Hvernig breytist saklaust barn í harðsvíraðan einræðisherra sem beitir jafnvel eigin landsmenn miskunnarlausri kúgun?
Hitler lét myrða sex milljónir gyðinga og steypti heiminum út í stríð. Saddam Hussein beitti eigin landsmenn eiturgasi. Mao sendi milljónir Kínverja í vinnubúðir og olli dauða milljóna manna. Allt gerðist þetta vegna þess að þeir, ásamt fjölmörgum öðrum einræðisherrum, voru staðráðnir í að hrinda hugmyndum sínum í framkvæmd — hvað sem það kostaði.
Mannlegar þjáningar virtust ekki snerta þessa valdasjúku leiðtoga. Þeir sýndu enga samúð, jafnvel þegar fórnarlömbin voru samlandar þeirra. En hvers vegna skiptu allar þessar hörmungar þá engu máli? Hvernig gat slíkur tilfinningakuldi orðið til?
Að mati margra fræðimanna er svarið að finna í bernsku einræðisherranna.
Lifandi saga skoðar hér hvaða sameiginlegu einkenni megi finna í uppvexti Stalíns, Hitlers og annarra alræmdustu einræðisherra sögunnar.
SADDAM HUSSEIN
Óvelkomið barn varð einræðisherra Íraks
Saddam Hussein níu eða tíu ára gamall.
Áður en Saddam Hussein fæddist reyndi móðir hans að binda enda á meðgönguna og svipta sig lífi eftir lát eiginmanns síns.
Fyrstu þrjú ár ævi sinnar ólst Saddam (1937–2006) því upp hjá móðurbróður sínum. Þegar hann sneri loks heim hafði móðir hans gifst á ný. Stjúpfaðir hans misþyrmdi honum og fékk hann til að stela. Tíu ára gamall strauk Saddam að heiman.
VLADIMÍR PÚTÍN
Smávaxinn slagsmálahundur beitti öllum brögðum
14 ára gamall Vladimír Pútín á skólamynd.
Vladimír Pútín fæddist árið 1952 í Leníngrad, núverandi Sankti Pétursborg, sem hafði orðið illa úti í loftárásum og átökum stríðsáranna. Foreldrar hans voru, líkt og margir aðrir Sovétborgarar, bláfátækir eftir hörmungar síðari heimsstyrjaldarinnar.
Á meðan foreldrarnir strituðu við að afla fjölskyldunni lífsviðurværis varð hinn smávaxni Vladimír að bjarga sér sjálfur. Í niðurníddum bakgörðum fjölbýlishúsanna lenti hann sífellt í slagsmálum við aðra stráka og öðlaðist fljótt orðspor fyrir að berjast af hörku. Hann hikaði ekki við að bíta andstæðinga sína eða rífa í hárið.
NERÓ
Blóðþyrstur keisari var fyrirlitinn af foreldrum sínum
Stytta af Neró sem barni. Hún er varðveitt í Louvre-safninu í París.
Einræðisherrar eru ekki fyrirbæri nútímans. Einn grimmasti valdhafi Rómaveldis var Neró. Hann stóð meðal annars fyrir ofsóknum gegn kristnum mönnum og lét myrða móður sína og tvær systur.
Þótt lítið sé vitað með vissu um bernsku Nerós hafa sagnfræðingar lengi reynt að rekja uppruna grimmdar hans.
Rómverski sagnritarinn Sútóníus gaf í skyn að foreldrar hans, Gnæjus og Agrippína, hefðu verið kaldlyndir og sjálfhverfir og að þau hefðu hafnað syni sínum frá fyrstu tíð. Samkvæmt Sútóníusi kallaði faðir hans drenginn „viðbjóðslegan“.
JÓSEF STALÍN
Drykkfelldur faðir barði son sinn
Æskuvinur lýsti Jósef sem dreng sem væri „ófær um að sýna fólki eða dýrum samúð“.
Bernska Jósefs Stalíns (1878–1953) var einnig myrk. Faðir hans var drykkfelldur skósmiður sem misþyrmdi bæði syni sínum og eiginkonu árum saman áður en hann yfirgaf fjölskylduna og sneri aldrei aftur.
Stalín bar ör eftir bólusótt í andlitinu og tólf ára gamall varð hann fyrir hestvagni. Slysið skildi eftir sig varanlegan skaða og vinstri handleggur hans varð bæði styttri og stirðari en sá hægri.
Líkamleg fötlun kom honum þó ekki í veg fyrir að öðlast orðspor sem mikill slagsmálahundur.
ADOLF HITLER
Ungur Hitler beitti systur sína ofbeldi
Skólamynd af tíu ára gömlum Hitler. Hún var tekin í austurríska bænum Leonding þar sem hann ólst upp stóran hluta bernsku sinnar.
Faðir Hitlers, Alois, var skapbráður maður sem lét reiði sína bitna á syni sínum. Jafnvel umhyggjusöm móðir hans gat ekki komið í veg fyrir barsmíðarnar. Oft kviknaði reiðin vegna þess að Adolf litli var þrjóskur og lét ekki auðveldlega undan.
Barsmíðar föðurins og sorgin eftir að yngri bróðir hans lést úr mislingum áttu sinn þátt í að breyta Adolf Hitler (1889–1945) úr vinsælum og duglegum nemanda í hlédrægan einfara.
Þegar faðir hans lést tók Adolf, aðeins þrettán ára gamall, að líta á sig sem höfuð fjölskyldunnar. Hann fór jafnvel að beita yngri systur sína ofbeldi.
MAÓ ZEDONG
Einelti og barsmíðar mótuðu leiðtoga Kína
Ungur dreymdi Maó Zedong um að verða kennari, en byltingarhugmyndir áttu fljótlega hug hans allan.
Faðir hans var auðugur bóndi í Hunan-héraði og gerði ráð fyrir að sonurinn, Maó Zedong (1893–1976), tæki við búinu að honum látnum. Maó hafði hins vegar aðrar hugmyndir og vildi mennta sig.
Barsmíðar föðurins og sífelldar tilraunir hans til að knýja soninn til hlýðni vöktu djúpa og langvarandi beiskju hjá Maó, sem síðar beindi reiði sinni meðal annars að landeigendum Kína.
Þegar honum var loks leyft að stunda nám tók ekki betra við. Auðugri skólafélagar hans lögðu hann í einelti og hæddu hann sem heimskan sveitastrák.
FRANCISCO FRANCO
Faðirinn hæddi Franco fyrir ræfilslega rödd og fyrir að vera lítill
Francisco Franco (t.v.) 14 ára gamall þegar hann hóf nám við herskóla. Eldri bróðir hans, Nicolás, var þar einnig nemandi.
Spilafíkn, drykkjuskapur og framhjáhald sviptu Francisco Franco (1892–1975) þeim föður sem hann þurfti á að halda. Í stað umhyggju fékk drengurinn barsmíðar frá föður sínum, sem var liðsforingi í spænska flotanum.
Faðirinn gerði einnig gys að syni sínum fyrir mjóróma rödd og fyri að vera smávaxinn. Franco varð aðeins 163 sentímetrar á hæð.
Vegna sífelldra framhjáhalda föðurins þurfti Francisco iðulega að hughreysta móður sína. Þegar hann hóf síðan nám við herskólann varð hann fyrir einelti af hálfu annarra nemenda.
BASHAR AL-ASSAD
Einræðisherra Sýrlands lærði grimmdina af föður sínum
Al-Assad-fjölskyldan situr saman fyrir á mynd, en samheldnin var fyrst og fremst fyrir ljósmyndarann. Bashar er lengst til hægri. Vinstra megin við móðurina stendur eldri bróðir hans, Bassel.
Bashar al-Assad lærði snemma að miskunnarlaus kúgun væri lykillinn að því að halda völdum. Þá lexíu fékk hann frá föður sínum, Hafez al-Assad, sem stjórnaði Sýrlandi með harðri hendi frá 1971 til 2000. Faðirinn var sífellt á ferðinni og gaf börnum sínum lítinn tíma.
Hinn feimni Bashar varð oft strítt af eldri bróður sínum, Bassels, og þótti óöruggur og hlédrægur á unglingsárunum. Það var ekki fyrr en Bassel lést í bílslysi árið 1994 að faðir þeirra ákvað að Bashar skyldi taka við einræðisvaldinu.
BENITO MUSSOLINI
Il Duce þráði viðurkenningu
Benito litli í fangi móður sinnar umkringdur systkinum sínum.
Ólíkt mörgum öðrum einræðisherrum virðist Benito Mussolini (1883–1945) ekki hafa alist upp við reglulegar barsmíðar. Hann var þó líklega löðrungaður þegar hann var tíu ára og rak hníf í hönd samnemanda síns og var rekinn úr skóla. Á nýjum skóla endurtók hann leikinn og stakk annan nemanda.
Því er enn ráðgáta hvaðan grimmd og skortur Mussolinis á samkennd voru sprottin. Sagnfræðingar vita þó að drykkfelldur faðir hans sinnti honum lítið. Þegar Mussolini komst á unglingsár var hann einnig þekktur fyrir að fara illa með margar kærustur sínar og hafa ánægju af að niðurlægja þær.
KIM JONG-IL
Lifði í skugga föður síns
Sem barn skorti Kim Jong-il ekkert. Á valdatíð hans dóu hins vegar meira en tvær milljónir Norður-Kóreumanna úr hungri.
Þegar síðari heimsstyrjöldinni lauk komu Sovétmenn Kim Il-sung, vinsælum leiðtoga kommúnista, til valda í Norður-Kóreu. Elsti sonur hans, Kim Jong-il (1941–2011), missti bróður sinn sjö ára gamall þegar hann drukknaði í sundlaug fjölskyldunnar. Árið eftir lést móðir hans í barnsburði.
Faðir hans var sjaldan heima og Kim Jong-il ólst því að mestu upp án hans. Árið 1994 tók hann við völdum í Norður-Kóreu. Þó varð hann að láta sér nægja titilinn „Hinn kæri leiðtogi“, á meðan faðir hans var hylltur sem „Hinn mikli leiðtogi“.