Bandaríkin eru langt frá því að vera eini staðurinn þar sem kólastríðin hafa farið fram. Í gegnum söguna hafa bandarísku risarnir Coca-Cola og Pepsi keppt við staðbundin gosdrykkjarmerki um hylli neytenda víðs vegar um heiminn.
Á tímum kalda stríðsins framleiddu Sovétríkin og Austur-Þýskaland til dæmis sínar eigin kólavörur, og í Perú hefur Inca Kola staðið gegn Coca-Cola í nærri 100 ár.
Yfirleitt hafa Coca-Cola og Pepsi þó unnið þessi staðbundnu „orrustu“ og viðhaldið hnattrænu yfirráð sín á markaði.
Hér á eftir er sýnishorn af þeim kólavörum sem hafa verið í samkeppni við gosdrykkjarisana.
Barr Cola, Skotland, 1875
Gosdrykkurinn – sem áður hét Strike Cola – er enn til sölu í breskum stórmörkuðum.
Skotar fengu smekk fyrir kóla
Heilum 11 árum áður en Coca-Cola leit dagsins ljós í Bandaríkjunum gátu Bretar árið 1875 notið kóladrykks sem var framleiddur af skoska fyrirtækinu A.G. Barr. Kólað sló sérstaklega í gegn hjá veitingamönnum sem seldu fish’n’chips. Enn í dag er hægt að kaupa Barr Cola í Bretlandi.
Dr. Pepper, Bandaríkjunum, 1885
Dr. Pepper – sem hefur kirsuberjabragð – er einn mest seldi gosdrykkurinn í heiminum.
Kirsuberjadrykk má ekki kalla kóla
Lyfjafræðingurinn Charles Alderton frá Texas bjó til kirsuberjagosið Dr. Pepper sem líktist kóladrykk. Árið 1963 úrskurðaði US Food and Drug Administration (FDA) hins vegar að ekki mætti kalla drykkinn kóladrykk, þar sem hann innihélt ekki kólahnetur.
Coke-Cola, BNA, 1886
Í yfir 100 ár hefur Coca-Cola verið leiðandi kóla vörumerki í heiminum.
Vinsælasti gosdrykkurinn í heiminum
Apótekari, Dr. John Stith Pemberton, fann upphaflega Coca-Cola sem lyf, til dæmis gegn höfuðverk. Í dag er Coca-Cola vinsælasti gosdrykkur í heiminum, með nærri 2 milljarða seldra drykkja á hverjum degi í yfir 200 löndum.
Pepsi, BNA, 1893
PepsiCo þénar meira en The Coca-Cola Company – en það stafar ekki eingöngu af kólavörunni.
Helsti keppinauturinn er tvöfalt stærri
Á heimsvísu er Pepsi næst mest seldi gosdrykkurinn. En PepsiCo – fyrirtækið á bak við vöruna – selur í dag einnig snakk og matvæli. Þetta skilar PepsiCo árlegum tekjum upp á um 92 milljarða Bandaríkjadala, sem er nærri tvöfalt meira en hjá The Coca-Cola Company.
Foxton Fizz Cola, Nýja Sjáland, 1918
Frá 1995 hafa flöskur fyrir kólavörur fyrirtækisins verið endurvinnanlegar.
Gosi dreift eins og mjólk
Þegar Coca-Cola kom til Nýja Sjálands á 6. áratugnum brást gosdrykjaframleiðandinn Foxton Fizz við með því að bjóða heimsendingu á kóla á sama hátt og mjólk var dreift. Foxton Fizz er enn til en er ekki lengur keyrt heim að dyrum.
Inca Kola, Perú, 1935
Öfugt við aðrar kóla-vörur er Inca Kola ljóst á litinn og kallast því einnig kampavíns-kóla.
Inkar slá Bandaríkjamönnum við
Árið 1936 var í fyrsta sinn hægt að kaupa Coca-Cola í Perú en árið áður hafði breski innflytjandinn Joseph Lindley hleypt af stokkunum Inca Kola. Æ síðan hafa þessir tveir drykkir barist um að verða uppáhald Perúbúa. Árið 2023 hafði Inca Kola naumt forskot.
Jolly Cola, Danmörk, 1959
Með Jolly Cola – sem sést hér ofan á húsinu – reyndu brugghúsin í Danmörku að þrýsta Coca-Cola út af dönskum markað.
„Segðu Jolly við kólað þitt!“
Til að keppa við Coca-Cola í Danmörku tóku 18 brugghús sig saman árið 1959 undir nafninu Dansk Coladrik A/S og bjuggu til Jolly Cola. Á 7. áratugnum og þeim 8. hafði Jolly Cola enn ca. 60 prósent markaðshlutdeild en á 9. Áratugnum varð Coca-Cola uppáhalds kóladrykkur Dana.
Kofola, Tékkóslóvakía, 1960
Gosdrykkurinn er gjarnan borinn fram í þykku glasi með handföngum, sem minnir helst á bjórkrús.
Kaffi-kóla bak við járntjaldið
Á tímum kalda stríðsins drakk ungt fólk í Tékkóslóvakíu Kofola – brúnt gos úr afgangsafurð úr kaffiframleiðslu. Kofola lifði af endalok kalda stríðsins og í dag er fyrirtækið einn stærsti gosdrykkjaframleiðandinn í mið- og austur Evrópu.
Club Cola, Austur-Þýskaland, 1967
Fall Berlínarmúrsins ógnaði tilvist austurþýsks kóladrykkjar.
Kólaframleiðsla í DDR
Austur-þýsk stjórnvöld létu þróa Club Cola sem andsvar við vinsælum gosdrykkjum vesturlanda. Eftir fall Berlínarmúrsins hvarf Club Cola um tíma en það kom aftur á þýskan markað árið 1992 og er enn í boði í dag.
Baikal, Sovétríkin, 1969
Eftir að Pepsi kom inn á sovéska markaðinn var bragð Baikal breytt til að gera drykkinn samkeppnishæfari.
Ólympíuleikarnir fá opinberan gosdrykk
Brúna gosið Baikal var svar Sovétríkjanna við Coca-Cola og Pepsi. Gosdrykkurinn var hinn opinberi drykkur Ólympíuleikanna í Moskvu 1980, þó svo Pepsi hafi sjö árum áður hafið innreið sína í landið. Coca-Cola varð fyrst fáanlegt í Sovétríkjunum árið 1986.
Thums Up, Indland, 1977
Þegar Coca-Cola ákvað að yfirgefa Indland var Thums Up reiðubúið að leggja undir sig markaðinn í þessu stóra landi.
Coca-Cola yfirgaf risamarkað
Ríkisstjórn Indlands setti Coca-Cola úrslitakosti árið 1977: Opinberið uppskriftina eða farið úr landi. Coca-Cola lét sig hverfa. Sama ár kom Thums Up í sölu og nýi kóladrykkurinn náði nánast einokunarstöðu á Indlandi. Coca-Cola sneri aftur til Indlands árið 1993 og keypti Thums Up.
Future Cola, Kína, 1998
Kínverski kóladrykkurinn er meðal mest seldu drykkja í heimalandinu.
Kínverskt kóla selt í Bandaríkjunum
Með slagorðinu „Kóla hinnar kínversku alþýðu“ markaðssetti Hangzhou Wahaha Group gosdrykkinn Future Cola árið 1998 sem keppinaut við Coca-Cola og Pepsi. Future Cola á í dag 12-15 prósent af kínverska markaðnum og er selt í Bandaríkjunum undir nafninu Kína Cola.
Mecca Cola, Frakkland, 2002
Franski-Túnisbúinn Tawfik Mathlouthi (ekki á mynd) kynnti gosdrykkinn upphaflega í Frakklandi.
Ágóðinn fer til Palestínu
Drykkurinn er m.a. seldur í mið-austurlöndum og 10 prósent af hagnaðinum af sölunni rennur til mannúðarstarfs í Palestínu. „Allir sem kaupa flösku af Mekka-Cola, mótmæla með því pólitík Bandaríkjanna og glæpum Zíonista“, hefur upphafsmaður drykkjarins lýst yfir.
Fritz-kóla, Þýskaland, 2003
Kóladrykkurinn með hátt koffíninnihald er vinsæll gosdrykkur meðal háskólanema í stórborgum Evrópu.
Hip-og-cool kóla fullt af koffíni
Tveir þýskir námsmenn frá Hamborg standa á bak við tískukóladrykkinn sem er ekki eins sætur og venjulegt gos og hefur hátt koffíninnihald. Fritz-kóla inniheldur 25 mg af koffíni pr 100 grömm – u.þ.b. tvisvar og hálfu sinnum meira en Coca Cola.
Red Bull Simply Cola, Austurríki, 2008
Þýsk matvælayfirvöld urðu vör við leifar af kókaíni í kóladrykknum frá Red Bull, sem olli vandkvæðum.
Kókaín gefur vængi
Orkudrykkjaframleiðandinn setti Red Bull Simply Cola á markað árið 2008. Árið eftir var drykkurinn um tíma fjarlægður úr hillum víða í Þýskalandi, þar sem matvælayfirvöld fundu vott af kókaíni í drykknum – 0,13 mg í hverri dós.
Lestu meira um Coke-Cola og aðra kóladrykki
- Mark Pendergrast: For God, Country & Coca-Cola: The Definitive History of the Great American Soft Drink and the Company That Makes It, Basic Books, 2024