Markmið þeirra er að vekja útdauð dýr aftur til lífsins, hundruðum eða þúsundum ára eftir að þau hurfu af jörðinni.
Hjá fyrirtækinu Colossal Biosciences telja menn sig hafa náð stórum áfanga sem virðist geta skilað dúdúfuglinum aftur út í náttúruna á Máritíus.
Dúdúfuglinn var stór fugl á stærð við kalkún sem lifði á Máritíus fram á miðja 17. öld. Fuglinn var spakur og virtist bera fullt traust til sæfaranna sem komu til eyjarinnar. En tilkoma manna innsiglaði örlög hans, því mennirnir tóku með sér dýr sem átu egg fuglsins.
Árið 2023 tókst vísindamönnum að kortleggja öll gen fuglsins. Tilgangurinn var að geta hagrætt genum í stofnfrumum frá náskyldum lifandi ættingja – nikóbardúfunni – þannig að erfðaefni dúfunnar samsvari erfðaefni dúdúfuglsins og dúfan líkist þar með útdauða fuglinum. Og það hefur nú – að sögn fyrirtækisins sjálfs – tekist.
Erfðabreyttir kjúklingar
Næsta skref var að búa til dúdúfósturvísi sem hægt væri að koma í heiminn í eggi sem verpt er af lifandi staðgöngufugli.
Og því markmiði segjast vísindamennirnir hjá Colossal Biosciences einnig hafa náð. Samkvæmt frásögn breska blaðsins The Guardian segjast forsvarsmenn fyrirtækisins nú hafa þróað erfðabreytta kjúklinga sem eiga að bera frjóvguð nikóbardúfuegg með erfðaefni úr dúdúfuglinum.
Að sögn The Guardian mun fyrirtækið innan fimm til sjö ára klekja út þúsundum dúdúfugla sem verða erfðafræðilega nógu fjölbreyttir til að hægt sé að sleppa þeim út í náttúruna og mynda nýjan villtan stofn.