga.

Börn og ungmenni sem borða ekki morgunmat heima hjá sér að staðaldri eru í aukinni hættu á að þróa með sér geðræn vandamál.

BIRT: 12/09/2024

Auknar líkur eru á að börn og ungmenni getið þróað með sér sálfélagsleg vandamál ef þau sleppa morgunmatnum eða borða hann ekki heima.

 

Þetta er mjög skýrt að mati nýdoktorsins José Francisco López-Gil sem starfar hjá spænska háskólanum Castilla-La Mancha í Ciudad Real.

 

Lopez-Gil hefur, ásamt þremur öðrum vísindamönnum frá Englandi og Spáni, greint gögn úr 3.772 svörum við heilsuspurningum í Spænsku heilbrigðiskönnuninni frá árinu 2017.

 

Þeir fundu bein tengsl á milli geðheilsu og neyslu morgunverðar – ekki síst hvort ungt fólk borðaði morgunmatinn heima eða að heiman.

 

Samkvæmt gögnum vísindamannanna kom í ljós að meðal 4-14 ára barna er næstum jafn skaðlegt geðheilsunni að borða morgunmat að heiman og að sleppa máltíðinni alveg.

Sálfélagsleg heilsufarsvandamál eru skilgreind sem sálræn vandamál sem hafa neikvæð áhrif á félagsleg tengsl.

Sálfélagsleg vandamál

Skilgreining á sálfélagslegum vandamálum eru sálræn vandamál eða áskoranir sem hafa bein neikvæð áhrif á getu einstaklings til að mynda heilbrigð félagsleg tengsl.

 

Þetta getur m.a. falið í sér:

 

  • Lágt sjálfsálit

 

  • Kvíði

 

  • Þunglyndi

 

  • Hæfni til að sætta sig við eigin mistök

 

  • Lítil samkennd

 

  • Skapsveiflur

„Niðurstöðurnar benda til þess að það er ekki bara mikilvægt að borða morgunmat heldur skiptir líka miklu máli hvar ungt fólk borðar morgunmat – og hvað er borðað,“ segir Lopez-Gil.

 

Rannsóknarteymið veltir því fyrir sér hvort tengsl geðheilsu og hvar morgunmaturinn er borðaður geti tengst því að morgunverður sem borðaður er á hlaupum er oft ekki eins næringarríkur og morgunmatur sem foreldrar útbúa heima.

 

Jafnframt sjá rannsakendur líka tengsl á milli geðheilsu ungs fólks og félags- og fjölskyldutengsla sem skapast í kringum hollan og friðsælan morgunmat með fjölskyldunni.

 

Forðastu egg, ost og kjöt á morgunverðarborðinu

Samkvæmt rannsókninni skiptir líka máli hvað er í matinn.

 

Mjólk, te, súkkulaði, kakó, jógúrt, heilkornavörur eins og haframjöl eða múslí, ristað brauð og annað bakkelsi kom vel út.

 

Á hinn bóginn var gott að halda sig frá eggjum, skinku og ostum sem innihalda oft mikið magn fitu- og kólesteróls.

,,Til að forðast sálfélagsleg heilsufarsvandamál meðal ungs fólks ætti morgunmatur einnig að innihalda mjólkurvörur og/eða morgunkorn.”

José Francisco López-Gil

Þótt þessi gögn séu takmörkuð við Spán eru niðurstöður rannsóknarinnar í samræmi við fyrri niðurstöður en rannsakendur benda á að lönd eða svæði þar sem skólar bjóða t.d. upp á hollan og næringarríkan morgunverð geti séð aðrar niðurstöður.

 

„Niðurstöður okkar undirstrika nauðsyn þess að morgunmatur er ekki bara mikilvægur hluti af heilbrigðum lífsstíl heldur einnig mikilvægt að borða morgunmatinn heima,“ segir Lopez-Gil.

 

„Til að forðast sálfélagsleg heilsufarsvandamál hjá ungu fólki, ætti morgunmaturinn að innihalda mjólkurvörur og/eða kornvörur – og lágmarka neyslu á tilteknum dýraafurðum sem innihalda mikið af mettaðri fitu og kólesteróli.“

Næsta skref er nánari athugun á orsökum og afleiðingum þannig að skýra megi nákvæmlega hvers vegna börn og ungmenni sem sleppa morgunmat eða borða hann á hlaupum upplifa oftar sálrænar áskoranir sem geta truflað þau félagslega.

LESTU EINNIG

HÖFUNDUR: JAKOB PRIESS

Shutterstock

Náttúran

Bakteríur örva ilminn af sumarregni

Náttúran

Hér eru aðeins leyfð kvendýr og afkvæmi þeirra: Kvennasambýli hafsins

Náttúran

Hvernig myndast haglél?

Maðurinn

Hvað er stífkrampi?

Alheimurinn

Af hverju eru plánetur og sólir alltaf kúlulaga?

Lifandi Saga

„Pólskir riddarar réðust á þýska skriðdreka“

Náttúran

Finna skordýr sársauka?

Maðurinn

Heilaþvottur á að losa þig við versta óttann

Maðurinn

Sannleikurinn um heilabilun

Maðurinn

3 tilgátur: Þess vegna grátum við

Alheimurinn

Af hverju er geimurinn svartur?

Náttúran

Líf við ómögulegar aðstæður undir ís

ÁSKRIFT AÐ VÍSINDI.IS

Prófaðu í 14 daga ókeypis!

  • Fullur aðgangur að vefnum okkar með rúmlega 3000 skemmtilegum og spennandi greinum um allt milli himins og jarðar á sviði vísinda og sögu.
  • Lifandi vísindi/Lifandi saga í rafrænni útgáfu á vefnum,
  • Aðeins 1.790 krónur á mánuði.
  • Engin skuldbinding – Þú getur hætt hvenær sem er.

ÁSKRIFT AÐ TÍMARITINU

Þrjú tölublöð + gjöf: Skemmtilegur sjónauki
  • Þrjú næstu tölublöð Lifandi vísinda/Lifandi sögu – sent heim til þín – eins færðu lítinn og vandaðan sjónauka að gjöf.
  • Fullur aðgangur að vefnum okkar – visindi.is – með tæplega 3000 skemmtilegum og spennandi greinum um allt milli himins og jarðar á sviði vísinda og sögu.
  • Spennandi greinar og flottar myndir sem svala forvitni þinni.
  • Þú getur hætt eftir tilboðið en ef þú heldur áfram skuldbindur þú þig aðeins þrjú tölublöð í einu og þú getur sagt upp hvenær sem sem og klárar þá tímabilið sem er hafið.
  • Venjuleg áskrift – þrjú tölublöð – kostar aðeins 7.590 kr

Sjónauki og þriggja blaða áskrift – Alls 3.800 kr.

Lifandi vísindi

Lyf

Lifandi saga

Search

Ertu áskrifandi að tímaritinu?

Áskrifendur að tímaritinu geta fengið frían aðgang að vefnum hér.

Innskráning

Ertu áskrifandi að tímaritinu?

Áskrifendur að tímaritinu geta fengið frían aðgang að vefnum hér.

Viltu lesa greinina?

Fáðu aðgang að visindi.is

Ókeypis í 2 vikur!

Eftir það kostar eingöngu 1.790 kr. á mánuði og enginn uppsagnarfrestur.

Innifalið er aðgangur að öllum greinum á vefnum ásamt rafræna útgáfu af nýjustu tölublöðunum.

  • Fullur aðgangur að visindi.is
  • Frábærar myndir og myndbönd
  • Aðgengilegt í öllum snjalltækjum
  • Fullur aðgangur að gríðarlegu magni eldri greina
  • Nýjustu tölublöðin í rafrænu formi

Núverandi áskrifendur að tímaritinu fá að sjálfsögðu ókeypis aðgang að vefnum og þurfa bara að virkja aðgang sinn hér.

Ef þú ert þegar áskrifandi að visindi.is