Lifandi Saga

DNA-rannsókn á meintu líkklæði Jesú leiðir í ljós óvænta niðurstöðu

Frá miðöldum hafa vísindamenn rannsakað klæðið sem trúaðir telja bera daufa mynd af hinum látna Kristi. Nú hafa umfangsmiklar DNA-rannsóknir varpað nýju og óvæntu ljósi á hið svokallaða líkklæði frá Tórínó.

Fyrst er minnst á klæðið á 14. öld og frá árinu 1578 hefur það verið varðveitt í dómkirkjunni í Tórínó. Árið 1989 var það aldursgreint með kolefnisaldursgreiningu og reyndist vera frá tímabilinu 1260 til 1390 e.Kr.

BIRT: 14/05/2026

Allt frá því hið svokallaða líkklæði frá Tórínó — rúmlega fjögurra metra langt og um eins metra breitt hörklæði þar sem má greina daufa mynd af manni — varð þekkt á 14. öld hafa deilurnar verið harðar.

 

Er klæðið í raun líkklæði Jesú? Eða er um miðaldafölsun að ræða?

 

Til að varpa skýrara ljósi á sögu klæðisins hafa vísindamenn framkvæmt umfangsmiklar DNA-rannsóknir á efninu — með afar óvæntri niðurstöðu.

Miklar deilur spruttu upp árið 1989 þegar vísindamenn töldu sig með 95 prósenta vissu geta sýnt fram á að líkklæðið væri ekki frá tímum Jesú heldur ættað frá miðöldum.

Skortur á fornu DNA vekur athygli

Á klæðinu fundust nefnilega ekki aðeins örfá heldur margvísleg DNA-sýni, bæði úr mönnum, dýrum og plöntum. Hluta af mannlega DNA-inu mátti rekja til vísindamannanna sem upphaflega tóku sýnin til rannsóknar.

 

En dýra-DNA var einnig áberandi. Þar vógu hundar og kettir þyngst og stóðu samanlagt fyrir 44 prósentum alls DNA sem fannst.

 

Auk þess fundust merki um meðal annars geitur, nautgripi, svín, hænur og hesta í klæðinu.

 

Rannsóknin leiddi einnig í ljós fjölbreytt DNA úr plöntum.

 

Margar plöntuleifanna — til dæmis úr ýmsum korntegundum — tengjast evrópskum landbúnaði fyrri alda. Aðrar plöntur, eins og bananar, kartöflur og tómatar, bárust hins vegar ekki til Evrópu og síðar Miðausturlanda fyrr en með landafundum og siglingum 15. og 16. aldar. Þær geta því með engu móti verið frá tímum Jesú.

Ferð Kristófers Kólumbusar til Ameríku árið 1492 gaf Evrópubúum aðgang að meðal annars tómötum, paprikum og kartöflum — plöntum sem allar hafa skilið eftir sig spor á líkklæðinu frá Tórínó.

Það sem hins vegar vantar eru skýr merki um dýr og plöntur sem tengjast Landinu helga.

 

Hvorki döðlur, ólífur, granatepli, myrra né úlfaldar hafa skilið eftir sig spor á klæðinu — staðreynd sem bendir til þess að það tengist ekki Levant-svæðinu og geti því ekki verið líkklæði Jesú.

 

Í heild styður rannsóknin þá kenningu að klæðið sé miðaldafölsun.

 

„Fjölbreytileiki dýra- og plöntutegunda sýnir hversu mikil umhverfismengun hefur safnast á líkklæðið í gegnum aldirnar, einkum eftir ferðir Marco Polo og Kristófers Kólumbusar,“ eru niðurstöður vísindamannanna.

 

Andrea Nicolotti, sagnfræðingur við háskólann í Tórínó, segir í samtali við miðilinn LiveScience að nýja rannsóknin styrki enn frekar þá niðurstöðu að líkklæðið sé miðaldafölsun.

 

Sömu niðurstöðu benti kolefnisaldursgreining til árið 1989, en þrátt fyrir það telja margir víða um heim að klæðið tengist Jesú með beinum hætti.

 

Á hverju ári er til dæmis haldin ráðstefna um líkklæðið þar sem kristnir vísindamenn og kirkjunnar menn koma saman og flytja erindi um þýðingu þess og áreiðanleika. Sú nýjasta fór fram í bandarísku borginni St. Louis og þar voru 49 fyrirlesarar á dagskrá.

HÖFUNDUR: Guðbjartur Finnbjörnsson, Else Christensen

© Shutterstock, © Wikimedia Commons, © Donación de Mónica Torromé de Mansill

Nýskráning

Skráning

Ertu áskrifandi að tímaritinu?

Áskrifendur að tímaritinu geta fengið frían aðgang að vefnum hér.

ÁSKRIFT AÐ VÍSINDI.IS

Prófaðu í 14 daga ókeypis!

  • Fullur aðgangur að vefnum okkar með rúmlega 3000 skemmtilegum og spennandi greinum um allt milli himins og jarðar á sviði vísinda og sögu.
  • Lifandi vísindi/Lifandi saga í rafrænni útgáfu á vefnum,
  • Aðeins 1.790 krónur á mánuði.
  • Engin skuldbinding – Þú getur hætt hvenær sem er.

ÁSKRIFT AÐ TÍMARITINU

Þrjú tölublöð + gjöf: Skemmtilegur sjónauki
  • Þrjú næstu tölublöð Lifandi vísinda/Lifandi sögu – sent heim til þín – eins færðu lítinn og vandaðan sjónauka að gjöf.
  • Fullur aðgangur að vefnum okkar – visindi.is – með tæplega 3000 skemmtilegum og spennandi greinum um allt milli himins og jarðar á sviði vísinda og sögu.
  • Spennandi greinar og flottar myndir sem svala forvitni þinni.
  • Þú getur hætt eftir tilboðið en ef þú heldur áfram skuldbindur þú þig aðeins þrjú tölublöð í einu og þú getur sagt upp hvenær sem sem og klárar þá tímabilið sem er hafið.
  • Venjuleg áskrift – þrjú tölublöð – kostar aðeins 7.590 kr

Sjónauki og þriggja blaða áskrift – Alls 3.800 kr.

Lifandi vísindi

Lyf

Lifandi saga

Search

Ertu áskrifandi að tímaritinu?

Áskrifendur að tímaritinu geta fengið frían aðgang að vefnum hér.

Innskráning

Ertu áskrifandi að tímaritinu?

Áskrifendur að tímaritinu geta fengið frían aðgang að vefnum hér.