Heilsa

Vísindamenn upplýsa: Svona mörg skref þarftu að ganga á dag til að viðhalda þyngdinni

Eftir að hafa greint gögn frá nærri 4000 þátttakendum í stórri samantektarrannsókn telja vísindamenn sig nú hafa fundið vísbendingu um hversu mörg skref á dag þarf að ganga til að koma í veg fyrir að þyngdin aukist aftur eftir þyngdartap. Að þeirra mati er þetta einföld og ódýr leið til að halda þyngdinni stöðugri.

BIRT: 17/05/2026

Mörgum tekst að losna við kíló með því að breyta mataræðinu og hreyfa sig meira. En margir komast svo að því að kílóin, sem var svo erfitt að losna við, eiga það til að koma aftur.

 

Þótt erfitt geti verið að viðhalda þyngdartapi til lengri tíma er það alls ekki ómögulegt. Nú telja ítalskir og líbanskir vísindamenn sig hafa fundið þann daglega skrefafjölda sem virðist hjálpa fólki að halda þyngdinni stöðugri.

Í stórri vísindagreiningu sem birtist í vísindatímaritinu International Journal of Environmental Research and Public Health greina þeir frá niðurstöðunum.

 

Vísindamennirnir greindu gögn frá 3758 einstaklingum með offitu eða alvarlega offitu frá meðal annars Bretlandi, Bandaríkjunum, Ástralíu og Japan. Meðalaldur þátttakenda var 53 ár og meðal-BMI gildið 31.

 

8500 skref töfratalan

Þátttakendunum var skipt í tvo hópa. Í öðrum hópnum voru 1987 einstaklingar sem fylgdu sérstöku lífsstílsprógrammi með ráðgjöf um mataræði ásamt hvatningu til aukinnar göngu og skráningar á daglegum skrefafjölda.

 

Í hinum hópnum voru 1771 þátttakendur sem annaðhvort fóru eingöngu í megrun eða fengu enga meðferð. Sá hópur var notaður til samanburðar.

 

Daglegur skrefafjöldi í báðum hópum var mældur í upphafi rannsóknarinnar, eftir þyngdartapstímabilið og síðan aftur eftir viðhaldstímabil þar sem markmiðið var að halda þyngdinni stöðugri til lengri tíma.

 

Í upphafi gengu þátttakendur að meðaltali um 7200 skref á dag. Á meðan á þyngdartapinu stóð jók lífsstílshópurinn hreyfingu sína upp í að meðaltali 8454 skref á dag. Á sama tíma léttust þátttakendurnir að meðaltali um 4,4 prósent af líkamsþyngd sinni, sem samsvaraði um fjórum kílóum.

 

Það gerir okkur gott, en líkaminn er á öðru máli. Megrunarkúrar valda því að heilinn ræðst til atlögu við skynfærin og dómgreindina og við gefumst upp, hvað eftir annað. Vísindin bjóða hins vegar upp á auðvelda leið til að léttast, jafnframt því að innbyrða fitu og kökur:

Það sem vakti þó mesta athygli var það sem gerðist eftir á. Þeir þátttakendur sem héldu áfram að ganga um 8.500 skref á dag náðu að viðhalda megninu af þyngdartapinu. Þegar viðhaldstímabilinu lauk gengu þeir enn að meðaltali 8.241 skref á dag og höfðu lést um þrjú kíló.

 

„Í slíkum lífsstílsmeðferðum ætti alltaf að hvetja þátttakendur til að ganga um 8.500 skref á dag meðan á megrun stendur og halda því áfram eftir að markmiðinu hefur verið náð til að draga úr líkum á að þyngdin aukist aftur,“ segir prófessor Marwan El Ghoch við háskólann í Modena og Reggio Emilia á Ítalíu í fréttatilkynningu.“

 

„Þetta er einföld og ódýr leið til að halda þyngdinni stöðugri eftir þyngdartap.“

HÖFUNDUR: Guðbjartur Finnbjörnsson, Bjørn Falck Madse

Nýskráning

Skráning

Ertu áskrifandi að tímaritinu?

Áskrifendur að tímaritinu geta fengið frían aðgang að vefnum hér.

ÁSKRIFT AÐ VÍSINDI.IS

Prófaðu í 14 daga ókeypis!

  • Fullur aðgangur að vefnum okkar með rúmlega 3000 skemmtilegum og spennandi greinum um allt milli himins og jarðar á sviði vísinda og sögu.
  • Lifandi vísindi/Lifandi saga í rafrænni útgáfu á vefnum,
  • Aðeins 1.790 krónur á mánuði.
  • Engin skuldbinding – Þú getur hætt hvenær sem er.

ÁSKRIFT AÐ TÍMARITINU

Þrjú tölublöð + gjöf: Skemmtilegur sjónauki
  • Þrjú næstu tölublöð Lifandi vísinda/Lifandi sögu – sent heim til þín – eins færðu lítinn og vandaðan sjónauka að gjöf.
  • Fullur aðgangur að vefnum okkar – visindi.is – með tæplega 3000 skemmtilegum og spennandi greinum um allt milli himins og jarðar á sviði vísinda og sögu.
  • Spennandi greinar og flottar myndir sem svala forvitni þinni.
  • Þú getur hætt eftir tilboðið en ef þú heldur áfram skuldbindur þú þig aðeins þrjú tölublöð í einu og þú getur sagt upp hvenær sem sem og klárar þá tímabilið sem er hafið.
  • Venjuleg áskrift – þrjú tölublöð – kostar aðeins 7.590 kr

Sjónauki og þriggja blaða áskrift – Alls 3.800 kr.

Lifandi vísindi

Lyf

Lifandi saga

Search

Ertu áskrifandi að tímaritinu?

Áskrifendur að tímaritinu geta fengið frían aðgang að vefnum hér.

Innskráning

Ertu áskrifandi að tímaritinu?

Áskrifendur að tímaritinu geta fengið frían aðgang að vefnum hér.