Náttúran

Dýrin leika sér að tölum

BIRT: 04/11/2014

Í upphafi síðustu aldar voru hestar sem gátu reiknað vinsælir í fjölleikahúsum. Fremstur í flokki var þýski hesturinn Klóki Hans. Hann gat lagt saman, dregið frá, margfaldað og deilt, og engu líkara var en að hann kynni skil á dagatali.

 

Þá þegar höfðu fræðimenn rætt í mörg ár hvort dýr hefðu greind, og hvort þau gætu t.d. talið. Klóki Hans var rannsakaður og svo virtist sem hann hefði tileinkað sér stærðfræðikunnáttu.

 

En síðan uppgötvaðist að þegar hesturinn sá ekki þjálfara sinn þá hvarf öll sú kunnátta. Í ljós kom að hesturinn fylgdist með smávægilegum boðum frá þjálfaranum, en gat hvorki talið né deilt.

 

Fræðimenn urðu vonsviknir.

 

En síðan þá hafa fjölmörg dýr sýnt viðlíka frammistöðu og Klóki Hans – og án þess að svindla. Hjá jafn ólíkum tegundum og býflugum og simpönsum hafa fundist slíkir eiginleikar. Og það má teljast undarlegt að takmörk fyrir talningu hjá dýrum virðist ganga þvert á margar dýrategundir.

 

Páfagaukar segja svarið

Í mörgum rannsóknum í Þýskalandi og BNA hafa fræðimenn þjálfað býflugur í að finna fæðu á sérstökum stöðum á einsleitu landslagi.

 

Mælistikur mörkuðu fjarlægð að fæðunni með jöfnu millibili og býflugurnar lærðu að fæðuna var að finna milli þriðju og fjórðu stiku. Þegar fjarlægðin var aukin eða minnkuð milli mælistikanna flaug samt hluti býflugnanna að fæðunni.

 

Jafnvel frumstæð dýr eins og salamöndrur geta greint á milli talnanna 1 og 2, og eins milli 3 og 4. Það kom í ljós í tilraun þar sem salamöndrurnar fengu umbun fyrir að velja „meira” fremur en „minna” upp að gildinu þrír.

 

                                                                                           Alex

 

Hjá spendýrum eru það einkum apar sem skera sig úr. Fjölmargar mismunandi tilraunir sýna að simpansar eru ekki aðeins færir um að telja, heldur geta þeir einnig leyst einföld reikningsdæmi. Sem dæmi hefur bandaríski fremdardýrafræðingurinn Sally Boysen kennt öpum sínum að tala eins og „3” lýsir tilteknum fjölda fyrirbæra.

 

Aparnir geta valið mesta fjöldann, bæði þegar þeim eru sýnd fyrirbæri og þegar þeir sjá töluna. Þeir geta einnig lagt saman smáar tölur.

 

Orangútanar eru næstum jafn dugmiklir og taka simpönsum fram í einu. Þeir geta lært að velja minni skammt af fæði, fái þeir síðar umbun fyrir. Sally Boysen telur ástæðuna að finna í ólíkri félagsgerð tegundanna.

 

Simpansar lifa í flokkum í mikilli samkeppni um fæðuna og því er rótgróið í þeim að grípa gæsina þegar hún gefst. Orangútanar fara mest einir ferða sinna og eru því þolinmóðari í þessu efnum.

 

Meðal fugla hafa verið gerðar athyglisverðar talningarannsóknir á afríska Gráa – páfagauknum. Fremstur meðal jafningja er nú hinn 28 ára gamli Alex, sem er í umsjá bandaríska atferlisfræðingsins Irene Pepperberg. Alex hefur ekki aðeins lært að greina milli ólíkra talna, heldur getur líka tengt orð, t.d. „tveir” við töluna 2. Þannig svarar hann einföldum talnaspurningum. Sé honum sýndir nokkrir kubbar í mismunandi litum, og spurður um fjölda rauðra, getur hann talið þá og svarað rétt.

 

Einn, tveir, þrír, margir

 

En fræðimenn hafa einnig sýnt fram á að geta dýranna er ólík eftir einstaklingum og auk þess eru skýr takmörk fyrir á getu þeirra. Af einhverjum sökum liggja takmörk flestra við töluna fjóra. Apar sem og mörg önnur dýr lenda í vanda þegar talan er stærri.

 

Það á eins við um hryggleysingja eins og kolkrabba.

 

Þeim má kenna að opna krukkur í réttri röð eftir fjölda punkta á loki þeirra. Þó jafna megi greind kolkrabba við greind margra spendýra, eru takmörk fyrir talnaspeki þeirra.

 

Sé fjöldi punktanna meiri en fjórir fer þeim að förlast. Dýrin hljóta því að telja: einn, tveir, þrír, fjórir, margir.

 

Stöku sinnum finnast framúrskarandi einstaklingar sem geta talið upp að sjö, en lengra komast engin dýr. Þegar fjöldinn er meiri geta sum dýr séð mun á tveimur stærðum, en þá er líklegra að þau meti form fremur en að telja innihald.

 

Þessi sérstöku mörk við fjóra eða sjö er hulin ráðgáta þeim fræðimönnum sem rannsaka þessa eiginleika dýranna.

 

Hvers vegna liggja mörkin við fjóra, en ekki fimm eða sex?

 

Ekki hefur fundist svar við því, en sambærilega getu er að finna hjá mönnum. Þrátt fyrir að flestir menn læri að sjálfsögðu að telja mun hærra en að fjórum og sjö, þá er fjórir mesti fjöldi fyrirbæra sem menn greina í sjónhendingu án þess að þurfa að telja.

 

Með æfingu er hægt að komast upp að sjö, en síðan ekki söguna meir.

 

Kennslan betrumbætt

 

Ein tilgáta kveður á um að heilinn hafi innbyggðar hugkvíar fyrir „tveir”, „þrír” og „fjórir”.

 

Sumar rannsóknir virðast renna stoðum undir þá ályktun. Sérstök svæði í ennisblaði heilans hjá mönnum og öpum verða afar virk þegar sýndar eru myndir með mismiklum fjölda fyrirbæra. Sum svæði bregðast aðeins við þegar um er að ræða tvö fyrirbæri, önnur við þremur eða fjórum.

 

Um þessar mundir vinna fræðimenn að því að fá frekari skýringar, því það getur fært okkur skilning á hvernig við sjálf lærum reikning.

 

Einn þeirra er vitundarfræðingurinn Earl Miller við Massachusetts Institute of Technology. Hann telur að fyrst um sinn gæti slík vitneskja betrumbætt stærðfræðikennslu í skólum.

 

Til lengri tíma litið væri jafnvel hægt að nýta þá þekkingu til betri meðferðar á ýmsum heilasjúkdómum. Það gæti t.d. átt við um geðklofa, einhverfu og athyglisbrest svo fátt eitt sé nefnt. Verði hægt að rýna betur í hvernig boðskiptum heilans er háttað, ætti að vera hægt að bjóða upp á gagnlegri meðferð.

 

Talnaglöggir lifa af

 

Þar sem ofangreindir eiginleikar eru sameiginlegir mönnum og dýrum hlýtur skýringarinnar að vera að leita í þróuninni.

 

Það má færa gild rök fyrir því að hungrað dýr, sem getur greint á milli meiri og minni fæðu, er líklegra til að dafna vel við að velja stærri kostinn.

 

Það sama á við um bráð sem kann einhver skil á talningu. Ef gazella á sléttunni kemur auga á hóp ljóna, sem skömmu áður taldi fjóra einstaklinga og sér að þeir eru nú aðeins þrír, þá er full ástæða til að vera á varðbergi, þar sem eitt ljón gæti verið á ferli í veiðihug.

 

Þegar kemur að viðkomu dýra getur einnig borgað sig að vera talnaglöggur. Fuglar geta með talningu metið hvort eggin í hreiðri þeirra séu fleiri eða færri en vera ber.

 

Það getur komið sér vel þegar dýr tilheyrir tegund sem stundar hreiðursníkju. Bandaríska bleshænan veigrar sér ekki við að verpa í hreiður annarra bleshæna.

 

Þegar slíkt uppgötvast fjarlægir fórnarlambið hið óvelkomna egg, svo fremi það eru ekki fleiri en sjö egg í hreiðrinu. Fræðimenn vita að fuglarnir telja í raun, en skoða ekki mynstur eggjanna, því ef fjöldi þeirra helst samur eru engin egg fjarlægð þó mynstur þeirra breytist.

 

Geta fugla til að telja hefur kitlað veiðimenn og fuglafræðinga um áraraðir.

 

Þegar menn fara í skýli til að fylgjast með fugli á hreiðri eða til veiða, er ekki nægjanlegt að fara bara inn og bíða. Fuglarnir vita af mönnunum og halda ekki aftur á hreiðrið.

 

Það þarf að snúa á fuglana, en það getur reynst þrautin þyngri þegar krákur eiga í hlut. Haldi fjórir menn inn í skýlið og tveir þeirra út aftur lætur krákan ekki blekkja sig. Hún veit að ennþá eru menn í skýlinu. Það þurfa allt að níu manns að fara inn og sjö út aftur til að krákan geti ekki lengur hent reiður á fjöldanum.

 
 

Náttúran

Krabbar hafa farið sömu ferðina 17 sinnum

Maðurinn

Er veganmatur óhollur börnum?

Maðurinn

Er veganmatur óhollur börnum?

Náttúran

Risaeðlubeinagrind seld fyrir meira en sex milljarða króna á uppboði.

Náttúran

Risaeðlubeinagrind seld fyrir meira en sex milljarða króna á uppboði.

Lifandi Saga

Ísraelski vígamaðurinn: Vill lifa í friði með Palestínumönnum

Maðurinn

Er hægt að verða gráhærður á einni nóttu?

Heilsa

Hrotur geta verið vísbending um hjartasjúkdóm: Einn hópur er í sérstakri áhættu

NÝJASTA NÝTT

Maðurinn

Er hægt að verða sólbrúnn í skugga?

Maðurinn

Gerið það sama og þúsundir gera á samfélagsmiðlum: Verið þakklát og lifið lengur

Maðurinn

Þannig getum við nýtt drauma okkar

Heilsa

Kostir þess að vera nátthrafn

Jörðin

Jörðin eftir manninn

Maðurinn

Bakteríur leysa vind í munni okkar

Lifandi Saga

Hvað átti sér stað við Wounded Knee árið 1973?

Maðurinn

Geta matvörur varið húðina gegn útfjólubláum geislum sólar?

Spurningar og svör

Hvað á eiginlega að gera við kjarnorkuverið í Tjernobyl?

Maðurinn

Myndir af einangruðum ættflokki sýna mannlegan harmleik, samkvæmt verndarsamtökum

Maðurinn

Er hægt að verða sólbrúnn í skugga?

Maðurinn

Gerið það sama og þúsundir gera á samfélagsmiðlum: Verið þakklát og lifið lengur

Maðurinn

Þannig getum við nýtt drauma okkar

Heilsa

Kostir þess að vera nátthrafn

Jörðin

Jörðin eftir manninn

Maðurinn

Bakteríur leysa vind í munni okkar

Lifandi Saga

Hvað átti sér stað við Wounded Knee árið 1973?

Maðurinn

Geta matvörur varið húðina gegn útfjólubláum geislum sólar?

Spurningar og svör

Hvað á eiginlega að gera við kjarnorkuverið í Tjernobyl?

Maðurinn

Myndir af einangruðum ættflokki sýna mannlegan harmleik, samkvæmt verndarsamtökum

Fáðu aðgang að vÍSINDI.IS

Ókeypis í 2 vikur!

 

Eftir það kostar eingöngu 1.390 kr. á mánuði og enginn uppsagnarfrestur.

 

Innifalið er aðgangur að öllum greinum á vefnum ásamt rafræna útgáfu af nýjustu tölublöðunum.

  • Fullur aðgangur að visindi.is
  • Frábærar myndir og myndbönd
  • Aðgengilegt í öllum snjalltækjum
  • Fullur aðgangur að gríðarlegu magni eldri greina
  • Nýjustu tölublöðin í rafrænu formi

Jörðin

99 stórborgir eru að sökkva

Jörðin

99 stórborgir eru að sökkva

Maðurinn

Munnvatnið er fullt af eitri

Maðurinn

Munnvatnið er fullt af eitri

Maðurinn

Gæludýr koma í veg fyrir offitu og ofnæmi meðal barna

Náttúran

Hvernig bárust kettir til Ameríku?

Heilsa

Er mikið um kyrrsetu hjá þér í vinnunni? Þá getur kaffi lengt líf þitt samkvæmt stórri rannsókn.

Heilsa

Lækning gegn útbreiddum meltingartruflunum finnst í flestum eldhúsum.

Vinsælast

1

Maðurinn

Bakteríur leysa vind í munni okkar

2

Maðurinn

Myndir af einangruðum ættflokki sýna mannlegan harmleik, samkvæmt verndarsamtökum

3

Maðurinn

Geta matvörur varið húðina gegn útfjólubláum geislum sólar?

4

Jörðin

Jörðin eftir manninn

5

Spurningar og svör

Hvað á eiginlega að gera við kjarnorkuverið í Tjernobyl?

6

Heilsa

Kostir þess að vera nátthrafn

1

Maðurinn

Bakteríur leysa vind í munni okkar

2

Maðurinn

Geta matvörur varið húðina gegn útfjólubláum geislum sólar?

3

Jörðin

Jörðin eftir manninn

4

Heilsa

Kostir þess að vera nátthrafn

5

Lifandi Saga

Hvað átti sér stað við Wounded Knee árið 1973?

6

Maðurinn

Gerið það sama og þúsundir gera á samfélagsmiðlum: Verið þakklát og lifið lengur

Heilsa

Læknar hafa grætt heilt auga í mann

Maðurinn

Nú geta vísindamenn ráðskast með drauma okkar

Tækni

140.000 veirutegundir hafa fundist í þarmaflórunni

Maðurinn

Kornabörn þekkja móðurmálið sitt

Læknisfræði

Hvers vegna fáum við ofnæmi?

Maðurinn

Lamaður maður gengur fyrir eigin hugarafli

Lifandi Saga

Dans indíána orsakaði blóðbaðið við Wounded Knee

Heilsa

Rannsókn: Tæp skeiðfylli af þessari fitutegund daglega dregur úr hættu á heilabilun

Maðurinn

Er hollt að gefa blóð?

Tækni

Vandamál sem gat orðið aðkallandi

Maðurinn

Efnaskiptin eru stöðug frá 20 til 60 ára aldurs

Maðurinn

Er siðblindingi á vinnustaðnum þínum?

Er hægt að verða sólbrúnn í skugga?

Er sólarvörn yfirhöfuð nauðsynleg ef dvalið er í skugga mestallan daginn?

Maðurinn

ÁSKRIFT AÐ VÍSINDI.IS

Prófaðu í 14 daga ókeypis!

  • Fullur aðgangur að vefnum okkar með tæplega 3000 skemmtilegum og spennandi greinum um allt milli himins og jarðar á sviði vísinda og sögu.
  • Lifandi vísindi/Lifandi saga í rafrænni útgáfu á vefnum,
  • Aðeins 1.690 krónur á mánuði.
  • Engin skuldbinding – Þú getur hætt hvenær sem er.

ÁSKRIFT AÐ TÍMARITINU

Þrjú tölublöð + gjöf: Skemmtilegur sjónauki
  • Þrjú næstu tölublöð Lifandi vísinda/Lifandi sögu – sent heim til þín – eins færðu lítinn og vandaðan sjónauka að gjöf.
  • Fullur aðgangur að vefnum okkar – visindi.is – með tæplega 3000 skemmtilegum og spennandi greinum um allt milli himins og jarðar á sviði vísinda og sögu.
  • Spennandi greinar og flottar myndir sem svala forvitni þinni.
  • Þú getur hætt eftir tilboðið en ef þú heldur áfram skuldbindur þú þig aðeins þrjú tölublöð í einu og þú getur sagt upp hvenær sem sem og klárar þá tímabilið sem er hafið.
  • Venjuleg áskrift – þrjú tölublöð – kostar aðeins 7.590 kr

Sjónauki og þriggja blaða áskrift – Alls 3.800 kr.

Lifandi vísindi

Lyf

Lifandi saga

Search

Ertu áskrifandi að tímaritinu?

Áskrifendur að tímaritinu geta fengið frían aðgang að vefnum hér.

Innskráning

Ertu áskrifandi að tímaritinu?

Áskrifendur að tímaritinu geta fengið frían aðgang að vefnum hér.