Lyftan tekur kipp og leggur af stað. Gegnum glergólfið sérðu jörðina fjarlægjast fyrir neðan þig. Til beggja handa sérðu út yfir 500 metra djúpan gljúfurdal þar sem fljót streymir um dalbotninn.
Endalaus röð bíla streymir yfir brúna sem nú er líka talsvert fyrir neðan þig. Þegar lyftan nemur loks staðar, stígur þú út í kaffihúsið efst í hengibrúarturninum og hefur útsýni vítt yfir fjalllendið í gegnum glerveggina.
Lyftuferðin og kaffihúsið er meðal þess sem bíður ferðalanga þegar Huajiangbrúin í Guizhou verður opnuð á árinu. Brúna má sem best kalla einstakt verkfræðiafrek og starfsmenn við byggingu hennar hafa þúsundum saman þurft að standast kulda, vinda og lofthræðslu nánast í lausu lofti í 625 metra hæð yfir fljótinu á dalbotninum.
Þessi metháa brú verður þó ekki einungis mikilvæg umferðaræð, heldur beinlínis vegur inn í framtíðina fyrir íbúa á svæðinu.
Hérað rís úr fátækt
Guizhou-hérað er þekkt fyrir stórfenglegt landslag með gróðursælum fjallahlíðum og djúpum dölum sem skerast til ýmissa átta í gegnum fjalllendið sem einkennir þetta hérað.
Vegleysur og erfiðar samgöngur hafa eðlilega leitt til þess að héraðið hefur dregist aftur úr í kínverskri þróun, enda segja heimamenn Guizhou vera
„landið þar sem aldrei koma þrír regnlausir dagar, hvergi eru þrír akrar milli sömu fjalla og hvergi eru þrír smápeningar í sama vasa.“
Héraðið er sem sagt votviðrasamt, torfært og fátækt þar mikil. En nú verður breyting. Héraðið er á fleygiferð inn í framtíðina – ekki síst vegna mikillar innviðauppbyggingar síðasta áratuginn.
Með háum fjöllum og djúpum dölum hefur Guizhou-héraðið verið eitt af torfærustu landsvæðum Kína.
Þvers og kruss um héraðið teygir sig nú net nýrra vega og hraðbrauta og meira en 30.000 brýr tryggja að jafnt bílar sem járnbrautarlestir komist leiðar sinnar án þess að þurfa að silast um mjóa vegi upp og niður eftir bröttum fjallahlíðum.
Guizhou-hérað má nú með sanni kalla Mekka áhugamanna um brýr eins og glöggt má sjá af tölfræðinni. Af 100 hæstu brúm heims eru 49 í þessu héraði.
Þær brýr sem eru í mestri hæð eru einmitt lagðar yfir Beipan-fljót sem fellur um þetta hérað. Bátsferð um fljótið er nánast samfelld sýning tilkomumikilla brúa sem lagðar hafa verið í nokkur hundruð metra hæð yfir dalbotninum.
Fjallahérað þakið brúm
Guizhou hefur fengið gælunafnið „Brúasafn heimsins“ vegna þess ótölulega fjölda brúa sem tengja samgöngunet héraðsins. Þrjár hæstu brýrnar í héraðinu liggja allar yfir sama fljótið, Beipan.

Hengibrýr ná mestri lengd
Nýja Huajiang-brúin er lögð yfir djúpan gljúfurdal og hönnuð sem hengibrú. Þessi gerð brúa þolir lengst haf milli stöpla en er aftur á móti viðkvæmari fyrir hvössum vindum. Hengibrú þarf bæði að þola mikið álag vegna togs (bláar örvar) og vegna þrýstiálags (rauðar örvar) sem bitnar á hengiköplunum og brúarstöplunum sem halda köplunum uppi.

Stagabrýr eru stöðugri
Duge-brúin var áður hæsta brú heims í 565 metra hæð. Duge-brúin er skástagabrú. Stagabrýrnar eru stöðugri en hengibrýr en burðarstöplarnir þurfa breiðari undirstöður til að standast álagið frá stögunum sem liggja skáhallt niður á brúargólfið og halda því uppi. Á móti kemur að stórar akkerisblokkir hengibrúnna eru óþarfar.

Steinbogabrúin er elst
Qinglong-járnbrautarbrúin er í 295 metra hæð. Hún er hönnuð sem steinbogabrú og öfugt við hinar brúargerðirnar verður hún einungis fyrir þrýstiálagi. Bogabrýr hafa verið notaðar í hátt í 5.000 ár og oftast byggðar úr steini eða tré. Nú eru bogabrýr bæði byggðar úr steini og stáli.
Brúargólfið hið hæsta í heimi þar sem það hangir í 625 metra hæð yfir fljótinu. Fyrra metið er 60 metrum lægra og það á Duge-brúin sem stóð fullgerð 2016 og liggur einmitt yfir sama fljót, bara 200 kílómetrum ofar í dalnum.
Þriggja kílómetra brú
Meginhluti Huajiang-brúarinnar er hengibrú með 1.420 metra haf. Til samanburðar má taka lengstu hengibrú í Evrópu, Stórabeltisbrúna sem er 1.640 metrar.
Í heildina er sú kínverska þó lengri. Beggja vegna gljúfurdalsins og brúarturnanna eru brýr á stöplum. Syðri stöplabrúin ámóta löng og hengibrúin sjálf.
Brúin yfir Huajiang-gljúfrið er í nærri tvöfalt meiri hæð yfir jörðu en toppur Eiffelturnsins í París. Alls verður nýja brúin um þrír kílómetrar að lengd.
Margir kostir fylgdu því að velja hengibrú. Hengibrýr henta afar vel yfir djúpa dali og gljúfur þar sem engin leið er að styðja brúargólfið neðan frá. Og með nokkurri einföldun má eiginlega segja að hengibrýr sé unnt að byggja ofan frá.
Þegar hengikaplaturnarnir höfðu verið reistir var sterkt net strengt á milli þeirra sem eins konar vinnupallur. Á þessu neti athöfnuðu starfsmennirnir sig við að koma fyrir hengiköplum og festa brúargólfseiningarnar við þá.
En það var ekki einungis veðurfarið sem verkfræðingarnir þurftu að kljást við, heldur einnig loftslagið á þessum slóðum. Vegna þess hve landið er í mikilli hæð yfir sjávarmáli, verða þarna miklar hitasveiflur milli dags og nætur og því gátu fylgt vandamál þegar verið var að steypa turnana.
Af hitasveiflunum leiðir líka að nokkuð hvassir vindar blása nærri án afláts um dalina og í hvössum vindi var erfitt fyrir starfsmenn að athafna sig á vinnupallsnetinu og ekki síst þegar að því kom að festa brúargólfseiningarnar í hengikaplana.
Starfsmenn þurftu að kljást við þoku og kalda vinda sem nær stöðugt blása um dalinn. Hér er verið að festa þá lóðréttu víra sem festa brúna við kaplana.
Síðast en ekki síst þurftu bæði verkfræðingar og starfsmenn að kljást við takmarkað skyggni í þeirri þéttu þoku sem þarna er svo algeng.
Meðan á smíði brúarinnar stóð notuðu verkfræðingarnir næma skynjara til að fylgjast með hitastigi og vindhraða í rauntíma og tryggja þannig fyllsta öryggi allra þátta verksins án þess að þurfa að gera hlé á verkinu.
Þannig tókst þeim ekki aðeins að byggja brúna, heldur líka að standast allar tímaáætlanir. Allar þessar framkvæmdir tóku aðeins fjögur ár eða helming þess tíma sem það tók að byggja Stórabeltisbrúna.
Metbrúin byggð á methraða
Þegar Huajiang-brúin verður tekin í notkun á árinu 2025, verður hún ekki bara sú hæsta í heimi – hún er líka byggð á methraða. Vegna mikillar reynslu Kínverja af brúarsmíði verða einungis liðin fjögur ár síðan framkvæmdir hófust.

Stöplar og akkerisblokkir steypt upp á þremur árum
Fyrsti áfanginn fólst í byggingu brúarturnanna sem eru 262 og 205 metra háir. Stöplarnir voru byggðir með sérstakri aðferð sem fólst í því að steypa járnbenta steinklumpa hvern ofan á annan. Samtímis voru akkerisblokkir steyptar við turnana.

Burðarkaplarnir voru strengdir á einu ári
Þegar stöplarnir náðu fullri hæð 2024 var strengt út vinnupallanet milli þeirra. Þar gátu starfsmenn athafnað sig við að leggja burðarkaplana sem liggja milli turnanna tveggja og mynda bogasveig milli þeirra. Samtals eru burðarkaplarnir 18.000 tonn.

Brúargólfið var lagt á fáeinum mánuðum
Brúargólfið er samsett úr 93 stáleiningum sem hver um sig vegur 215 tonn. Til að viðhalda jafnvægi voru einingarnar festar við burðarkaplana í ákveðinni röð, byrjað í miðjunni og síðan unnið út til endanna. Lokaáfanginn felst svo í lyftu við suðurturninn og glergöngum undir brúargólfinu.
Og í brúargólfið völdu verkfræðingarnir óhefðbundið byggingarefni. Í stað þess að loka brúargólfinu með steinsteypu notuðu þeir raufastál sem hleypir lofti í gegn og dregur þannig mikið úr álagi vinda á brúna.
Glergangar undir brúnni
Það stál sem notað hefur verið til framkvæmdarinnar – steypustyrktarstál í turnana, stálið í hengikaplana og loks í brúargólfið sjálft – er samtals 49.000 tonn.
Hluti raufastálsins í brúargólfinu er klæddur með gleri sem umlykur tvo 800 metra langa ganga frá lyftunni á syðri brúarturninum út að miðri brúnni. Gangarnir liggja m.a. að veitingahúsum þar sem gestir geta notið útsýnis yfir fljótið og þá ferðamannamiðstöð sem á að reisa á dalbotninum.
Í þeirri miðstöð verða m.a. sýningar og kynningar á byggingu brúarinnar og bæði náttúru og sögu svæðisins.
Í raufaglerbyggingunni undir brúargólfinu ganga gestir á glergólfi og hafa útsýni yfir dalbotninn 625 metrum neðar.
Huajiang-brúin er þannig annað og meira en bara brú sem styttir ferðatímann yfir Beipanfljót úr 90 mínútum niður í aðeins tvær. Hún er líka kynningar- og útsýnisstöð sem á eftir að laða að sér ferðamenn í stórum stíl.
Guizhou-hérað býður reyndar þegar upp á margvíslegt aðdráttarafl fyrir ferðamenn. Í héraðinu er t.d. stærsti útvarpssjónaukadiskur veraldar, hinn svonefndi FAST-sjónauki sem er 500 metrar í þvermál. Við hann er líka að finna ferðamannamiðstöð þar sem í boði eru sýningar er varða könnun geimsins.
Sjónaukinn FAST er staðsettur í afskekktu fjallasvæði í Guizhou-héraði, þar sem sem lítið er af manngerðum útvarpsbylgjum sem gætu truflað.
Í héraðinu er líka Guanling steingervinga-jarðvangurinn, þar sem áhugasamir náttúruunnendur geta skoðað 220 miljóna ára steinrunnar sjávareðlur og ferðamenn geta líka lagt leið sína í Miao Room sem er stærsti staki hellir heims, um 154.000 fermetrar að stærð.
Styttir leið inn í framtíðina
Auk þess að styðja við vaxandi ferðamennsku á nýja brúin sinn þátt í að færa Guizhou-hérað inn í tölvuöldina, þar sem héraðinu er ætlað alveg sérstakt hlutverk.
Um þessar mundir reisa mörg af stærstu upplýsingatæknifyrirtækjunum stórar tölvumiðstöðvar í dölum héraðsins. Stöðugt loftslag og sérstök veðurskilyrði skapa kjöraðstæður fyrir stór netþjónabú.
Fyrirtæki á borð við Apple, Intel Huawei og Tencent nýta sér þá svölu vinda sem þarna blása til að kæla netþjónabúin. Þannig sparast gríðarlega mikil raforka. Sú raforka sem engu að síður er nauðsynleg kemur frá vatnsorkuverum sem reist hafa verið í fljótunum og verður að teljast ódýr.
Kínverska tæknirisanum Tencent hefur komið aðal gagnaveri sínu fyrir í göngum sem boruð hafa verið í gegnum fjallstind í Guizhou-héraði. Kaldur loftstraumur er leiddur um göngin til að kæla risavaxnar netþjóna.
Fyrir fáeinum áratugum byggðist efnahagurinn að mestu á skógarhöggi og námuvinnslu en nú verður Guizhou að einni af miðstöðvum tölvutækninnar.
Það er af þessum sökum sem Huajiang-brúin telst ekki einungis samgöngutenging yfir djúpa gjá, heldur beinlínis „brú inn í framtíðina.“
Þetta er sú saga sem kínversk yfirvöld vilja segja þér ef þú staðnæmist við brúna á ferðalagi þínu um Kína.
Og ef þú ert við góða heilsu og nokkurn veginn laus við lofthræðslu, geturðu líka tekið glerganginn inn að miðju brúarinnar. Þar kemur þú að palli sem liggur beint yfir fljótinu á dalbotninum.
Og ef þú lætur binda teygju um öklana og stekkur svo niður úr 625 metra hæð, getur þú líka tekið þitt eigið met með þér heim. Þú hefur þá nefnilega afrekað heimsins lengsta teygjustökk.