Alheimurinn

Bestu tækifærin til að skoða Venus í kíki

Stjörnur: Venus, nágrannapláneta okkar sést alltaf í grennd við sólina og þess vegna rís hún aldrei hátt yfir sjóndeildarhring. Það er líka misjafnt af hve stórum hluta hennar sólarljósið endurkastast til okkar. Að því leyti hagar hún sér svipað og tunglið sem getur verið nýtt, hálft eða í fyllingu.

BIRT: 29/11/2021

LESTÍMI: 4 MÍNÚTUR

UM VENUS

Venus sést sem skær stjarna, aðallega vegna þess hve nálægt okkur hún er. Að auki er hún umvafin miklu skýjaþykkni sem endurkastar sólarljósinu líkt og spegill.

 

Séð með berum augum birtist Venus okkur sem ljósblettur en jafnvel í gegnum handkíki má sjá að einungis hluti sýnilegs yfirborðs er upplýstur af sólinni.

 

Þegar Venus er að hverfa bak við sólina eða koma aftur fram hinum megin, er stærstur hluti yfirborðsins upplýstur en ljósið verður jafnframt daufara því plánetan er þá í mestri fjarlægð frá okkur.

 

Þegar Venus er í hjágöngu, gengur sem sagt fyrir sólina frá okkur séð og er því á milli jarðar og sólar, er plánetan miklu stærri að sjá en á móti kemur líka að yfirborðið er að mestu í skugga.

 

Til að sjá Venus sem skýrast skiptir sjónarhornið sem sagt mestu máli.

 

Venus sést skýrast í réttu horni

Séð frá jörðu breytist styrkur þess ljóss sem Venus endurvarpar eftir því hvar plánetan er á braut sinni um sólina frá okkur séð.

 

1. Séð frá jörðu er stærstur hluti plánetunnar upplýstur þegar hún er lengst frá okkur. Á móti kemur að hún virðist minni um sig vegna fjarlægðarinnar.

 

2. Þegar Venus er næst jörðu virðist plánetan stærri en hún er aftur á móti að mestu í skugga.

 

3. Þegar Venus myndar 90 gráðu horn milli sólar og jarðar er ljósið skærast frá okkur séð.

 

 

Öfugt við t.d. Mars og Júpíter er Venus aldrei sjáanleg á himni í heila nótt.

 

Ástæðan er sú að Venus er nær sólinni en jörðin og sést því tiltölulega nálægt henni, ýmist á undan eða eftir.

 

Þetta þýðir að Venus sést aðeins tiltölulega skammt fyrir ofan sjóndeildarhring, ýmist skömmu eftir sólsetur eða skömmu fyrir dagrenningu, enda kallast hún ýmist kvöldstjarna eða morgunstjarna.

 

HVAR ER VENUS

 

1.  HVAR OG HVENÆR?

Venus sést á suðurhluta himins eftir sólsetur en mjög lágt á lofti. Í nóvember 2021 nær hún þó ekki upp yfir sjóndeildarhringinn fyrr en alveg í lok mánaðarins. Þann 15. desember nær hún 3-4 gráður upp á himininn (miðað við sléttlendi), er í hásuðri laust fyrir klukkan fjögur en færist vestur og sest upp úr klukkan sex um kvöldið. Venus sést áfram á kvöldin fram yfir áramót en laust fyrir miðjan janúar 2022 gengur hún fyrir sólu og verður morgunstjarna eftir það.

 

2.  SÝNILEIKI?

Venus má greinilega sjá með berum augum en vegna þess hve lágt hún rís þarftu að finna stað með góðu útsýni yfir sjóndeildarhringinn – gjarnan utan við ljósmengun þéttbýlis.

 

Með kíki eða sjónauka má sjá hve stóran hluta plánetunnar sólin lýsir upp. Frá jörðu séð er Venus lang ljóssterkasta reikistjarnan.

 

GRUNNUR:

* Venus kallast kvöldstjarna meðan hún er á eftir jörðinni á hringferð sinni um sólina en morgunstjarna eftir að hún fer framúr okkur. Venus fer framúr vegna þess að hún er nær sólinni.

 

* Sólarhringur á Venusi er 243 jarðsólarhringar en árið er aðeins 225 jarðsólarhringar. Sólarhringur er lengri en ár vegna þess að plánetan snýst hraðar um sólina en sjálfa sig.

 

* Á Venusi kemur sólin upp í vestri, þar eð plánetan snýst rangsælis um sjálfa sig. Flestar pláneturnar snúast réttsælis en Úranus snýst öðruvísi og á sinn eigin hátt.

 

* Þegar sólin Venus og jörðin mynda rétt horn og plánetan er sýnilegust á himni er hún í 102.000.000 kílómetra fjarlægð frá jörðinni.

 

 

 

Birt: 30.11.2021

 

 

JESPER GRØNNE

 

 

Náttúran

Krabbar hafa farið sömu ferðina 17 sinnum

Maðurinn

Er veganmatur óhollur börnum?

Maðurinn

Er veganmatur óhollur börnum?

Náttúran

Risaeðlubeinagrind seld fyrir meira en sex milljarða króna á uppboði.

Náttúran

Risaeðlubeinagrind seld fyrir meira en sex milljarða króna á uppboði.

Lifandi Saga

Ísraelski vígamaðurinn: Vill lifa í friði með Palestínumönnum

Maðurinn

Er hægt að verða gráhærður á einni nóttu?

Heilsa

Hrotur geta verið vísbending um hjartasjúkdóm: Einn hópur er í sérstakri áhættu

NÝJASTA NÝTT

Maðurinn

Er hægt að verða sólbrúnn í skugga?

Maðurinn

Gerið það sama og þúsundir gera á samfélagsmiðlum: Verið þakklát og lifið lengur

Maðurinn

Þannig getum við nýtt drauma okkar

Heilsa

Kostir þess að vera nátthrafn

Jörðin

Jörðin eftir manninn

Maðurinn

Bakteríur leysa vind í munni okkar

Lifandi Saga

Hvað átti sér stað við Wounded Knee árið 1973?

Maðurinn

Geta matvörur varið húðina gegn útfjólubláum geislum sólar?

Spurningar og svör

Hvað á eiginlega að gera við kjarnorkuverið í Tjernobyl?

Maðurinn

Myndir af einangruðum ættflokki sýna mannlegan harmleik, samkvæmt verndarsamtökum

Maðurinn

Er hægt að verða sólbrúnn í skugga?

Maðurinn

Gerið það sama og þúsundir gera á samfélagsmiðlum: Verið þakklát og lifið lengur

Maðurinn

Þannig getum við nýtt drauma okkar

Heilsa

Kostir þess að vera nátthrafn

Jörðin

Jörðin eftir manninn

Maðurinn

Bakteríur leysa vind í munni okkar

Lifandi Saga

Hvað átti sér stað við Wounded Knee árið 1973?

Maðurinn

Geta matvörur varið húðina gegn útfjólubláum geislum sólar?

Spurningar og svör

Hvað á eiginlega að gera við kjarnorkuverið í Tjernobyl?

Maðurinn

Myndir af einangruðum ættflokki sýna mannlegan harmleik, samkvæmt verndarsamtökum

Fáðu aðgang að vÍSINDI.IS

Ókeypis í 2 vikur!

 

Eftir það kostar eingöngu 1.390 kr. á mánuði og enginn uppsagnarfrestur.

 

Innifalið er aðgangur að öllum greinum á vefnum ásamt rafræna útgáfu af nýjustu tölublöðunum.

  • Fullur aðgangur að visindi.is
  • Frábærar myndir og myndbönd
  • Aðgengilegt í öllum snjalltækjum
  • Fullur aðgangur að gríðarlegu magni eldri greina
  • Nýjustu tölublöðin í rafrænu formi

Jörðin

99 stórborgir eru að sökkva

Jörðin

99 stórborgir eru að sökkva

Maðurinn

Munnvatnið er fullt af eitri

Maðurinn

Munnvatnið er fullt af eitri

Maðurinn

Gæludýr koma í veg fyrir offitu og ofnæmi meðal barna

Náttúran

Hvernig bárust kettir til Ameríku?

Heilsa

Er mikið um kyrrsetu hjá þér í vinnunni? Þá getur kaffi lengt líf þitt samkvæmt stórri rannsókn.

Heilsa

Lækning gegn útbreiddum meltingartruflunum finnst í flestum eldhúsum.

Vinsælast

1

Maðurinn

Bakteríur leysa vind í munni okkar

2

Maðurinn

Myndir af einangruðum ættflokki sýna mannlegan harmleik, samkvæmt verndarsamtökum

3

Maðurinn

Geta matvörur varið húðina gegn útfjólubláum geislum sólar?

4

Jörðin

Jörðin eftir manninn

5

Spurningar og svör

Hvað á eiginlega að gera við kjarnorkuverið í Tjernobyl?

6

Heilsa

Kostir þess að vera nátthrafn

1

Maðurinn

Bakteríur leysa vind í munni okkar

2

Maðurinn

Geta matvörur varið húðina gegn útfjólubláum geislum sólar?

3

Jörðin

Jörðin eftir manninn

4

Heilsa

Kostir þess að vera nátthrafn

5

Lifandi Saga

Hvað átti sér stað við Wounded Knee árið 1973?

6

Maðurinn

Þannig getum við nýtt drauma okkar

Heilsa

Læknar hafa grætt heilt auga í mann

Maðurinn

Nú geta vísindamenn ráðskast með drauma okkar

Tækni

140.000 veirutegundir hafa fundist í þarmaflórunni

Maðurinn

Kornabörn þekkja móðurmálið sitt

Læknisfræði

Hvers vegna fáum við ofnæmi?

Maðurinn

Lamaður maður gengur fyrir eigin hugarafli

Lifandi Saga

Dans indíána orsakaði blóðbaðið við Wounded Knee

Heilsa

Rannsókn: Tæp skeiðfylli af þessari fitutegund daglega dregur úr hættu á heilabilun

Maðurinn

Er hollt að gefa blóð?

Tækni

Vandamál sem gat orðið aðkallandi

Maðurinn

Efnaskiptin eru stöðug frá 20 til 60 ára aldurs

Maðurinn

Er siðblindingi á vinnustaðnum þínum?

Er hægt að verða sólbrúnn í skugga?

Er sólarvörn yfirhöfuð nauðsynleg ef dvalið er í skugga mestallan daginn?

Maðurinn

ÁSKRIFT AÐ VÍSINDI.IS

Prófaðu í 14 daga ókeypis!

  • Fullur aðgangur að vefnum okkar með tæplega 3000 skemmtilegum og spennandi greinum um allt milli himins og jarðar á sviði vísinda og sögu.
  • Lifandi vísindi/Lifandi saga í rafrænni útgáfu á vefnum,
  • Aðeins 1.690 krónur á mánuði.
  • Engin skuldbinding – Þú getur hætt hvenær sem er.

ÁSKRIFT AÐ TÍMARITINU

Þrjú tölublöð + gjöf: Skemmtilegur sjónauki
  • Þrjú næstu tölublöð Lifandi vísinda/Lifandi sögu – sent heim til þín – eins færðu lítinn og vandaðan sjónauka að gjöf.
  • Fullur aðgangur að vefnum okkar – visindi.is – með tæplega 3000 skemmtilegum og spennandi greinum um allt milli himins og jarðar á sviði vísinda og sögu.
  • Spennandi greinar og flottar myndir sem svala forvitni þinni.
  • Þú getur hætt eftir tilboðið en ef þú heldur áfram skuldbindur þú þig aðeins þrjú tölublöð í einu og þú getur sagt upp hvenær sem sem og klárar þá tímabilið sem er hafið.
  • Venjuleg áskrift – þrjú tölublöð – kostar aðeins 7.590 kr

Sjónauki og þriggja blaða áskrift – Alls 3.800 kr.

Lifandi vísindi

Lyf

Lifandi saga

Search

Ertu áskrifandi að tímaritinu?

Áskrifendur að tímaritinu geta fengið frían aðgang að vefnum hér.

Innskráning

Ertu áskrifandi að tímaritinu?

Áskrifendur að tímaritinu geta fengið frían aðgang að vefnum hér.