Lifandi Saga

HM í fótbolta í tölum

Milljarðar manna um allan heim fylgjast nú með heimsmeistaramótinu í knattspyrnu, sem fram fer í Bandaríkjunum, Kanada og Mexíkó. Heimsmeistarakeppnin er nú haldin í 23. sinn og á að baki nær aldarlanga sögu sem er full af eftirminnilegum tölum, metum og sögulegum augnablikum. Mótið í ár er jafnframt það stærsta frá upphafi með 48 landsliðum og 104 leikjum.

BIRT: 08/07/2026

Þegar fyrsta heimsmeistaramótið í knattspyrnu var haldið í Úrúgvæ árið 1930 tók það evrópsku liðin þrjár vikur að komast á staðinn. Einn leikjanna fór fram fyrir framan aðeins 300 áhorfendur.

 

Í ár fer þessi nær aldargamla hefð fram í Bandaríkjunum, Kanada og Mexíkó.

 

HM 2026 er stærsta heimsmeistaramót sögunnar, með 48 liðum og 104 leikjum. Úrslitaleikurinn fer fram 19. júlí á New York New Jersey Stadium.

2

Tvisvar hefur HM fallið niður frá því keppnin hófst árið 1930. Fyrra skiptið var árið 1942, þegar síðari heimsstyrjöldin kom í veg fyrir mótið. Seinna skiptið var árið 1946, þegar eftirköst stríðsins gerðu það að verkum að mótið var ekki haldið.

 

751.100.000

Heimsmeistaramótið í knattspyrnu var fyrst sýnt í sjónvarpi árið 1954. Í dag er HM meðal þeirra íþróttaviðburða sem flestir fylgjast með í heiminum. Árið 2006 horfðu samtals 26,3 milljarðar áhorfenda á 64 leiki mótsins. Úrslitaleikur Ítalíu og Frakklands vakti gríðarlega athygli og 751.100.000 manns fylgdust með honum.

 

93.000

áhorfendur voru á fyrsta úrslitaleik HM í Montevideo árið 1930. Úrúgvæ vann Argentínu 4–2.

 

41.092

lögreglumenn sáu, ásamt 95.000 öryggisvörðum, um öryggisgæslu á HM í Suður-Afríku árið 2010. Fjórar ómannaðar léttflugvélar fylgdust með úr lofti og sendu myndir til lögreglustöðva við leikvangana. Suður-afrísk stjórnvöld veittu lögreglunni jafnvirði um níu milljarða íslenskra króna til að efla öryggisgæslu á mótinu.

 

4

Brasilíumaðurinn Mário Jorge Zagallo vann heimsmeistaratitilinn fjórum sinnum. Tvisvar sem leikmaður, árin 1958 og 1962, einu sinni sem landsliðsþjálfari árið 1970 og einu sinni sem aðstoðarþjálfari árið 1994. Zagallo var þekktur fyrir hjátrú sína gagnvart tölunni 13. Hann taldi að Brasilía hefði unnið HM árin 1958 og 1994 vegna þess að síðustu tveir tölustafir áranna lögðust saman í 13 (5+8=13 og 9+4=13).

 

10,8

sekúndur liðu þar til Tyrkinn Hakan Şükür skoraði fljótasta mark í sögu HM. Markið kom í leiknum um bronsið gegn Suður-Kóreu árið 2002 og tryggði Tyrklandi eina verðlaun landsins á heimsmeistaramóti. Şükür skoraði alls 383 mörk á ferlinum og er meðal markahæstu leikmanna nútímafótboltans. Þar af skoraði hann 51 mark fyrir tyrkneska landsliðið.

 

48

Á fyrsta heimsmeistaramótinu í Úrúgvæ árið 1930 tóku aðeins 13 lið þátt. Aðeins fjögur þeirra komu frá Evrópu, enda tók siglingin yfir Atlantshafið um þrjár vikur. Á næstu tveimur heimsmeistaramótum, sem fóru fram í Evrópu, var Brasilía eina liðið utan Evrópu sem tók þátt. Á HM 2026 reyndu 211 aðildarlönd að tryggja sér sæti í lokakeppninni. 48 þeirra tókst það.

 

56

sekúndur eru skemmsti tími sem liðið hefur frá upphafi leiks þar til leikmaður hefur verið rekinn af velli á HM. Það met á Úrúgvæinn José Batista, sem fékk rautt spjald gegn Skotlandi árið 1986 eftir aðeins 56 sekúndna leik.

 

8

Aðeins átta þjóðir hafa orðið heimsmeistarar í knattspyrnu. Af þeim 22 heimsmeistaramótum sem lokið er hefur Brasilía unnið fimm sinnum. Ítalía og Þýskaland hafa orðið heimsmeistarar fjórum sinnum hvort land, Argentína þrisvar, Frakkland og Úrúgvæ tvisvar, en England og Spánn einu sinni hvort.

 

Ísland hefur aðeins einu sinni komist í lokakeppni HM, árið 2018 í Rússlandi. Fyrsti leikur landsliðsins varð samstundis sögulegur þegar Ísland gerði 1–1 jafntefli við Argentínu. Markvörðurinn Hannes Þór Halldórsson varði þá vítaspyrnu frá Lionel Messi og tryggði Íslendingum sitt fyrsta stig á heimsmeistaramóti.

 

23

Brasilía hefur tekið þátt í öllum 23 heimsmeistaramótunum frá 1930 og er eina þjóðin sem hefur aldrei misst af lokakeppni HM. Brasilía á einnig metið yfir flesta heimsmeistaratitla (5), flestar úrslitaleiki (7) og flesta leiki á HM. Landið hefur unnið flesta leiki í sögu mótsins og skorað flest mörk.

 

18

Just Fontaine skoraði hvorki meira né minna en 13 mörk á heimsmeistaramótinu í Svíþjóð árið 1958 og á enn metið yfir flest mörk sem leikmaður hefur skorað í einni lokakeppni HM. Það met virðist ólíklegt að verði slegið á mótinu sem nú stendur yfir.

 

Metið yfir flest mörk í sögu HM hefur hins vegar nýlega fallið. Argentínumaðurinn Lionel Messi er nú markahæsti leikmaður í sögu heimsmeistaramótsins með 18 mörk. Frakkinn Kylian Mbappé hefur jafnað gamla metið með 16 mörkum og deilir öðru sætinu með Þjóðverjanum Miroslav Klose. Brasilíumaðurinn Ronaldo er í fjórða sæti með 15 mörk og Þjóðverjinn Gerd Müller í því fimmta með 14. Þar sem HM 2026 er enn í gangi gæti röðin þó enn breyst áður en mótinu lýkur.

HÖFUNDUR: Guðbjartur Finnbjörnsson

© Wikimedia/Shutterstock

Nýskráning

Skráning

Ertu áskrifandi að tímaritinu?

Áskrifendur að tímaritinu geta fengið frían aðgang að vefnum hér.

ÁSKRIFT AÐ VÍSINDI.IS

Prófaðu í 14 daga ókeypis!

  • Fullur aðgangur að vefnum okkar með rúmlega 3000 skemmtilegum og spennandi greinum um allt milli himins og jarðar á sviði vísinda og sögu.
  • Lifandi vísindi/Lifandi saga í rafrænni útgáfu á vefnum,
  • Aðeins 1.790 krónur á mánuði.
  • Engin skuldbinding – Þú getur hætt hvenær sem er.

ÁSKRIFT AÐ TÍMARITINU

Þrjú tölublöð + gjöf: Skemmtilegur sjónauki
  • Þrjú næstu tölublöð Lifandi vísinda/Lifandi sögu – sent heim til þín – eins færðu lítinn og vandaðan sjónauka að gjöf.
  • Fullur aðgangur að vefnum okkar – visindi.is – með tæplega 3000 skemmtilegum og spennandi greinum um allt milli himins og jarðar á sviði vísinda og sögu.
  • Spennandi greinar og flottar myndir sem svala forvitni þinni.
  • Þú getur hætt eftir tilboðið en ef þú heldur áfram skuldbindur þú þig aðeins þrjú tölublöð í einu og þú getur sagt upp hvenær sem sem og klárar þá tímabilið sem er hafið.
  • Venjuleg áskrift – þrjú tölublöð – kostar aðeins 7.590 kr

Sjónauki og þriggja blaða áskrift – Alls 3.800 kr.

Lifandi vísindi

Lyf

Lifandi saga

Search

Ertu áskrifandi að tímaritinu?

Áskrifendur að tímaritinu geta fengið frían aðgang að vefnum hér.

Innskráning

Ertu áskrifandi að tímaritinu?

Áskrifendur að tímaritinu geta fengið frían aðgang að vefnum hér.