Náttúran

Hvernig virkar gamaldags hitastillir

Við eigum gamlan sumarbústað sem hitaður er með rafmagni en á þessum 60 ára gömlu ofnum eru hitastillar. Hvernig virka þeir eiginlega án nokkurrar rafeindatækni?

BIRT: 01/03/2026

Gömlu hitastillarnir virka án þess að nokkur rafeindatækni komi við sögu og þeir þurfa heldur ekki rafstraum.

 

Þess í stað nýta þeir tilhneigingu ýmissa efna – málma, vökva eða lofttegunda – til að bregðast við breytingum á hitastigi.

 

Klassískt dæmi er svonefndur tvímálma hitastillir sem m.a. er að finna í brauðrist en líka t.d. við rafmagnsofna.

 

Slíkur hitastillir er gerður úr tveimur málmum, gjarnan kopar og járni. Þessi tveir málmar þenjast mishratt út við vaxandi hita.

 

Eðlisfræðingarnir kalla þetta mismundandi útþenslustuðla. Þenslustuðull járns er 0,0012 mm/°C.

 

Eins metra járnrör lengist sem sagt um 0,002 mm þegar það hitnar um eina gráðu. Þenslustuðull kopars er 0,017.

Þennan mismun má nýta með því að leggja saman jafnlangar þynnur úr járni og kopar. Við hækkandi hita lengist koparlengjan meira og það myndar sveigju á þynnunum. Þá hreyfingu má nýta til að rjúfa rafstraum.

 

Önnur algeng lausn er notuð í hitastilli á heitavatnsofni. Í þeirri gerð er lítið málmrör, fyllt með vökva eða gasi.

 

Þegar vökvinn eða gasið hitnar, þenst það út. Þetta veldur þrýstingi á fjöður sem smám saman lokar fyrir vatnsstreymi inn á ofninn.

 

Þegar kólnar í herberginu, dregst efnið í málmrörinu saman og hleypir meira vatni á ofninn.

 

Báðar þessar gerðir eru sem sagt alveg sjálfvirkar og hafa stjórn á hitanum á grundvelli einfalds eðlisfræðilögmáls.

Tveir málmar stjórna hitanum

Tvímálma hitastillir virkar án rafstraums eða rafeindatækni. Þegar hitinn hækkar veldur mismunandi þensla málmanna því að málmþynnan sveigist upp eða niður og kveikir eða slekkur eftir atvikum.

1. Málmar þenjast mismikið út

Þegar hiti í rafmagnsofni hækkar, þenst koparinn hraðar en járnið. Koparþynnan lengist því meira.

2. Þynnan svignar við upphitun

Þar eð koparinn lengist meira svignar samsetta þynnan upp, enda er járnþynnan ofan á. Þetta kallast tvímálma hitastillir.

3. Sveigjan slekkur og kveikir

Sveigjan veldur því að armurinn færist upp frá rafsnertunni og rýfur strauminn. Þegar kólnar svignar armurinn niður og opnar aftur fyrir rafstrauminn.

HÖFUNDUR: Niels Halfdan Hansen, Jón Daníelsson

© Semenaka_Maria/Shutterstock,© Lotte Fredslund

Nýskráning

Skráning

Ertu áskrifandi að tímaritinu?

Áskrifendur að tímaritinu geta fengið frían aðgang að vefnum hér.

ÁSKRIFT AÐ VÍSINDI.IS

Prófaðu í 14 daga ókeypis!

  • Fullur aðgangur að vefnum okkar með rúmlega 3000 skemmtilegum og spennandi greinum um allt milli himins og jarðar á sviði vísinda og sögu.
  • Lifandi vísindi/Lifandi saga í rafrænni útgáfu á vefnum,
  • Aðeins 1.790 krónur á mánuði.
  • Engin skuldbinding – Þú getur hætt hvenær sem er.

ÁSKRIFT AÐ TÍMARITINU

Þrjú tölublöð + gjöf: Skemmtilegur sjónauki
  • Þrjú næstu tölublöð Lifandi vísinda/Lifandi sögu – sent heim til þín – eins færðu lítinn og vandaðan sjónauka að gjöf.
  • Fullur aðgangur að vefnum okkar – visindi.is – með tæplega 3000 skemmtilegum og spennandi greinum um allt milli himins og jarðar á sviði vísinda og sögu.
  • Spennandi greinar og flottar myndir sem svala forvitni þinni.
  • Þú getur hætt eftir tilboðið en ef þú heldur áfram skuldbindur þú þig aðeins þrjú tölublöð í einu og þú getur sagt upp hvenær sem sem og klárar þá tímabilið sem er hafið.
  • Venjuleg áskrift – þrjú tölublöð – kostar aðeins 7.590 kr

Sjónauki og þriggja blaða áskrift – Alls 3.800 kr.

Lifandi vísindi

Lyf

Lifandi saga

Search

Ertu áskrifandi að tímaritinu?

Áskrifendur að tímaritinu geta fengið frían aðgang að vefnum hér.

Innskráning

Ertu áskrifandi að tímaritinu?

Áskrifendur að tímaritinu geta fengið frían aðgang að vefnum hér.