Lifandi Saga

Hvers vegna er bjór seldur í sexpakkningum?

Á fjórða áratug síðustu aldar fóru bandarísk brugghús að selja bjór í sexpakkningum (six-pack), aðallega vegna þess að ein tiltekin uppfinning ruddi brautina fyrir þessar þægilegu pakkningar.

Sexpakkar urðu afar vinsælir. Hér auglýsir grínistinn Johnny Winthers sex bjóra í hagnýtum kassa í sjónvarpi á sjötta áratugnum.

BIRT: 28/04/2026

Bjór var fyrst seldur í Bandaríkjunum í sexpakkningum seint á fjórða áratugnum.

 

Þangað til hafði bjórs aðallega verið neytt á krám og börum, þar sem drykkurinn var geymdur í stórum tunnum.

 

Þegar fyrstu rafmagnsísskáparnir sem komu í stað gamaldags ískæla urðu algengir á einkaheimilum fóru neysluvenjur bjórunnenda að breytast.

Fleiri og fleiri nutu þess að drekka kaldan bjór heima við og mörg brugghús fóru að gera tilraunir með mismunandi leiðir til að gera bjór aðgengilegri og auðveldari í flutningi fyrir neytendur.

 

Það er enn umdeilt hvaða brugghús tók fyrst upp sexpakkninguna en meðal þeirra sem koma til greina eru Jax Brewing Company í Flórída og Falstaff Brewing Corporation í Missouri.

 

Sexpakkar voru fyrir konur

Óháð uppruna þeirra er það staðreynd að seint á fjórða áratugnum gerðu nokkur brugghús tilraunir með að selja bjór í smærri einingum – til að mæta vaxandi eftirspurn eftir bjór til heimaneyslu.

 

Samkvæmt sumum heimildum varð niðurstaðan sexpakkningin vegna þess að hún var auðveld í flutningi fyrir heimavinnandi húsmæður sem almennt sáu um innkaupin. Og stærð sexpakkningarinnar passaði fullkomlega fyrir nýju ísskápana.

 

Sexpakkningin sýndi sig að vera viðskiptalegur sigur og á fimmta áratugnum urðu nýju umbúðirnar fljótt alls ráðandi í bjórgeiranum – sérstaklega þegar stóru brugghúsin fóru að nota þær. Síðar fylgdi gosdrykkjariðnaðurinn í kjölfarið.

HÖFUNDUR: Haukur Svavarsson, Emrah Sütcü

© Public Domain

Nýskráning

Skráning

Ertu áskrifandi að tímaritinu?

Áskrifendur að tímaritinu geta fengið frían aðgang að vefnum hér.

ÁSKRIFT AÐ VÍSINDI.IS

Prófaðu í 14 daga ókeypis!

  • Fullur aðgangur að vefnum okkar með rúmlega 3000 skemmtilegum og spennandi greinum um allt milli himins og jarðar á sviði vísinda og sögu.
  • Lifandi vísindi/Lifandi saga í rafrænni útgáfu á vefnum,
  • Aðeins 1.790 krónur á mánuði.
  • Engin skuldbinding – Þú getur hætt hvenær sem er.

ÁSKRIFT AÐ TÍMARITINU

Þrjú tölublöð + gjöf: Skemmtilegur sjónauki
  • Þrjú næstu tölublöð Lifandi vísinda/Lifandi sögu – sent heim til þín – eins færðu lítinn og vandaðan sjónauka að gjöf.
  • Fullur aðgangur að vefnum okkar – visindi.is – með tæplega 3000 skemmtilegum og spennandi greinum um allt milli himins og jarðar á sviði vísinda og sögu.
  • Spennandi greinar og flottar myndir sem svala forvitni þinni.
  • Þú getur hætt eftir tilboðið en ef þú heldur áfram skuldbindur þú þig aðeins þrjú tölublöð í einu og þú getur sagt upp hvenær sem sem og klárar þá tímabilið sem er hafið.
  • Venjuleg áskrift – þrjú tölublöð – kostar aðeins 7.590 kr

Sjónauki og þriggja blaða áskrift – Alls 3.800 kr.

Lifandi vísindi

Lyf

Lifandi saga

Search

Ertu áskrifandi að tímaritinu?

Áskrifendur að tímaritinu geta fengið frían aðgang að vefnum hér.

Innskráning

Ertu áskrifandi að tímaritinu?

Áskrifendur að tímaritinu geta fengið frían aðgang að vefnum hér.