Lifandi Saga

Hvers vegna skiptu sólstöður svo miklu máli fyrir forna byggingarlist?

Í árþúsundir var sólin ekki bara uppspretta ljóss og hita. Lengsti og stysti dagur ársins, sólstöðurnar, stýrðu bæði akuryrkju og trúarbrögðum, sem og hönnun mikilfenglegustu bygginga þess tíma.

Stonehenge var byggt í samræmi við gang sólarinnar og að sögn sérfræðinga gæti það hafa gegnt ýmsum hlutverkum, þar á meðal sem stjörnuathugunarstöð, grafreitur og trúarlegur samkomustaður.

BIRT: 01/05/2026

Sólin hafði mjög sérstaka þýðingu fyrir margar þjóðir til forna – bæði í veraldlegu og trúarlegu tilliti.

 

Fyrir bændur var fyrst og fremst mikilvægt að þekkja ársferilinn og árstíðaskipti til að geta ræktað landið með sem árangursríkustum hætti.

 

Lengsti og stysti dagur ársins, sumarsólstöður og vetrarsólstöður, mörkuðu því mikilvæg tímamót í sólarhringrásinni.

 

Þessir tveir dagar virkuðu sem náttúruleg merki um gang ársins og þar með hvenær ætti til dæmis að búa sig undir að sá eða uppskera.

 

Í mörgum menningarheimum hafði sólin einnig mikla trúarlega þýðingu og gangur himintunglanna var oft tengdur guðum eða yfirnáttúrulegum öflum.

Sólstöður, þegar sólin er hæst eða lægst á himninum, voru álitnar sá tími, þegar tengslin milli mannanna og guðanna væru sérstaklega sterk.

Veisluhöld á sólstöðum

Þess vegna höfðu flestir fornmenn sérstaka hátíðisdaga á sólstöðum til að fagna sigri ljóssins yfir myrkrinu og tryggja frjósemi og vernd.

 

Stórviðburðir eins og aðfangadagskvöld og miðsumar (Jónsmessa) voru upphaflega heiðnar hátíðir sem fögnuðu sumar- og vetrarsólstöðum í júní og desember.  

 

Vegna trúarlegrar þýðingar sólarinnar eru mörg musteri, grafhýsi og helgidómar staðsett eftir stöðu sólarinnar á sólstöðum – til dæmis hið heimsfræga Stonehenge í Englandi.

 

Þær byggingar eiga það sameiginlegt að vera byggðar þannig að geislar sólarinnar lenda á ákveðnum steini eða altari á þessum dögum. Á þennan hátt virkuðu byggingarnar eins og risavaxin sólardagatöl sem gerðu fornmönnum kleift að fylgjast með gangi ársins.

Goðsagnakenndar byggingar fylgja sólinni

Stonehenge, England

Stonehenge í Englandi er eitt frægasta minnismerki heims og var byggt um 2.500 f.Kr. Tilgangur steinhringsins er óljós en hann er vandlega miðaður við gang sólarinnar.

 

Minnisvarðinn er staðsettur þannig að hægt er að sjá sólarupprásina á sumarsólstöðum í beinni línu frá miðju steinhringsins að 4,7 metra háum steini sem er staðsettur um 75 metra fyrir utan innganginn að steinhringnum.

Pýramídarnir í Giza, Egyptaland

Egypsku pýramídarnir í Gísa eru ekki aðeins byggingarlistarundur, þeir eru einnig miðaðir við sólina og bera vitni um hversu færir stjörnufræðingar Egyptar voru. Fjórar hliðar Keops-píramídans eru næstum fullkomlega í flútti við höfuðáttirnar fjórar og fylgja þannig daglegri braut sólarinnar. Píramídarnir eru einnig staðsettir þannig að á sumarsólstöðum sest sólin á milli píramída Keops og Kefrens.

Angkor Wat, Kambódía

Angkor Wat sem var byggt á miðöldum, snýr í vestur, þar sem sólin sest. Vestur er tengt dauða og lífi eftir dauðann í hindúasið sem bendir til þess að musterið hafi einnig verið grafreitur. Á sumarsólstöðum kemur sólin upp vinstra megin við miðturn musterisþyrpingarinnar en á vetrarsólstöðum rís hún hægra megin. Musterið ber vitni um að sólstöðurnar voru enn mikilvægar löngu eftir að fornöld var liðin.

Machu Picchu, Perú

Sólguðinn Inti var mikilvægasti guð Inka og bygging fjallaborgarinnar Machu Picchu á 15. öld sýnir að staðurinn var vandlega valinn með tilliti til gangs sólarinnar – og er þar með trúarlegur miðpunktur. Á vetrarsólstöðum skína fyrstu geislar sólarinnar á helga Intihuatana steininn sem talið er að hafi virkað sem sólúr eða dagatal. Á sumarsólstöðum ná geislar sólarinnar inn og ​​lýsa upp steinaltari í Sólarhofinu í borginni.

Haukur Sigurðsson, Af Emrah Sütcü

Nýskráning

Skráning

Ertu áskrifandi að tímaritinu?

Áskrifendur að tímaritinu geta fengið frían aðgang að vefnum hér.

ÁSKRIFT AÐ VÍSINDI.IS

Prófaðu í 14 daga ókeypis!

  • Fullur aðgangur að vefnum okkar með rúmlega 3000 skemmtilegum og spennandi greinum um allt milli himins og jarðar á sviði vísinda og sögu.
  • Lifandi vísindi/Lifandi saga í rafrænni útgáfu á vefnum,
  • Aðeins 1.790 krónur á mánuði.
  • Engin skuldbinding – Þú getur hætt hvenær sem er.

ÁSKRIFT AÐ TÍMARITINU

Þrjú tölublöð + gjöf: Skemmtilegur sjónauki
  • Þrjú næstu tölublöð Lifandi vísinda/Lifandi sögu – sent heim til þín – eins færðu lítinn og vandaðan sjónauka að gjöf.
  • Fullur aðgangur að vefnum okkar – visindi.is – með tæplega 3000 skemmtilegum og spennandi greinum um allt milli himins og jarðar á sviði vísinda og sögu.
  • Spennandi greinar og flottar myndir sem svala forvitni þinni.
  • Þú getur hætt eftir tilboðið en ef þú heldur áfram skuldbindur þú þig aðeins þrjú tölublöð í einu og þú getur sagt upp hvenær sem sem og klárar þá tímabilið sem er hafið.
  • Venjuleg áskrift – þrjú tölublöð – kostar aðeins 7.590 kr

Sjónauki og þriggja blaða áskrift – Alls 3.800 kr.

Lifandi vísindi

Lyf

Lifandi saga

Search

Ertu áskrifandi að tímaritinu?

Áskrifendur að tímaritinu geta fengið frían aðgang að vefnum hér.

Innskráning

Ertu áskrifandi að tímaritinu?

Áskrifendur að tímaritinu geta fengið frían aðgang að vefnum hér.