Fleygðu Mayar líkum í drykkjarvatn?

BIRT: 04/11/2014

LESTÍMI:

< 1 mínútur

Vísindamenn vita ekki hvort Mayar drukku vatn úr fórnarbrunnum sínum.

 

En hvorki hafa fundist neinar arfsagnir né fornleifar sem beri því vitni að fólk hafi sýkst af vatni úr þessum brunnum.

 

Yfirleitt gera vísindamennirnir ráð fyrir að vatn hafi ekki verið sótt í fórnarbrunnana, t.d. Cenote Sagrada (hinum heilaga brunni) í borginni Chichén Itzá, heldur hafi allt aðrir brunnar verið notaðir sem drykkjarvatnsbrunnar.

 

Í borginni Chichén Itzá var brunnur sem heitir Cenote Xtoloc, í um 600 metra fjarlægð frá fórnarbrunninum og jarðfræðingar segja engin neðanjarðartengsl milli þessara tveggja brunna þannig að vatn úr síðarnefnda brunninum hefur verið hættulaust að drekka.

 

Í brunninum Cenote Sagrada hafa fundist 127 beinagrindur, einkum af drengjum sem færðir hafa verið regnguðnum Chak að fórn á blómatíma borgarinnar Chichén Itzá sem stóð frá um 900 til 1200 e.Kr.

 

Hvernig fórnarathafnir fóru fram er enn ráðgáta og t.d. ekki vitað hvort fórnarlömbunum var fleygt lifandi ofan í brunninn, eða þau tekin af lífi fyrst.

 

Sum þeirra beina sem fundist hafa, bera þess merki að hafa áður verið grafin annars staðar.

 
 

BIRT: 04/11/2014

vinsælustu greinarnar

Lifandi vísindi

Lyf

Lifandi saga

Ertu áskrifandi að tímaritinu?

Áskrifendur að tímaritinu geta fengið frían aðgang að vefnum hér.

Innskráning

Ertu með áskrifandi að blaðinu?

Áskrifendur geta fengið áskrift af vefnum hér

Viltu lesa greinina?

Fáðu aðgang að visindi.is

Ókeypis í 2 vikur!

Eftir það kostar eingöngu 1.390 kr. á mánuði og enginn uppsagnarfrestur.

Innifalið er aðgangur að öllum greinum á vefnum ásamt rafræna útgáfu af nýjustu tölublöðunum.

  • Fullur aðgangur að visindi.is
  • Frábærar myndir og myndbönd
  • Aðgengilegt í öllum snjalltækjum
  • Fullur aðgangur að gríðarlegu magni eldri greina
  • Nýjustu tölublöðin í rafrænu formi

Núverandi áskrifendur að tímaritinu fá að sjálfsögðu ókeypis aðgang að vefnum og þurfa bara að virkja aðgang sinn hér.

Ef þú ert þegar áskrifandi að visindi.is