Heilsa

Grænar hægðir: Þess vegna breytist liturinn í klósettskálinni

Engu máli skiptir þótt hægðirnar verði grænar eða rauðar í stutt tímabil en þessum lit mega helst ekki fylgja önnur einkenni.

BIRT: 09/04/2025

Liturinn á saurnum er mikilvæg vísbending um heilsufar okkar og brúnn litur telst vera eðlilegur litur á saurnum.

 

Breytingar á litnum geta annað hvort gefið til kynna inntöku tiltekinna fæðutegunda eða verið til marks um heilsufarsvanda. Þó svo að meltingarfæri okkar séu ólík er engu að síður mikilvægt að veita litabreytingum á hægðunum athygli og fylgjast með hvort þær verða rauðar, hvítar, svartar, grænar eða gulleitar.

 

Slíkar breytingar kunna að tengjast fæðunni en geta samt sem áður einnig verið fyrstu ummerki um sjúkdóm.

Grænar hægðir

Grænleitar hægðir geta verið áhyggjuefni en ástæðan er þó sjaldnast af alvarlegum toga. Ástæðuna er oftar en ekki að finna í fæðunni, einkum ef viðkomandi hefur nýverið neytt mikils magns af grænu blaðgrænmeti, í líkingu við spínat og steinselju eða fæðutegunda sem hafa verið litaðar með grænum litarefnum.

 

Slíkt getur valdið tímabundnum breytingum á lit saursins þannig að hann verði grænleitari á að líta.

 

Grænar hægðir geta þó jafnframt verið til marks um gall eða þá bakteríu- eða veirusýkingu. Ef litabreytingum og óreglulegum hægðum fylgja óþægindi og magaverkir kann það að tákna að nauðsynlegt sé að neyta meiri trefja.

 

Í slíkum tilvikum getur psyllium-hýði (Husk) reynst vel sem meðferð gegn viðkvæmum ristli, hægðatregðu og niðurgangi.

Brúnar og sæmilega harðar – þannig eiga hægðir helst að líta út að öllu jöfnu.

Grænar hægðir eru yfirleitt ekki til marks um krabbamein. Þó skyldi fylgjast með einkennum í líkingu við blóð í saurnum, óútskýrt þyngdartap og stöðuga magaverki.

 

Slíkt kann að gefa til kynna hættulegt ástand, meðal annars tilteknar tegundir krabbameins. Í slíkum tilvikum skyldi leita læknis til þess að gangast undir frekari rannsókn.

 

Svartar hægðir

Svartar hægðir geta stafað af ýmsu og verið allt frá því að vera algerlega meinlausar yfir í það að þarfnast læknishjálpar.

 

Alveg meinlausar ástæður svartra hægða:
  • Neysla tiltekinna fæðutegunda á borð við dökk ber og lakkrís.

 

  • Notkun járnríkra lyfja og járntaflna.

 

Ástæður svartra hægða sem þarfnast læknisaðstoðar:
  • Storkið blóð af völdum innri blæðinga í meltingarveginum, oft af völdum magasárs sem leiðir af sér svartar, límkenndar hægðir sem hafa í för með sér dæmigerðan rotnunaróþef.

 

  • Þessu fylgja gjarnan einkenni í líkingu við óþægindi, flökurleika og magaverki.

 

Nauðsynlegt getur orðið að framkvæma speglun á maganum og görnunum til þess að unnt sé að komast að raun um ástæðuna og meðhöndla orsökina að baki kvillanum.

 

Gular hægðir

Algengasta ástæðan fyrir gulum saur hjá fullorðnum er of hröð leið gegnum meltingarfærin eða þá gallvandamál.

 

Hröð melting leiðir oft af sér að fita brotnar niður á ófullnægjandi hátt en vandamál tengd galli, svo sem eins og lokun af völdum gallsteina eða lifrarbólgu, minnka litarefni úr gallinu og orsaka ljósari hægðir.

 

Þessu fylgja oft einkenni í líkingu við niðurgang, magaverki og þreytu.

 

Áberandi gulur litur kann jafnframt að gefa til kynna sýkingu í görnunum. Í því sambandi er mikilvægt að leita til læknis til þess að komast að raun um hvað veldur.

 

Rauðar hægðir

Rauðar hægðir kunna að eiga sér sárasaklausa skýringu, svo sem eins og rauðrófuát en í rauðrófum er að finna náttúrulega litarefnið betanín.

 

Þessu fylgir einnig oft dekkra þvag. Liturinn á saur og þvagi verður eðlilegur aftur innan eins til tveggja sólarhringa.

Talið er að ýmsir kviðverkir geti stafað af röskun sem kallast iðraólga. En hver eru nákvæmlega einkennin og eru einhverjar leiðir til að koma í veg fyrir sjúkdóminn?

Verði blóðs vart í hægðunum skyldi þó gera lækni viðvart samstundis. Blóð í saurnum kann að tengjast krabbameinsæxlum, sepum og gyllinæð.

 

Verði einungis vart við litla rauðleita blóðbletti, kunna þeir að vera til marks um nýtt blóð sem á rætur að rekja til skurða eða blæðinga í þörmunum. Í slíkum tilvikum borgar sig að leita til læknis til þess að fá nákvæma sjúkdómsgreiningu.

 

Ljósar/hvítar hægðir

Ljósar eða hvítar hægðir geta gefið til kynna vandamál tengd fituupptöku eða jafnvel sjúkdómum í meltingarkerfinu.

 

Þegar fita fer gegnum meltingarfærin án þess að hún uppgötvist, geta hægðirnar orðið ljósar eða hvítar á lit.

 

Þetta fyrirbæri kann að tengjast sjúkdómum í smáþörmunum, briskirtlinum eða lifrinni.

 

Ef ljósum hægðum fylgir þyngdartap eða einkenni í líkingu við niðurgang, er mikilvægt að leita til læknis.

HÖFUNDUR: Malthe Pihl

© Shutterstock

Nýskráning

Skráning

Ertu áskrifandi að tímaritinu?

Áskrifendur að tímaritinu geta fengið frían aðgang að vefnum hér.

ÁSKRIFT AÐ VÍSINDI.IS

Prófaðu í 14 daga ókeypis!

  • Fullur aðgangur að vefnum okkar með rúmlega 3000 skemmtilegum og spennandi greinum um allt milli himins og jarðar á sviði vísinda og sögu.
  • Lifandi vísindi/Lifandi saga í rafrænni útgáfu á vefnum,
  • Aðeins 1.790 krónur á mánuði.
  • Engin skuldbinding – Þú getur hætt hvenær sem er.

ÁSKRIFT AÐ TÍMARITINU

Þrjú tölublöð + gjöf: Skemmtilegur sjónauki
  • Þrjú næstu tölublöð Lifandi vísinda/Lifandi sögu – sent heim til þín – eins færðu lítinn og vandaðan sjónauka að gjöf.
  • Fullur aðgangur að vefnum okkar – visindi.is – með tæplega 3000 skemmtilegum og spennandi greinum um allt milli himins og jarðar á sviði vísinda og sögu.
  • Spennandi greinar og flottar myndir sem svala forvitni þinni.
  • Þú getur hætt eftir tilboðið en ef þú heldur áfram skuldbindur þú þig aðeins þrjú tölublöð í einu og þú getur sagt upp hvenær sem sem og klárar þá tímabilið sem er hafið.
  • Venjuleg áskrift – þrjú tölublöð – kostar aðeins 7.590 kr

Sjónauki og þriggja blaða áskrift – Alls 3.800 kr.

Lifandi vísindi

Lyf

Lifandi saga

Search

Ertu áskrifandi að tímaritinu?

Áskrifendur að tímaritinu geta fengið frían aðgang að vefnum hér.

Innskráning

Ertu áskrifandi að tímaritinu?

Áskrifendur að tímaritinu geta fengið frían aðgang að vefnum hér.